Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 52

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 52
52 en samt hafa þeir ekki haft neinn sjúkling, nema hann Brennu-Brand, sem lærbrotnaði, og má sveitin borga. — Akureyjar-öa«./an hefir í allt haust legið upp á stakkstæðum, og þess vegna hefir spánska skipið strandað, að sumir halda. Siemsens skip Spíka strandaði á grandanum á nýársdagskvöld. Þetta eru okkar framfarir og regla. — Kaupmannafundirnir eru enn lifandi, 2 í viku, og hafa embættismenn fundi í sameining með þeim á miðvikudögum. Ekk- ert held eg að þar hafi samt gerst merkilegt. — Handverksmenn halda enn fundi með sér og hafa þeir mest talað um að byggja hús í sameiníngu, með veizlu- og samkomu- eða skemti-sal niðri, en með íbúðarherbergjum uppi, en óvíst er, að það verði nema orðin ein; því samtökin vantar líklega. — Daufar vonir hefi eg með Al- þingishúsið. Margir af okkar helztu og ríkustu stórbændum bölva þegar þeir heyra það nefnt, og segja nú »að þeir vildu miklu heldur gefa til íngólfs-myndar«, en helzt vilja þeir samt gefa penínga til þess segja þeir: „að Alþing hœtti“, því alþingiskostnaðurinn halda þeir að verði ógurlegur; ekki vantar fjörið og föðurlands-tilfinninguna. Mér þykir heldur en ekki vera farið að grána gamanið milli þeirra fyrirliðanna forngripasafnsins þarna ytra; eg las það í þessum nýju árbókum. Mér þykir mikið, að þeir þora að sýna sig svo barnalega. Mér finnst og að danskurinn í sama riti treysti vel mikið uppá mátt og megin og sitt söguvit með að gera okkar sögur ómerkar, eða óáreiðanlegar; þar þyrfti bráðum að fara að rita á móti, og eins Norðmönnum. Samt getur verið, að tilhæfa sé fyrir einhverju af því. Eg vona að eg fái línu frá yður með fyrstu skipum um það fyrsta. Lifið svo ætíð vel og heilir. Yðar Sigurður Guðmundsson. VII. Khöfn 23. Juni 1868. Kæri vin, Hérmeð sendi eg yður stokk með grænlenzku gripunum í, sem við töluðum um í fyrra, ef þér kynnuð vilja nýta þá til safnsins. Væri svo, og að þér settið þetta á skrá, þá vildi eg helzt að það væri talið »frá Halli Ásgrimssyni nýlendustjóra við Friðriksvon á Græn- landi«, því hann hefir sent mér það. Hvort þér þá viljið geta þess, að eg hafi síðan komið því til safnsins, eða sent það safninu, því
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.