Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Síða 22

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Síða 22
22 Hákon sýslumaður, ritaði samdægurs konungi bréf og gat komið því af stað strax með seinasta haustskipinu. Lét hann það þar í ljós, m. a., að hætt væri við að málið yrði ekki upplýst á fullnægjadi hátt, sök- um þess, að meðdómandi hans hliðraði sér hjá að láta vitnin svara sumum spurningum sækjanda. Sést þetta af bréfi amtmanns til kon- ungs, dags. 2. sept. árið eftir, og það enn fremur, að Hákon sýslu- maður og sækjandi hafa þennan sama dag (28. sept.) yfirgefið réttar- höldin fyrirvaralaust. Eftir 8—10 daga fjarveru komu þeir báðir aftur og lýsti Hákon þá yfir því, að hann ætlaði ekki að sinni að fást meira við málið og því síður ljúka því. Að svo mæltu fór hann burt aftur. Hinn dómandinn, Þorleifur prófastur, vildi samt ekki hætta að svo búnu, og mun hafa farið í því efni eftir vilja amtmanns. Hann lagði fram nokkru síðar, 22. okt., stórt og stórort varnarskjal í mál- inu, með ærnum skömmum um þá landfógeta, Larsen, Kinch og sækjanda og fullt af latínuglósum að lærðra manna sið, til smekk- bætis fyrir prófastinn. Skjalið er 11 arkarsíður og þó líklega ekki öllu fleiri setningar, því svo ósvikinn er kancellí-stýllinn á því. Hafði amtmaður í hótunum að klekkja síðar á þeim Frantz Swartskopf og Larsen, sem ekki hafði getað orðið stefnt fyrir þennan rétt, en heimt- aði Kinch dæmdan eftir tilteknum lagagreinum fyrir róg og sækj- anda fyrir ólöglega meðferð málsins. Tveim dögum síðar, 24. okt. 1725, kröfðust þeir amtmaður og verjandi dóms í málinu og kvað Þorleifur prófastur hann upp einn samdægurs í Kópavogi. Lýsti hann amtmann sýknan af dauða ung- frú Swartskopf og af að vera í nokkru vitorði um að hún hefði verið drepin á eitri. Var sýknunin aðallega byggð á orðum og ummælum hennar sjálfrar. Enn fremur lýsti hann þær mæður, madömu Katha- rínu Pipers og ungfrú Karen Holm, sýknar af því að hafa valdið dauða ungfrú Svartskopf með eitri í mat, þar sem engin vitni höfðu borið það, að þær hafi átt nokkuð við þau matvæli, sem hún kvað sér gefið eitur í. Orð og ummæli Larsens og Kinchs skyldu ekki á nokkurn hátt vera þeim amtmanni og mæðgunum til áfellis. Larsen yrði ekki dæmdur fyrir þessum rétti, en Kinch skyldi greiða amt- manni 20 dali í ómakslaun, líða dóm, sektir og aðför að lögum (N. 1. 6—21—7), sem lygari og rógberi; — ekki var hann þó dæmd- ur til ærumissis, eins og Jón prófastur Halldórsson Iætur í ljósi í frásögn sinni. — En sækjandinn, Sigurður sýslumaður, skyldi eiga mál sitt undir konungi. Þegar þessi dómur var kveðinn upp, voru öll skip sigld og gat amtmaður ekki sent hann fyr en 19. júlí næsta sumar (með Keflavik-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.