Morgunblaðið - 11.04.1995, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995
ALÞINGISKOSNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Pétur H. Blöndal
Kjósendur
hafa skilning
á stefnu
flokksins
„ÉG ER mjög
ánægður með nið-
urstöðuna. Mér
sýnist að kjósend-
ur hafi almennt
skilning á þeirri
stefnu sem Sjálf-
stæðisflokkurinn
hefur framfylgt,
að styrkja at-
vinnulífið, undirstöðu þjóðfélagsins
og velferðar," segir Pétur H. Blön-
dal, nýr þingmaður flokksins í
Reykjavík.
„Það var ljóst að útspil Ólafs
Ragnars með stjórnarsáttmálann
fylkti mönnum betur saman, því
menn sáu hinn kostinn á móti,“
segir hann.
Pétur segist helst munu vilja
taka á ríkissjóðshallanum. „Ég
ætla að sjá hann hverfa, enda ekk-
ert annað en skattar á framtíðina.
Einnig vil ég athuga hvort einhver
möguleiki sé til þess að lækka
skattlagningu einstaklinga og taka
fyrir sérstaklega umhverfi fyrir-
tækja. Ég geri mér hins vegar
grein fyrir því að þetta er ekki
kleift nema til komi einhver niður-
skurður á útgjöldum. Þetta er
spurning um að gera velferðarkerf-
ið skilvirkara og meiri kröfur um
hagræðingu. Oft eru þeir sem vinn-
andi eru verr settir en þeir sem
eru á bótum. Einnig má velta fyrir
sér þeim möguleika að taka á
ákveðinni oftryggingu sem átt hef-
ur sér stað,“ segir Pétur.
Hjálmar Ámason
Úrslitin mik-
ið gleðiefni
„VIÐBRÖGÐIN
lýsa sér í mikilli
gleði yfir því hvað
Framsóknarflokk-
urinn hefur átt
góðu gengi að
fagna út um allt
land og ekki síst
, hérna á suðvestur-
horninú,“ _ segir
Hjálmar Árnason skólameistari og
nýr þingmaður Framsóknarflokks í
Reykjaneskjördæmi.
Hjálmar tók fram að flokkurinn
hefði verið að fara í gegnum breyt-
ingarskeið og greinilega náð til
almennings. „Ekki síst er ég
ánægður með hvað margt ungt
fólk kom og starfaði mikið og vel
með okkur í kosningabaráttunni.
Ég er mjög þakklátur öllum þeim
sem unnu að þessum góða sigri
fyrir flokkinn," sagði hann og
bætti við að um leið fyn<ji hann
fyrir þreytu og óskaplegum fegin-
leika yfir því að kosningamar væru
að baki og lífið yrði eðlilegt á nýj-
an leik.
Hann segist ekki geta neitað því
að blendnar tilfinningar geri vart
við sig. „Ég sé fram á að fara nú
f leyfi frá þeim vinnustað sem ég
hef helgað mig um nokkurra ára
skeið og liðið afskaplega vel í mjög
góðum hópi. Ákveðinn söknuður er
strax farinn að gera vart við sig í
hjarta mér.“
Hjálmar nefnir viðskilnað ríkis-
stjórnarinnar þegar nánar er
spurst fyrir um gott gengi flokks-
ins. „Gegn því er mjög góð mál-
efnaáhersla hjá Framsóknar-
flokknum, ferskleiki og heiðarleiki
í baráttunni. Síðan nefni ég traust-
an leiðtoga," segir hann. Hann
treystir sér ekki til að spá um
næstu ríkisstjórn. „En greinilega
eru ýmsir möguleikar í stöðunni."
ur Sjálfstæðisflokks í Reykjanes-
kjördæmi.
Kristján telur að þyngst hafi veg-
ið, þegar upp var staðið, að almenn-
ingur hafi ekki viljað taka neina
áhættu varðandi stöðugleikann.
„Þess vegna hafi mönnum, ein-
hverjum, snúist hugur, hafi þeir
hugsað sér að kjósa einhvern annan
flokk en Sjálfstæðisflokkinn. Ég
held því að niðurstöður kosning-
anna hafí verið sigur skynsemisafl-
anna í þjóðfélaginu."
