Morgunblaðið - 11.04.1995, Page 12
12 B ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995
ALÞINGISKOSNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Halldór
KVENNALISTAKONURNAR Þórunn Sveinbjarnardóttir,
Guðný Guðbjörnsdóttir, Kristín Einarsdóttir og Kristín Ástgeirs-
dóttir brostu breitt þegar ljóst var að þær höfðu tryggt sér
konur á þing.
Mikil spenna í talningunni á kosninganótt
Kvennalistinn
hafði ekki
þingmann í
klukkustund
KOSNINGANÓTTIN var æsi-
spennandi að þessu sinni. Miklar
breytingar urðu í hvert skipti
sem nýjar tölur birtust, menn
voru inni eina stundina en féllu
út þegar næstu tölur birtust.
Mesta athygli vakti er nýjar tölur
birtust í Reykjavík þegar nokkuð
var liðið á nóttina og sýndu að
Kvennalistinn væri fallinn út af
þingi. Klukkustundu síðar komu
nýjar tölur og þá var Kvennalist-
inn inni og hélt því sæti það sem
eftir var nætur.
„Það var skelfilegt þegar leit
út fyrir það á tímabili að við
fengjum ekki lgördæmakjörna
konu inn á þing,“ segir Steinunn
V. Óskarsdóttir
Kvennalistakona. Hún
var stödd á kosninga-
vöku Kvennalistans á
meðan á talningu at-
kvæða stóð og segir að
á þessum tíma hafi ver-
ið beðið í eftirvæntingu
eftir næstu tölum. Var andrúms-
loftið rafmagnað á meðan beðið
var í óvissu.
„Manni leið ekkert alltof vel á
meðan á þessu stóð, en ég var
þó allan tímann sannfærð um að
þetta væri ekki endanleg niður-
staða. Eg bjóst alltaf við að við
fengjum eina eða tvær kjör-
dæmakjörnar," segir Steinunn.
Hún segir ennfremur að hjá
Kvennalistanum hefðu konur
ekki búið sig undir það að missa
allar konur út af þingi. „Sam-
kvæmt skoðanakönnunum vorum
við með fylgi upp á um 5%. Eg
hafði þá tilfinningu, sem síðan
reyndist röng, að við fengjum
ívið meira og leiddi því hugann
aldrei að því að við fengjum enga
konu ly’örna eins og leit út fyrir
á tímabili."
Úrslita beðið með
eftirvæntingu
Að sögn Steinunnar var stemn-
ingin á kosningavöku Kvennalist-
ans þannig á meðan útlitið var
sem verst að beðið var
í eftirvæntingu eftir
næstu tölum. „Ef niður-
staðan hefði orðið eins
og leit út fyrir á þessu
tímabili hefði listinn
hreinlega þurrkast út.
Það voru hins vegar
miklar sviptingar alla nóttina,
ekki bara hjá okkur, heldur öll-
um flokkum. Maður bara beið
og vonaði að þetta myndi batna,
sem það gerði,“ segir Steinunn.
Allir stjórnmálaflokkarnir
voru með kosningavökur aðfara-
nótt sunnudagsins og var stemn-
ingin misgóð, allt eftir gengi
flokkanna í kosningunum.
Rafmagnað
andrúmsloft
á kosninga-
vöku Kvenna-
listans
Morgunblaðið/Sverrir
BJÖRGVIN Halldórsson tók
lagið fyrir Davíð Oddsson
og Friðrik Sophusson á
kosningavöku Sjálfstæðis-
flokksins á Hótel íslandi.
MÆÐGURNAR Rannveig
Guðmundsdóttir og Sigur-
jóna Sverrisdóttir voru
mættar á kosningavöku Al-
þýðuflokksins í Reykjanes-
kjördæmi.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Morgunblaðið/Halldór
JOHANNA Sigurðardóttir ræðir við fylgismenn Þjóðvaka á kosningavöku flokksins.
Morgunblaðið/Sverrir
MIKIL stemning var hjá framsóknarmönnum á Reykjanesi eftir góðan sigur þar. Drífa Sigfúsdótt-
ir, Hjálmar Árnason og Siv Friðleifsdóttir. fögnuðu ákaflega, enda náðu þau Siv og Hjálmar kjöri
og um tíma leit út fyrir að Drífa kæmist inn, en svo fór þó ekki.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Á HARD Rock Café héldu Alþýðubandalagið og óháðir upp á
kosningaúrslitin og þar á meða þingmennirnir Ögmundur Jónas-
son, Bryndís Hlöðversdóttir og Svavar Gestsson.
í)! )(
.S8ÖI tiiíiiiwsú.
'imtoA