Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 55

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 55
55 «ða ábyrgst að allt sé rétt, að minsta kosti fyrir augum sumra hérna heima, því þeir eru svo kritískir, að þeir sumir álita alla fornfræði heimsku og loptkastala og ómögulega; og líka fer maður víða ein- ungis eptir annara sögusögnum, og verður maður að láta þær gilda, þangað til annað meira áreiðanlegt hrindir þeim. Mér þótti vænt um að fá ráð yfir miklu af skýrslunni, því hún kemur sér vel. Eg hefi þegar gefið nokkrar af þeim ýmsum austanmönnum, sem nú og í fyrra og áður hafa útvegað safninu hluti, og hafa þeir þegið það þakklátlega. Eg er viss um að það styrkir safnið, og eg er enda á því, að láta einstöku fá skýrsluna, án þess að þeir hafi gefið safninu, ef þeir unna fornfræði og vilja styrkja það í orði og verki, allra helzt ef þeir ekki hafa efni á að vera í Bókmentafélaginu. Mikill fjöldi af þeim, sem mest hafa gefið safninu eða útvegað því, eru einmitt í Bók- mentafélaginu og þurfa ekki skýrslu. Lítið held eg maður geti selt af henni hér heima, allra helzt í þessu árferði, enda liggur ekkert á að koma henni fljótt út, nema í þeim tilgangi að uppörfa menn til styrktar við safnið. — Eg á örðugt með að ákveða, hvað muni vera sanngjörn ritlaun fyrir skýrsluna, því eg veit ekki, hve mikils menn meta þess háttar ritgjörðir í samanburði við aðrar. Eg veit að eins það, að eg hefi haft töluvert mikið fyrir henni, og hefi mátt til að eyða við hana hentugasta tímanum. Safnið hefir yfir höfuð orðið mér töluvert dýrt. Eg þarf því á öllu minu að halda, og sama er að segja um Bókmentafélagið. Eg hefi því hugsað mér 10—12 Rd. fyrir örkina ekki ósanngjarnt, eptir því sem félagið borgar öðrum afskriptir og út- leggingar; þér ráðið því. Jens bróðir yðar skrifar yður víst um, hvernig gengur að útvega peningana. Eg veit ekki um það, nema hvað eg ímynda mér að það gangi illa. — Jens bróðir yðar hefir borgað mér 50 Rd. 13. júlí og sendir yður kvittering; eg hafði heyrt að Deildin hér væri peningalaus. Eg hefi eingin skeyti fengið frá Vorsá síðan í haust, að eg sendi honum bréfið; honum hefir máske ekki líkað það vel. Safnið hefir auðgast töluvert í vetur af góðum hlutum. Það er nú orðið 5S6 Nr. í útsynníngnum í vor blésu upp 6 dys suður hjá Hafurbjarnarstöð- um og fanst í hverju maður og hestur, nema í því stærsta 2 menn, hundsbein og hestbein; í því dysi fanst spjótsoddur, kjaptamél úr járni, skrautsverð með silfurlögðum og smeltum hjöltum og með silfurvöfð- um meðalkafla, heilum, og efra hjaltið var og lagt með silfurplötum og fléttíngum, og döggskórinn hafði verið gyltur og úr bronzi, með mjög vönduðum ormahnútum; þar fanst og brot af hjálminum utaná hauskúpunni, hárgreiða, 4 beinlengjur, grafnar með hnútum. í öðru dysi fanst spjótsoddur [og] brotinn járnketill með stórri höldu. í þriðja
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.