Morgunblaðið - 29.01.1993, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 29.01.1993, Blaðsíða 36
M toóké^NWAoifl FðWubXkin!;^ &(.QjfA$#ÁM9Mi Jón Oddgeir Jóns- son - Minning Væringjadugur, vináttuhupr vaxi og þroskist við allt okkar starf. Hrinda skal höfga, hugsjónir göfga, hreystinga efla, vom feðranna arf. Áfram! ofar nú höldum, áfram, hátt skal markið sett. Þjóðin skal það skilja, að skátar allir vilja styðja aðeins satt og rétt. Við þráum allir frelsi og fjallalífið glæst og fapandi heilsum þeim tindi, er pæfir hæst. Því víðsýnið er Væringjanna þörf og vekur bestan skilning um líf og störf. J.O.J. Bræðralagssöngur skáta og þessar vísur, ásamt fjölda annarra vísna, eru til eftir Jón Oddgeir og voru sungnar við öll tækifæri þegar skát- ar koma saman. Það var vinur minn og skátaforingi, Jón Oddgeir Jóns- son, sem ég minnist í dag. Jón Oddur fæddist 6. september 1905 í Reykjavík, þar sem hann ólst upp. Hann giftist 25. nóvember 1933, eftirlifandi konu sinni, Fanneyju Jónsdóttur, og eignuðust þau einn son, Baldur Hrafnkel kvikmynda- gerðarmann. Hinn 1. mars 1937 gerðist Jón Oddgeir starfsmaður Slysavarnar- félags íslands og byggði upp starf sem kallað var slysavamir á landi. í janúarbyrjun 1946 hófst síðan upp- bygging á slysavömum í umferðinni, en Slysavamarfélagið hafði þá aukið starfsemi sína umfram það að ein- beita sér að slysavömum á sjó. I þessu starfí hjá Slysavarnarfé- laginu naut Jón Oddgeir sín mjög vel. Hann hafði kynnst því hve mikil- vægt það er að geta hjálpað öðrum. Það var á þessum tíma sem hann byrjaði að kenna hjálp í viðlögum um land allt. Jón Oddgeir skrifaði fjölda bóka um það efni og endurnýj- aði alltaf bækur sínar þegar einhveij- ar og jafnvei einfaldar breytingar komu fram. Hjálp í viðlögum var honum mikið hjartans mál, að geta hjálpað öðrum og geta leiðbeint til að forðast slysin. Það var honum allt. Enda þegar hann var kominn á aldur í vinnunni tók hann að sér að kenna hjálp í viðlögum hjá Náms- flokkum Reykjavíkur. Þegar Jón Oddgeir hætti hjá Slysavamarfélag- inu 1958, hóf hann störf hjá Heil- brigðiseftirliti Reykjavíkur. Hann starfaði síðan hjá Krabbameinsfélag- inu frá 1960 til 1978. Á þeim ámm ferðaðist hann mikið um landið, sýndi kvikmyndir og flutti erindi um vam- ir gegn krabbameini. I einkalífínu var Jón Oddur mikill útivistarmaður og naut sín vel í úti- legum og göngum á fjöll og jökla. Hann var mjög félagslyndur maður og fékk mesta útrás í skátastarfínu. Jón Oddgeir gerðist skáti 1921, flokksforingi 1925, sveitarforingi nokkru síðar, deildarforingi 1931 og félagsforingi 1936. Útivist, skáta- stárf og fræðsla í hjálp í viðlögum áttu hug hans allan. Jón Oddgeir gaf út blað fyrir unglinga og sérstaklega skáta um útilífíð. Það kallaði hann Úti og átti mikilli velgengni að fagna. Jón Oddgeir var mikill frumkvöð- ull og hugsaði lengra en margur annar á þessum tíma. Hann stofnaði blóðgjafasveit skáta og í kjölfarið Hjálparsveit skáta, sem nýlega hélt