Morgunblaðið - 11.04.1995, Page 10
10 B ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995
ALÞINGISKOSNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
D: 42,3%
D: 39,3%
ik P -
B: Framsóknarflokkur
D: Sjálfstæðisflokkur
Sigbjörn Gunnarsson Kjörfylgi stærsta flokks í hverju kjördæmi
Töpuðum
og högnuð-
umst á ESB
„ÞAÐ ER ljóst að
út um land voru
Evrópumálin okk-
ur erfið. Flokkur-
inn bæði tapaði og
hagnaðist á þeim.
Það er hins vegar
klofningsframboð
Þjóðvaka, sem leið-
ir til þess að Al-
þýðufiokkurinn fær þessa slæmu
kosningu," sagði Sigbjörn Gunnars-
son, en hann náði ekki kjöri fyrir
Alþýðuflokkinn á Norðurlandi
eystra.
Sigbjörn hefur verið þingmaður í
fjögur ár. Hann sagði þetta vera
afleita útkomu fyrir Alþýðuflokkinn
og verri en hann hefði búist við.
Sigbjörn sagðist telja að Alþýðu-
flokkurinn hefði náð tiþyngri kjós-
enda með áherslu á að ísland sækti
um aðild að ESB. Hörð andstaða
hefði hins vegar verið við þessa
stefnu meðal sumra kjósenda á
landsbyggðinni.
„I þessu ríkisstjórnarsamstarfi lít-
ur fólk á Alþýðuflokkinn sem vernd-
ara velferðarinnar og það fólk sem
finnst velferðin ekki hafa verið næg
í landinu ásakar okkur. Sjálfstæðis-
flokkurinn geldur þessa hins vegar
ekki með sama hætti.“
Sigbjörn sagði það alvarlega stöðu
fyrir jafnaðarmenn í landinu að eiga
engan þingmann um norðan- og
austanvert landið. Hann sagðist
samt vera fylgjandi þessu stjórnar-
samstarfi og að reynt yrði að treysta
það á þann hátt að stjórnarflokkarn-
ir fengju Kvennalistann til liðs við
sig. Hann sagðist telja að það væri
iífsnauðsynlegt fyrir Kvennalistann
að komast í ríkisstjórn.
Jóna Valgerður
Kristjánsdóttir
Kjörfylgi Sjálfstæðisflokks f
kosningum til Alþingis 1959-1991
42j>c/°
39,7%
41,4%
37,5%
X
32,7%
A
35,4%
8J% 38,6%
1vor9 g& 1963 7967 19?1 ig?4
27,2%
371%
m
1983 1987 fggi igg5
Skilaboðin
eru að okk-
ar hlutverki
sé lokið
JÓNA Valgerður
Kristjánsdóttir,
þingmaður
Kvennalistans á
Vestfjörðum, telur
að út úr kosning-
unum megi lesa
þau skilaboð kjós-
enda að þeir telji
að Kvennalistinn
hafi lokið sínu hlutverki og að kon-
ur í öðrum stjórnmálaflokkum eigi
að halda merki þeirra á lofti.
„Ég er mjög ánægð með að mál
sem Kvennalistinn lagði mikla
áherslu á í kosningabaráttunni,
kjarajöfnun og afnám launamisrétt-
is milli kynja, voru mikið til um-
ræðu fyrir kosningar. Ég tel því
að við höfum náð málefnalegum
ávinningi. Kjósendur virðast hins
vegar hafna því að við framfylgjum
þessum málflutningi okkar, af
hvaða ástæðu sem það nú er. Kon-
ur hjá öðrum stjómmálaflokkum
vinna hins vegar athyglisverða
sigra. Konur í Framsóknarflokkn-
um vinna mikla sigra á Vesturlandi
og Reykjanesi og eins vinnur kona
sigur hjá Sjálfstæðisflokknum á
Austurlandi.
Mér finnst þetta vera skilaboð
kjósenda til Kvennalistans og
kvenna. Skilaboðin eru: Kvennalist-
inn er búinn að undirbúa jarðveg-
inn. Við erum sammála málflutningi
Kvennalistans. Nú viljum við að
konur í öðrum stjórnmálaflokkum
taki við og fylgi þessum málum
eftir.“
Finnst þér þá að Kvennalistinn
hafi lokið sínu hlutverki?
„Ja, það eru greinileg skilaboð
kjósenda til okkar um að við séum
að verða óþarfar á þingi. Aðrar
konur í öðrum stjórnmálaflokkum
eigi að taka við. Það er hlutverk
þeirra þingmanna Kvennalistans,
sem enn eru á þingi, að spyija þess-
ar konur hvernig þær ætli að vinna
að þessu.“
Jóhannes Geir
Sigurgeirsson
Tapar en er
í sigurliðinu
„ÞAÐ VAR ljóst
að það yrði mjög
erfitt fyrir mig- að
ná kjöri eftir að
búið var að færa
þingsætið í burtu.
