Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Blaðsíða 67

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Blaðsíða 67
67 stendur svo á því, að í haust kom eg til Stephens prófessors. Hann fékk mér þá til forngripasafnsins 5 rd., og sama kvöldið kom til hans A. W, Franks, umsjónarmaður við British Museum og fékk mér 25 rd. til safnsins lika. Hjaltalín landlæknir hafði skrifað honum og sagt hon- um frá safni þessu. Eg gaf honum tvö exemplör af skýrslunni, sem hann bað um. Mér þætti vænt um, ef þjer vilduð segja Hjaltalín frá, þegar þér hafið fengið sendinguna, og að þakka Franks yðar og safnsins vegna. Stephens gætið þér skrifað sjálfur ef yður sýndist. Annars get eg eða einhver skilað því. Það er verst, að við höfum enga talsmenn útum heiminn, því ef það væri, þá mundi margt nást meira en nú. — Eg reyndi að setja klausu í skýrslu Bókmfél. til kon- ungs um safnið, og sendi Trap Cabinetssekretera afskrift af skýrsl- unni. Nú tala eg við hann einhvern daginn, og fái eg nokkurt færi, skal eg nota það, hvað sem gildir. Worsaae mun ekki koma með neitt ennþá? — Eg hefi þó mörg loforð hans og þeirra. Eg vona líka það uppfyllist smásaman, en eg held yður væri líka óhætt að pota dálítið í hann með góðu bréfi og liðlegu. í sumar vona eg við getum talazt betur við um þetta og ýmis- legt annað, en eg kveð yður þangað til. Yðar einlægur vin Jón Sigurðsson. 11. Reykjavík 27. Marts 1869. Háttvirt, góði vin! Eg þakka yður ástsamlega fyrir bréfið og sendinguna til forn- gripasafnsins. Eg vildi að þeir vildu halda svona áfram nokkrum sinn- um, því eingöngu þessir 30 rd. gera þá breytíngu á málinu, að safn- inu á að vera borgið fyrst um sinn, allra helzt, ef þau góðu stipts- yfirvöld vildu nokkuð hlynna að því, en þau eru altaf treg í því máli. Við höfum nú þegar svo mikla penínga, að við getum farið að hugsa um að útvega safninu húsnæði, sem nú er orðin mesta þörf safnsins, ef það á ekki að eyðileggjast. — Eg hefi skrifað prófessor Stephens og sendi eg honum þar með myndir af öllum þeim rúnasteinum, sem eg hefi myndir af. Eg hefi nefnt við Hjaltalín að skrifa Franks, en eg veit ekki samt, hvað úr því verður með þessari ferð, því hann er allt af hálfvitlaus á meðan póstskipið liggur hér og ekkert að reiða sig á hann. í vetur hefi eg fengið ýmsa góða hluti til safnsins en ekki marga, 5*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.