Morgunblaðið - 11.04.1995, Síða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995
ALÞINGISKOSNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins
Þarf samhenta
ríkisstjórn sem
tekur á málum
Morgunblaðið/Sverrir
HALLDOR Asgrímsson og Olafur Orn Haraldsson verðandi þing-
maður fylgdust með kosningatölum á Grand Hótel Reykjavík.
„VIÐ framsóknarmenn erum mjög
ánægðir með þessi úrslit. Við erum
afar þakklátir öllu okkar fólki og
þeim sem hafa veitt okkur þennan
mikla stuðning. Við vorum vissulega
að vona á tímabili að við værum
með 16 þingmenn og hefðum því
fellt ríkisstjórnina. Það sýnir að lyk-
illinn að því að ríkisstjórnin félli var
að styrkja Framsóknarflokkinn,"
sagði Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, í samtali við
Morgunblaðið um kosningaúrslitin.
Hann sagði að staðan eftir kosn-
ingar væri sú að komin væri upp
pattstaða. „Ríkisstjórnin hefur
meirihluta og það hefur ekkert kom-
ið fram hjá stjórnarflokkunum hvað
þeir hyggjast gera annað en að
ræða saman næstu daga og jafnvel
vikur. Það er mjög lítið að segja um
þetta fyrr en þetta kemur skýrar
fram. Þeir geta setið og hafa til
þess meirihluta. Við vitum samt um
mikinn málefnaágreining á milli
flokkana sem hlýtur að reyna á á
einhveiju stigi, en slíkur málefna-
ágreiningur er að sjálfsögðu líka
milli annarra flokka, þannig að það
verður ekki auðvelt að mynda hér
meirihlutastjóm sem getur tekið á
þeim viðfangsefnum sem blasa við,“
sagði Halldór ennfremur.
Aðspurður hveiju hann þakkaði
góðan árangur Framsóknarflokks-
ins í kosningunum, sagðist hann
þakka það góðum undirbúningi og
ágætu starfi, auk þess sem mikil
breyting hefði orðið á framboðslist-
um flokksins, sem tekið hefði verið
eftir. „Unga fólkið kom mikið til
okkar og það skapaðist góður andi
í kosningabaráttunni og við fundum
alls staðar meðbyr. Ég held að á
tímabili hafi stefnt í jafnvel enn
betri útkomu hjá okkur, en þær
skoðanakannanir sem voru birtar
síðustu dagana hjálpuðu Sjálfstæð-
isflokknum mikið og þá sérstaklega
kosningaspá DV sem ekki var
grundvöllur fyrir, vegna þess að það
var öðru vísi ástand nú en í síðustu
kosningum," sagði Halldór.
Haildór benti á að meirihluti þjóð-
arinnar styddi ekki ríkisstjómina þó
hún hefði meirihluta á Alþingi.
„Mér finnst það hafa komið fram í
þessum kosningum að fyrir því er
mikill vilji að Framsóknarflokkurinn
verði í ríkisstjórn og þess vegna er
eðlilegt að hann fái tækifæri til að
reyna myndun ríkisstjórnar. Við
getum samt ekki gengið framhjá
því að Sjálfstæðisflokkurinn kemur
sterkur út úr þessum kosningum
og hefur því öfluga stöðu,“ sagði
Halldór aðspurður um það hvort
hann teldi eðlilegt í Ijósi kosninga-
sigurs flokksins að Framsóknar-
flokkurinn fengi umboð til stjórnar-
myndunar.
Halldór sagði að ný ríkisstjórn
horfði fram á erfið verkefni í ríkis-
fjártnálum og atvinnuástand væri
slæmt. Stefnan í atvinnumálum
skipti mjög miklu máli á næstu
árum. Komið hefði fram margvís-
iegur ágreiningur í sjávarútvegs-
og landbúnaðarmálum.
Samhent stjórn nauðsynleg
„Sú ríkisstjórn sem tekur við verður
að jafna þann ágreining þannig að
ekki skapist hér óvissuástand á nýj-
an leik um framtíð þessara mikil-
vægu atvinnugreina. Sjávarútveg-
urinn hefur mátt búa við mikla
óvissu á síðasta kjörtímabili, sem
er hamlandi fyrir hann, og landbún-
aðurinn hefur búið við stöðuga
óvissu um sína framtíð. Það er mjög
erfitt fyrir þessar atvinnugreinar að
skipuleggja sín mál og ganga frá
framtíðaráætlun við þannig kring-
umstæður og ef það á að takast að
örva fjárfestingu hér, sem við þurf-
um á að halda, þá er það lykilatriði
að það ríki vissa um starfsumhverfi
atvinnuveganna. Ég tel að það þurfí
hér samhenta ríkisstjórn sem tekur
á málum og þar skiptir ekki megin-
máli ijöldi þeirra þingmanna sem
styðja hana. Aðalatriðið er að hún
hafi traustan meirihluta,“ sagði
Halldór.