Hins vegar sýndi
kosninganóttin að
það var aldrei von-
laust. Við erum að
fá þarna einhvetja bestu kosningu
sem við höfum fengið í kjördæminu,
með rétt um 37% atkvæða, þó að
hér séu sex framboð og þetta sé það
kjördæmi þar sem Þjóðvaki komi
sterkastur út,“ sagði Jóhannes Geir
Sigurgeirsson, fráfarandi þingmaður
Framsóknarflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra. Jóhannes féll eftir
fjögurra ára þingsetu.
„Mér er ofarlega í huga að Fram-
sóknarflokkurinn vann verulega á á
landsvísu. Það er aftur á móti
gremjulegt að vera í sigurliði en
detta út.“
Jóhannes Geir sagði ljóst að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði verið að
sækja í sig veðrið síðustu dagana
fyrir kosningar. Skoðanakannanir
hefðu sýnt flokkinn vera að tapa,
sem hefði leitt til þess að mikil harka
hefði færst í kosningabaráttu hans.
Skoðanakannanir hefðu því hjálpað
flokknum.
„í kosningabaráttunni gáfu þing-
menn Sjálfstæðisflokksins það nokk-
uð ákveðið út að kratarnir væru
ekki æskilegur samstarfsaðili áfram.
Ég veit ekki hvernig þeir ætla að
snúa sig út úr því. Að mínu mati
getur Davíð Oddsson ekki fengið
umboð til stjórnarmyndunar á öðrum
forsendum en þeim að viðhalda
þessu stjórnarmynstri. Ef hann telur
það ekki fært fínnst mér einboðið
að Halldór Ásgrímsson fái umboðið.“
Jóhann Ársælsson
Persónuleg-
ur ósigur
„ÉG ER mjög
óánægður með
niðurstöðuna á
Vesturlandi. Mér
fínnst að hún sé
persónulegur ósig-
ur fyrir mig. Það
sem mér fínnst
vera allra daprast
fyrir mig er að mér
finnst þetta vera ósigur fyrir þau
málefni sem ég hef staðið fyrir,
Eggert Haukdal, S-listanum á Suðurlandi
• •
Oðrum flokkum
veitt brautargengi
„FYRIR 16 árum buðu
tveir listar sjálfstæð-
ismanna fram á Suður-
landi og fengu samtals 3
menn kjörna. Það gat
gerst aftur, en menn kusu
að veita öðrum flokkum
brautargengi," sagði
Eggert Haukdal, fyrrver-
andi þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, sem
bauð fram sérstakan lista utan
flokka í Suðurlandskjördæmi að
þessu sinni, S-listann.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk tvo
menn kjörna í Suðurlandskjör-
dæmi, en hafði þrjá síðast, þegar
Eggert skipaði 3. sæti listans.
Hann náði ekki kjöri í sérfram-
boði sínu nú. Alþýðuflokkurinn
náði hins vegar einum manni inn,
en hafði engan síðast.
Aðspurður um skýringu á því
af hveiju hann náði ekki kjöri í
sérframboði nú, líkt og fyrir 16
árum, sagði Eggert ekki mikið
um það að segja, en vísaði þó til
þess að tveir efstu menn á lista
Sjálfstæðisflokksins, Þorsteinn
Pálsson, og Árni Johnsen, hefðu
unnið markvisst gegn sér. „í stað
þess að setja vél í gang og tryggja
þijá sjálfstæðismenn á þing, þá
var unnið gegn mér,“ sagði hann.
„Þorsteinn Pálsson
kom alþýðuflokksmann-
inum inn á þing, með
góðri aðstoð Áma Jo-
hnsen. Þessir menn þola
víst ekki sveitalubba eins
og mig nálægt sér; mann
með sjálfstæðar skoðanir
í landbúnaðarmálum,
Evrópumálum og vaxta-
málum. Ef einhver einn
höfuðsmiður er að því að Alþýðu-
flokkurinn kom manni inn á þing
fyrir Suðurland, þá er það Þor-
steinn Pálsson. Hann er ábyrgur
fyrir því að geta ekki stjórnað
Sjálfstæðisflokknum á Suður-
landi, fremur en sjávarútvegsmál-
unum.“
Eggert sagði að hann velti því
fyrir sér hvers vegna Þorsteinn
Pálsson hafi snúið við blaðinu í
lokabaráttunni og kennt Alþýðu-
flokknum um alla vonda hluti og
þar á meðal í landbúnaðarmálum.
„Ég hef verið þessarar skoðunar
í mörg ár, en ávallt talað fyrir
daufum eyrum allra í Sjálfstæðis-
flokknum, þar á meðal Þorsteins.“
Eggert sagði að hann vildi ekk-
ert um það segja nú hvort hann
. væri hættur afskiptum af stjórn-
málum.
