Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 26

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 26
26 gekk hann að eiga hana. Hann lifði í 5 ár eftir þetta, dó 10 júní 1733 á Bessastöðum, 48 ára gamall, og var jarðaður þar í kórnum, — þar sem Appollonía hvíldi fyrir. Tíu dögum fyrir andlátið arfleiddi hann Karen Holm að öllu lausafé sínu og jafnframt öllu afgjaldi af fasteignum sínum meðan hún lifði, en eftir hennar daga skyldu rétt- ir lögerfingjar hans njóta þeirra. — Árið eftir dó Cornelius Wulf landfógeti í Hötn. Jón prófastur Hálldórsson í Hitárdal hefir eflaust þekkt Fuhr- mann amtmann og verið hlýtt til hans. Hann kemst svo að orði um hann í Hirðstjóra-annál (Safn II., 776—77): »Amtmaður Fuhrmann var með hærri mönnum á vöxt, fyrirmannlegur, skarpvitur, vel talandi, forfarinn í flestum lærdómslistum og tungumálum, svo ég efast um, hvort hér hafi verið lærðari veraldlegur yfirmaður; þar með var hann friðsamur, ljúfur, lítillátur, glaðsinnaður og veitingasamur. Á alþingi var oftast nær alsetið í kringuin hans borð um máltíð af fyrirmönn- um landsins og hans góðum vinum, er hann lét til sín kalla. Sótti ekki eftir neins manns falli eður hrösun, stundaði til að halda land- inu við frið og landsrétt. Hann var hér amtmaður 15 ár; vanséð, hvað fljótt ísland fær hans líka í öllu«. í Bessastaðakirkju standa 2 afarmiklir koparstjakar á altarinu, 57,5 cm. að hæð og 31,5 að þverm. um stéttina. Á þeim er svo- felld áletrun á latínu: Hocce Par Lychnúchorúm cum cæteris orna- mentis Ecclesie Bessestediensi - in úsúm pium et perpetúúm donavit dotavit Catharina Holmia Anno 1734:. . Þyngdin er sett á stéttirnar að neðan: . :1: lpd: 4 pd.: Þessa stjaka og aðra kirkjugripi hefir þá Karen Holm gefið Bessastaða-kirkju fyrir legstað amtmanns árið eftir að hann dó. Sýknudómarnir í Svartskopfs-máli 1725 og 1726 eru eðlilegir, eftir þeim gögnum, sem lágu fyrir dómurunum. Annars vegar skýrsl- ur um grunsemd veikrar konu, sem var dáin og grafin ári áður en rannsóknin hófst, hins vegar eiðfestur framburður lifandi vitna, sem voru nákunnng málavöxtum. Annað mál er það, að rannsóknin og vitnaleiðslan er undarleg, þær persónur aldrei yfirheyrðar, sem grun- semdin lá á. væru þær Maren Jespersdóttir og Gunnhildur Hemingsdóttir, eftir því sem þær hefðu sagt við hann og aðra og ekki játað fyrir réttinum. — Þetta mál var tekið fyrir aftur 27. sept. og stefnt fjölda vitna og kunnu sum þeirra háðvísur, sem eru skrifaðar eftir þeim í réttarbókina, um þessi vitni amtmanns o. fl., og báru A. Sc. fyrir að hafa farið með þær. Sá hann þá sinn kost vænstan, að bíðja amtmann fyrirgefningar með mjög auðmjúkum orðum og éta ofan i sig ummæl- in um Ijúgvitnin. Enn fleiri vísur voru til en þessar, og eru til enn, og var ekki hægt fyrir neinn að bæla niður almannaróminn um þetta mál.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.