Hann sagðist að lokum vilja koma
þakklæti á framfæri til allra þeirra
sem hefðu hjálpað til og unnið með
þeim í kosningabaráttunni.
Morgunblaðið/Sverrir
JÓN Baldvin Hannibalsson og Bryndís Schram eiginkona hans
koma til kjörstaðar sl. laugardag.
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður
Alþýðuflokksins
Atlögu að flokkn
um hrundið
„ALÞÝÐUFLOKKURINN hefur
með þessum úrslitum þrátt fyrir
allt hrundið þeirri atlögu sem að
honum var gerð og hann er heil-
steyptari eftir en áður, þannig að
jafnaðarmenn þurfa ekki að kvíða
framtíðinni. Þessir atburðir hafa
styrkt flokkinn, eflt samstöðu innan
hans og kosningabaráttan sýndi að
þetta er nokkuð harðsnúinn flokkur
í kosningabaráttu," sagði Jón Bald-
vin Hannibalsson utanríkisráðherra
og formaður Alþýðuflokksins.
Hann sagðist vilja láta reyna á
áframhald núverandi stjórnarsam-
starfs.
Hann sagði kosningaúrslitin
svara spurningunni um ríkisstjórn-
ina, hún héldi velli. „Af stjórnarand-
stöðuflokkunum var það Fram-
sóknarflokkurinn einn sem hélt velli.
Alþýðubandalagið stóð í stað og
Kvennalistinn tapaði verulega. Ef
við lítum á stjórnarflokkana þá varð
Sjálfstæðisflokkurinn fyrir minni-
háttar fylgistapi sem skipti ekki
neinum sköpum. Alþýðuflokkurinn
varð hinsvegar fyrir þó nokkru fylgi-
stapi. Skýringin á því er fyrst og
fremst ein. Það er sú atlaga að
flokknum sem fyrrverandi varafor-
maður hans og ráðherra í sjö ár,
Jóhanna Sigurðardóttir, gerði. Það
voru hennar viðbrögð við því að
hafa tapað formannskosningu. Hún
fór í fýlu og rauk á dyr af því að
hún gat ekki sætt sig við niðurstöðu
lýðræðislegra kosninga. Hún tók
þessar ákvarðanir í þeirri trú að
skoðanakannanir mældu henni mik-
ið fylgi og á sama tíma staðfestu
kannanir að Alþýðuflokkurinn væri
í mjög veikri stöðu, hann mældist í
flestum könnunum á síðasta hausti
um 4%. Í ljósi þessa má segja að
Alþýðuflokkurinn hafí háð mjög
árangursríka kosningabaráttu og
rétt mjög hlut sinn frá því sem var
áður en kosningabaráttan hófst,"
sagði utanríkisráðherra.
Jón Baldvin sagðist hafa efa:
semdir um framtíð Þjóðvaka. „í
þingflokknum er einn hægri krati
sem yrði ysti til hægri í þingflokki
Alþýðuflokksins, einn Birtingarfé-
lagi á útleið úr Alþýðubandalaginu,
en Birtingarmenn eiga nokkuð nána
skoðanalega samstöðu með okkur
jafnaðarmönnum, ein óánægð fram-
sóknarkona sem féll í prófkjöri og
önnur óánægð kona sem féll í form-
annskjöri. Það er vandséð hvað
tengir þetta til frambúðar enda þyk-
ist ég vita það í ljósi reynslunnar
að þessi tilraun Jóhönnu Sigurðar-
dóttur sé búið spil og má um það
segja hið fomkveðna: Sér grefur
gröf þótt grafi.“
Vill láta reyna á
áframhaldandi
stjórnarsamstarf
Formaður Alþýðuflokksins sagði
það nánast sjálfgefið að stjórnar-
' flokkar ræddu saman um framhald-
ið þegar ríkisstjórn héldi velli í kosn-
ingum, ekki síst þegar hún hefði
náð góðum árangri. Sjálfur sagðist
hann vilja láta reyna á áframhald-
andi stjórn þessara flokka.
Spurður að því hvort mögulegt
væri að halda stjórnarsamstarfínu
áfram í ljósi þess nauma meirihluta
sem ríkisstjórnin hefði og ágrein-
ingsmála sem upp komu í kosninga-
baráttunni sagði Jón Baldvin það
ekkert nýmæli að ágreiningur væri
um landbúnaðarmálin. Slík ágrein-
ingsmál hafi komið upp á stjórnar-
tímanum. Varðandi fískveiðistjórn-
•arstefnuna sagði hann að þar væri
ekki einungis ágreiningur milli
flokkanna heldur einnig innan Sjálf-
stæðisflokksins og minnti á yfirlýs-
ingar þingmanna flokksins á Vest-
fjörðum um að þeir myndu ekki
styðja ríkisstjórn sem héldi óbreyttri
stjórnarstefnu. Hann nefndi einnig
afstöðuna til úthafsveiðanna. ■ Þar
taldi hann að frekar væri um að
ræða ágreining Þorsteins Pálssonar
við mótaða stefnu ríkisstjórnarinnar
en ágreiningsmál milli flokkanna.