Hann segir að Sjálfstæðisflokk-
urinn hafi rekið afskaplega jarð-
bundna kosningabaráttu og hún
hafi ekki byggst á loforðum. „Ég
held að segja megi að nú hafi, í
fyrsta skipti, verið farið út í kosn-
ingabaráttu á því að segja einfald-
lega að flokkurinn ætli að standa
sig vel. Á meðan lofa aðrir flokkar,
sérstaklega vinstri flokkarnir, gulli
og grænum skógum. Sjaldnast hef-
ur gengið í íslenskum stjórnmálum
að reka kosningabaráttu án loforða.
En mér sýnist að fólk meti hiuti
öðruvísi. Ekki í ákveðnum verkefn-
um heldur heildarárangri og öryggi
fjölskyldunnar."
Ólafur Örn
Haraldsson
Eignm
töluverða
möguleika
„ÞAÐ má segja að
eftir þessa ógn sem
kom þarna á miðri
kosninganóttu þá
finnst okkur að við
höfum unnið
ákveðinn vamar-
sigur. Þetta fylgi
er það sem skoðan-
akannanir spáðu
okkur en við höfðum sjálfar gert
okkur vonir um að fá a.m.k. fjórar,
helst fímm, þannig að við erum nátt-
úrulega engan veginn ánægðar.
Ég tel að við eigum töluverða
Einar Oddur
Kristjánsson
Fylgjandi
stjórnarsam-
starfinu
áfram
„ÉG VELKTIST
ekki í vafa um að
ég vildi að þessi
stjórn héldi áfram
og ég tel að það
hafí tekist. Það er
um að gera að
menn skoði að-
stæður sínar í ró-
legheitunum,"
sagði Einar Oddur Kristjánsson,
annar maður Sjálfstæðisflokksins á
Vestfjörðum.
Um önnur stjórnarmynstur sagð-
ist Einar Oddur ekkert ætla að
segja. „Ég sagði það í kosningabar-
áttunni héma á Vestfjörðum að ég
vonaðist til að við gætum haldið
áfram með Alþýðuflokknum eða þá
Alþýðubandalaginu vegna þess að
ég trúi því að innan þessara flokka
beggja séu uppi þau sjónarmið og
skilningur á því að við verðum að
taka þessa fískveiðistjórn okkar til
gagngérrar endurskoðunar. Það
þýðir ekkert að lappa upp á hana.“
Um ástæður niðurstaðna kosn-
inganna sagði Einar Oddur að
frammistaða Sjálfstæðisflokksins
hefði verið mjög glæsileg. „Ríkis-
stjórnin hefur unnið ákaflega gott
starf á sviði efnahagsmálanna við
mjög erfíðar aðstæður og þióðin
sýnir það í kosningunum að hún
treystir henni til áframhaldandi
vem. Hún veit hvað hún hefur en
veit ekki hvað hún hreppir ef hún
skiptir um og það gildir fyrir þessa
þjóð eins og aðrar; förum varlega
og gætum okkar í þessum harða
heimi, ég held að það hafi verið
ástæða fyrir niðurstöðunni, fyrst
og fremst.“
Aðspurður um það hvemig legð-
ist í hann að fara á þing, þegar
hann væri kominn í þau spor, sagð-
ist Einar Oddur sitja uppi með þá
ákvörðun sína að fara í framboð.
„Það er óskaplega margt sem kallar
á og úr því að ég tók þessa ákvörð-
un þá fer ég í slaginn méð oddi og
egg,“ sagði Einar Oddur.
Svanfríður Inga
Jónasdóttir
Nýir þing-
menn gefa
fyrirheit um
breytingar
„HVAÐ Þjóðvaka
varðar þá held ég
að við hér í kjör-
dæminu getum
sæmilega við unað
miðað við hvernig
þetta kom út á
landsvísu," sagði
Svanfríður Inga
Jónasdóttir þing-
maður Þjóðvaka, en hún skipaði 1.
sæti flokksins í Norðurlandskjör-
dæmi eystra.
„Á landsvísu er þetta auðvitað
meira heldur en okkur hafði verið
gefið til kynna að það gæti orðið.
