Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 74

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 74
74 synlegt. En til að geta þetta þarf maður heila bygging fyrir þessi söfn, enda er beinlínis orðin þörf á henni, því annars getur allt orðið í veði; enda þarf sú bygging 6—10 ár til að þorna, áður en hún yrði brúkuð, og þá verður orðin full þörf á þess konar byggingu. Ekki hefi eg enn fengið nein skeyti frá Worsaae og er það íllt, því það dót tæki minst pláss, því varla yrði það svo mikið. Líka gæti það porrað dónana upp, ef þeir sjá, að útlendir hjálpa safninu; en Danir eru líklega ekki fúsir á eins og stendur að deila við oss kníf eða kjötstykki, en gott væri að geta haft út úr þeim sem mest, ef unt væri. Það gekk mikið vel með kvenbúnínginn nýjasta, sem eg eitt sinn gat um við yður, og hefir hann gert það að verkum, að margar af þeim dönsku-skotnu hafa nú farið og ætla að fara á íslenzkan bún- íng; en hvað varanlegt það verður, er óvíst; það er óreynt enn. Eg hefi allt af haft líka skoðun og þér, að kvenfólkið sé, ef til vill, úrval- ið úr okkar þjóð, en hvikular eru þær um of, og föðurlandstilfinning þeirra er eins og ósjálfráð eða óafvitandi. Þó held eg, að þær séu eitthvað farnar að hafa ljósari hugmynd um hana en áður, og ekki mun þurfa mikið til að vekja hana hjá þeim. Þær eru þó farnar að verða spentar fyrir okkar málefnum, og það töluvert. Það er ekki að undra, þótt þær séu hvikular, því karlþjóðin er það má ske meira. Ekki get eg átt við að skrifa lof um þær í Þjóðólfi, því það kann að misskiljast, vegna þess að Þjóðólfur hefir nýlega skrifað um mig eins konar lof, kvenfólksins vegna. Eg verð líka að fara varlega, því eg veit af mönnum, sem bíða eptir hverju bezta tækifæri til að gera aðgjörðir minar í þessu máli vitlausar og hlægilegar, ef unt væri; það er það eina, sem þessir okkar vinir sumir temja sér og geta. Eg skal ekki spara að hvetja þær og hjálpa þeim sem eg get og hefi bezt vit á. Ekki þekki eg kvæði Bjarna skálds og ekki segist Jón Árnason þekkja það. Héðan er lítið frétta. Eg held, að Sigfúsi gángi allvel og al- þýða sjái furðanlega við kaupmönnum; eg hefi ekki enn frétt greini- lega neitt um það. Kaupmenn eru hálfvitlausir. Ýmsir málsmetandi alþýðumenn skrifast nú á við Norðmenn; eg hefi séð bréf þeirra. Eg held, að það sé orðin töluverð alvara í alþýðu; þó sumir betrist seint, þá verður eitthvað úr þessu brölti. — Hér er byrjað á að byggja 5 hús, og verða sjálfsagt fleiri, eptir langt rifrildi. Þá höfum við Sverrir komið því til leiðar, að þjóðvegurinn verður lagður þráðbeina línu á Öskjuhlíð frá Skólavörðunni, og er búið að leggja nokkuð af honum. Eg bið yður að muna eptir myndinni af Valhöll og upplýsing- unni um, hvort maður sér af textanum í Bestiarius, hvaða hús það á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.