Ölafur Ragnar Grímsson, formaður
Alþýðubandalagsins
Alþýðubandalagið
getur að mörgu
leyti vel við unað
„AÐ MÖRGU leyti þá tel ég að
Alþýðubandalagið geti unað vel við
þessa niðurstöðu. Það var gerð til-
raun til þess að ýta Alþýðubanda-
laginu til hliðar sem_ forystuafli
félagshyggjufólks á íslandi með
stofnun Þjóðvaka og flokkurinn
stóð það af sér með mjög myndar-
legum hætti og hélt sínum styrk í
þessum kosningum,“ sagði Ólafur
Ragnar Grímsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, aðspurður um
ilrslit kosninganna.
„Um leið gerist það að flokkur-
inn er á nýjan leik orðinn þriðji
stærsti stjórnmálaflokkurinn í
landinu. Það var staða sem við
höfðum haft í áratugi en misstum
hana 1987 og fáum hana á nýjan
Ieik. Það er mjög mikilvægt í ljósi
þess að Alþýðubandalagið er í
framhaldi af þessum kosningum
tvímælalaust sterkasti aðilinn á
vinstra væng stjórnmálanna og
meðal félagshyggjufólks í landinu,“
sagði hann ennfremur.
Hann sagði að úrslit kosning-
anna sýndu einnig fram á rétt-
mæti þess málflutnings sem Al-
þýðubandalagið hefði haft í frammi
á síðastliðnu hausti, að ef það ætti
að vera einhver von til þess að fé-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÓLAFUR Ragnar Grímsson
og Guðrún Þorbergsdóttir
eiginkona hans á kjörstað.
lagshyggjufólk fengi sterka stöðu
að loknum kosningum þá yrði að
koma til formleg samvinna á
vinstra vængnum. Þetta hefðu þau
kynnt bæði fyrir Kvennalistanum,
Jóhönnu Sigurðardóttur og ýmsum
öðrum.
„Bæði Kvennalistinn og Jóhanna
höfnuðu þeirri samvinnu þá, en ég
held að úrslit kosninganna sýni að
það mat þeitra var rangt. Þess
vegna hafa kosningaúrslitin haft
það í för með sér að skýra mjög
rækilega myndina á vinstra væng
íslenskra stjórnmála. Öll framþró-
un þar hlýtur að gerast með veiga-
mikilli þátttöku Alþýðubandalags-
ins og forystu okkar og samvinnu
við aðra um það efni. Að þessu
leyti er ég ágætlega sáttur við
þessa niðurstöðu, þó mér þyki ýms-
ir einstakir hlutir miður í úrslitun-
um,“ sagði Ólafur Ragnar.
Hann sagði að sér fyndist mjög
miður að missa Jóhann Ársælsson
og Guðrúnu Helgadóttur út af
þingi, en fagnaði því að Ögmundur
Jónasson myndi bætast í liðssveit
Alþýðubandalagsins á Alþingi, því
það myndi muna mjög um hann í
þingsölum.
Aðspurður hvort það væri ekki
nokkurt áfall að flokkurinn skyldi
ekki hafa unnið á í kosningunum
eftir að hafa verið fjögur ár í stjórn-
arandstöðu sagði Ólafur Ragnar
að hann teldi svo ekki vera, því í
sex kjördæmum hefði fólk, sem
hefði verið í forystusveit Alþýðu-
bandalagsins annað hvort verið
leiðtogar eða í allra efstu sætum
framboðslista Þjóðvaka.
Fjórflokkakerfið
sterkara en áður
Ólafur sagði að fjórflokkakerfíð
kæmi sterkara út úr þessum kosn-
ingum en áður. Aðspurður hvað
myndi gerast í framhaldinu sagði
Ólafur Ragnar að formlega hefðu
ríkisstjómarflokkarnir meirihluta.
„Hann er hins vegar greinilega, að
mínum dómi, veikur. Hann er ekki
aðeins veikur vegna þess að hann
hvíli á einum manni heldur líka
vegna þess að misbrestimir milli
flokkanna í nánast öllum meginmál-
um eru slíkir að það hlýtur að verða
mjög erfitt að búa til verkhæfa ríkis-
stjórn úr þeim efniviði. Ég held líka
að Alþýðuflokkurinn standi frammi
fyrir töluverðum vanda, hvert hann
ætlar að halda. Staða Alþýðuflokks-
ins eftir þetta tap í samvinnu við
Sjálfstæðisflokkinn er auðvitað
miklu veikari en hún var eftir kosn-
ingarnar 1991, en það er hlutur sem
þeir hljóta að þurfa að meta í eigin
röðum.“