Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Side 25

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Side 25
25 heitir Prófastsáll ‘). — En amtmaður fór utan, til að standa fyrir máli sínu. Það fór sem von var, að Kinch var sýknaður, því að fram- burður hans hafði verið sannur og hann hefði gert rangt í að leyna því, sem Appollonía sagði honum á banabeði sinum. Var amtmaður dæmdur til að greiða Kinch 300 dali. Enn fremur skyldi hann greiða Wulf landfógeta 50 dali, og var það vel sloppið, og aðra 50 dali til Kristjánshafnarkirkju. í Mælifells-annál (Ann. 1400—1800, I, 638—39) segir, að hann hafi auk þess mátt láta úti 500 dali til Frantz Swarts- kopf, bróður Appolloníu, »er hún átti í láni hjá honum«, en þar mun eitthvað blandað málum; hann átti ógreidda henni 100 dali, er hún dó, nefnilega helming þess er honum bar að greiða henni það ár (1724); hafði Frantz Swartskopf farið fram á það í Höfn (24. marts 1725), að sér yrðu þeir greiddir, en stiftamtmaður viidi láta það bí?a, unz málið væri útkljáð. — Dómendur virðast hafa sloppið við allar sektir fyrir sinn ranga dóm um Kinch. Séra Þorleifur hafði að sönnu dæmt hann einn í fyrstu og var nú dáinn, en svo sem áður er sagt, virðast dómendur allir hafa samþykkt þann dóm, eða annan eins, sumarið 1726. Wulf landfógeta hefir sennilega þótt illt að búa við hatur amt- manns á Bessastöðum og fór hann utan sumarið eftir að dómur þeirra þremenninganna var kveðinn upp, 1727; sigldi hann með Stykkishólmsskipi, en amtmaður með Eyrarbakkaskipi. Var Wulf síðan í Höfn embættislaus, en hafði þriðjung fógetalaunanna. — Stift- amtmaður gat ekki komið Fuhrmann vini sínum til hjálpar; honum var einnig stefnt fyrir allra-hæzta-rétt þetta sama sumar; hann dó 29. september. Amtmaður kom hingað næsta sumar og skömmu síðar fór ma- dama Pipers utan* 2). Hefir hann sennilega ekki latt hana og henni ekki þótt girnilegt að búa hér Iengur við illan orðróm og níðvísur, sem flugu um landið3). — Karen varð eftir hjá amtmanni, en ekki ') Sbr. Árb. Fornl.fél. 1902, 12; hann er raunar nefndur Gunnarshólmalæna á uppdrætti herforingjaráðsins. 2) Sbr. Mælifellsannál, Ann. 1400—1800, I., 697; »Hólma kerling« er ef- laust gamla konan, en ekki Karen dóttir hennar. 3) Tveim dögum eftir að dómurinn var kveðinn upp í Kópavogi 1726 stefndi amtmaður tveim dönskum mönnum þangað fyrir rétt 27. s. m. út af um- mælum annars þeirra, Anders Schaviniusar, um amtmann og heimilisfólk hans. í eins konar varnarskjali, sem A. Sc. lagði fram, kvaðst hann hafa svo um mælt, að fyr en hann yrði gerður ærulaus skyldu sumir af heimilismönnum amtmanns verða gerðir það, þeir sem borið höfðu Ijúgvitni, og kannaðist hann við, að það I
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.