Það höfðu verið byggðar upp vænt-
ingar varðandi það að þetta gæti
orðið öðruvísi. Síðan gerast þarna
hlutir sem taka af okkur ráðin síð-
ustu dagana þannig að við náum
ekki okkar vopnum," sagði Svan-
fríður.
Hún sagði augljóst að nýjar
stjómmálahreyfingar væru mun
viðkvæmari fyrir allri áreitni heldur
en eldri og rótgrónari framboð, og
Þjóðvaki hafi hreinlega ekki haft
tíma til að vinna úr erfiðleikum sem
upp hafi komið á síðustu dögum.
„Ég.vil meina að þessi niðurstaða
sé fyrst og fremst þess vegna, en
málefnalega séð höfum við átt af-
Fólk treystir
á hófsama
framfara-
stefnu
„FRAMSÓKNAR-
FLOKKURINN er
traustur miðju-
flokkur og ég tel
að fólk treysti á
fijálslynda og hóf-
sama framfara-
stefnu, ekki öfgar
til hægri eða
vinstri," segir Ól-
afur Örn Haraldsson, annar maður
á lista Framsóknarflokksins í
Reykjavík í kosningunum.
„Urslitin eru afskaplega ánægju-
leg á landinu öllu, einkum í Reykja-
vík og Reykjanesi. Þetta er söguleg-
ur árangur hjá Framsóknarflokkn-
um, að verða næststærsti flokkur-
inn í þéttbýli. Framtíðin ræðst á
miðjunni, í þéttbýlinu hér við Faxa-
flóa.“
Ólafur segir ennfremur að marg-
ir hafí hug á ríkisstjórnarsamstarfi
við Sjálfstæðisflokkinn þótt fleiri
komi einnig til greina. „En það sem
mér er efst í huga er að verða að
gagni. Vinna vel og bregðast ekki
trausti þeirra sem hafa stutt mig.
Ég mun að sjálfsögðu beita mér í
áherslumálum flokksins, sem eru
atvinnumál, kjaramál og endurreisn
heimilanna. Ennfremur mun ég
leggja sérstaka áherslu á málefni
fjölskyldunnar, menntamál og um-
hverfismál," segir Ólafur Örn.
Guðný
Guðbjömsdóttir
skaplega góðan hljómgrunn," sagði
hún.
Svanfríður sagðist fyrst og
fremst túlka úrslit kosninganna á
þann veg að kjósendur væru að
segja með þeim að ekki liggi á að
sækja um aðild að Evrópusamband-
inu. í öðru lagi sýndu niðurstöðurn-
ar ákveðna íhaldssemi hjá kjósend-
um. Aðspurð um hvaða flokka hún
teldi líklegasta til að mynda ríkis-
stjórn sagði hún það slá sig að þeg-
ar upp yrði staðið yrði um stjómar-
samstarf Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks að ræða.
Hún sagði að þrátt fyrir að úr-
slit kosninganna bentu til þess að
gamla flokkakerfíð héldi velli þá
gæfi hinn nýi þingmannahópur sem
væri að koma inn á alþing fyrirheit
um -breytingar og nýjar áherslur í
stjórnmálum
„Ég tek eftir því að leiðtogar
gömlu flokkanna keppast mjög um
að sjá þetta allt í sögulegu ljósi og
horfa mjög til baka, en ég er ekki
viss um að þetta unga fólk sem er
að koma inn meti hlutina eins. Ég
er ekki viss um að það vilji endilega
láta múra sig inn í söguna, heldur
hafí það allt aðrar væntingar og
vilji horfa fram á við og jafnvel
gera hlutina öðruvísi og gera nýja
hluti. Við það bind ég vonir,“ sagði
Svanfríður.
Kristján Pálsson-
Sigur skyn-
semisaflanna
„MÉR fínnst að
flokkurinn hafi, á
landsvísu og
Reykjanesi, unnið
mikinn sigur.
Komið hefur í ljós
að almenningur í
landinu hefur met-
ið stöðu ríkis-
stjórnarinnar og
hefur trú á því að hún geti komið
meiru til leiðar sem að skiptir þjóð-
ina máli,“ segir Kristján Pálsson
fyrrum bæjarstjóri og nýr þingmað-