Pétur Bjarnason
Skeikaði 35 atkvæð-
um að stjórnin félli
„ÞETTA var tvísýn og
spennandi barátta. í upp-
hafi hennar töldu margir
að keppnin myndi standa
milli mín og efsta manns
á lista Framsóknar-
flokksins, en ég taldi allt-
af að átökin yrðu milli
Vestfjarðalistans og Al-
þýðuflokksins, eins og
kom á daginn. Þar skeik-
aði ekki nema 35 atkvæðum að
stjórnin félli,“ sagði Pétur Bjarna-
son efsti maður á M-Iista, Vest-
fjarðalistanum.
Pétur sagði að hann væri
ánægður með útkomuna, því hann
og félagar hans hefðu átt við
ramman 'reip að draga.
„Við þurftum að beijast
um eitt sæti af fjórum
við flokksmaskínur, sem
eyða milljónum króna í
auglýsingakostnað. Þeg-
ar allt er virt var þetta
mjög skemmtileg kosn-
ingabarátta, en erfið."
Aðspurður hvort fram-
hald yrði á starfi M-Iista,
Vestljarðalistans, sagði Pétur að
það yrði rætt á næstunni. „Það
er ekki eingöngu í mínu valdi að
taka ákvörðun um framhald starfs
í þessum hópi, en við sem stóðum
að Vestfjarðalistanum munum
bera saman bækur okkar.“
þ.e.a.s. baráttuna gegn því órétt-
læti sem skapast af sjávarútvegs-
stefnunni," sagði Jóhann Ársæls-
son, fráfarándi þingmaður Alþýðu-
bandalagsins á Vesturlandi.
Jóhann náði ekki kjöri þrátt fyr-
ir að Alþýðubandalagið fengi 13%
atkvæða í kjördæminu. Hann hefur
verið þingmaður í fjögur ár. I kosn-
ingabaráttunni var lítið rætt um
að Jóhann væri i fallhættu. Jóhann
sagði að andstæðingar Alþýðu-
bandalagsins hefðu haldið því að
kjósendum að það væri óþarfi að
kjósa Alþýðubandalagið því að það
væri öruggt með einn mann. Kosn-
ingakerfið væri hins vegar þannig
að framboð með 13-15% fylgi
gæti lent í því að koma ekki inn
manni. Það hefði sýnt sig í þessum
kosningum.
„Ég tel viðunandi að Alþýðu-
bandalagið skuli hafa haldið sínu
þrátt fyrir þetta Þjóðvakaframboð
því að það var greinilegt, þó að
það væri upphaflega klofningur
út úr Alþýðuflokknum, að því var
stefnt mjög gegn Alþýðubandalag-
inu.
Mér finnst það hins vegar vond
niðurstaða að Sjálfstæðisflokkur-
inn skyldi ekki fá meiri skell.
Stjórnarflokkarnir geta þokkalega
við sína útkomu unað og stjómar-
andstaðan verður að horfast í augu
við að fólkið í landinu virðist vera
allt að því að lýsa trausti við þessa
stjórnarstefnu. Yfir því er ég dap-
ur.“
Jóhann sagðist spá því að ef svo
færi að þessi stjórn héldi áfram
um stjórnartaumana yrðu sjávar-
útvegsmálin henni mjög erfíð.
Árni Björn
Guðjónsson
Fengimi
tækifæri
til að boða
guðs orð
„VIÐ teljum að
þetta sé fyrsta
skrefið að stórum
sigri fyrir guðsríki
á Islandi miðað við
aðstæður okkar,
lítinn tilkostnað og
ýmsar árásir á
þetta _ framboð,"
segir Ámi Björn
Guðjónsson, efsti
maður á K-listanum, framboðslista
Kristilegrar stjómmálahreyfingar í
Reykjavík.
K-listinn bauð fram í Reykjavík
og á Reykjanesi í alþingiskosning-
unum og hlaut samtals 316 atkvæði
eða 0,19% greiddra atkvæða.
Vonbrigði
Árni Björn sagði að framboð
Kristilegrar stjórnmálahreyfingar
hefði verið kraftaverk. „Við fengum
góð tækifæri til að boða guðs orð í
þjóðmálaumræðunni og segja má að
þótt þessi fáu atkvæði hafi valdið
okkur vonbrigðum er þetta þó samt
sem áður sigur og í hjarta okkar er
mikil eftirvænting um áframhaldið,"
segir hann.
Árni Björn benti á að þetta væri
í fyrsta skipti á íslandi sem kristi-
legt framboð kæmi fram á þennan
hátt og hann sagði að ríkur vilji
væri til að halda þeirri starfsemi
áfram. Sagði hann að önnur framboð
hefðu haft yfir að ráða tugmilljóna
kosningasjóðum en Kristileg stjórn-
málahreyfíng hefði aðeins haft fá-
einar krónur til ráðstöfunar og bætti
því við að með auglýsingamætti
hefði verið valtað yfir þann boðskap
sem kristilega framboðið hefði verið
að koma á framfæri.