upp á 60 ára afmæli sveitarinnar. Hann var fyrsti foringi Hjálparsveit- arinnar. Scifræðingar í blóniaskrcytiiiguin við »11 ia'kilicri ÍIÉ) blómaverkstæði tllNNAfe Jón Oddgeir var fyrsti maðurinn sem fór með hóp skáta í göngu yfir Langjökui. Þá byggði hann skála með nokkrum skátafélögum sínum á Tindafíjallajökli og á hveiju ári fór hann í skálann og gisti þar um páska. Þá var hann einn þeirra sem byggðu skátaskálann Jötun í Skarðsmýrar- fjalli, en þar voru nokkrir skátaskál- ar byggðir. Jón Oddgeir átti við langvarandi veikindi að stríða og þegar maðurinn með Ijáinn kom losnaði hann við þessa erfiðleika og ég veit að honum líður vel núna. Ég vil með þessum orðum minnast hans með þakklæti fyrir samstarfið og allar leiðbeiningamar sem ég fékk í skátastarfínu og sem starfsmaður Slysavamafélags Islands. Guð blessi minningu Jóns Odd- geirs. Guðmundur G. Pétursson. Kveðja frá Landsbjörg Látinn er í Reylq'avík Jón Oddgeir Jónsson. Rúm sextíu ár eru liðin frá því að hann, ásamt félögum sínum úr Skátafélaginu Væringjum, stofn- aði fyrstu Hjálparsveit skáta á land- inu. Þetta framtak var mikið gæfu- spor, ekki síst fyrir þá íjölmörgu sem notið hafa aðstoðar sveitarinnar. Jón Oddgeir var einstakur hug- sjónamaður. Störf hans bera því hvarvetna vitni. Óbilandi atorka hans lýsti sér einna best í Jræðslu hans um hjálp í viðlögum. í áratugi gaf hann út fræðsluefni á því sviði og var óþreytandi við að halda nám- skeið fyrir félög, skóla og stofnanir. Jón var frumheiji á sviði björgun- armála. Með atorku og dugnaði hreif hann aðra með sér. Framtak hans fyrir rúmum sex áratugum hefur borið ríkulegan ávöxt. Fjölmargir hafa fetað í fótsporin og nú eru starf- andi öflugar björgunarsveitir víðs- vegar um landið. Landsbjargarfélagar minnast Jóns Oddgeirs með mikilli virðingu og þakklæti. Eftirlifandi eiginkonu hans og fjölskyldu sendum við innilegar samúðarkveðjur. Landsbjörg, landssamband björgunarsveita. Einn af frumheijum skátahreyf- ingarinnar á íslandi er nú „farinn heim“, eins og við skátar segjum. Jón Oddgeir átti langa samleið og forustu hjá skátum. Ég er nú búinn að vera skáti í hátt á 6. tug ára og Jón Oddgeir var vel þekktur þegar ég byijaði. Hann var strax forustumaður um ferðalög um óbyggðir landsins og sjálfvalinn foringi í hópi skáta þegar mikið stóð til. Ef telja ætti upp öll þau mörgu verkefni sem Jón Oddgeir hafði for- ustu um yrði það langt mál. Margt af þessu þótti mikið undur og ævin- týraljómi stóð af Jóni í augum okkar yngri skátanna. Hann skipulagði og stjórnaði ferð- um eldri skáta á fjarlæg fjöll ogjökla. t Ástkær móðir okkar, LILJA JÓNASDÓTTIR, Þórunnarstræti 134, Akureyri, lést þann 28. janúar í Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar. Börnin. Eiginmaður minn, t HAUKUR B. GUÐJÓNSSON, Glæsibæ 17, Reykjavík, er látinn. Fyrir hönd aðstandenda, Svanborg Jónsdóttir. t Móðir okkar, GUÐLAUG Ó. ERLHMGSDÓTTIR, Njálsgötu 90, Reykjavík, lést í Vífilsstaðaspítala fimmtudaginn 28. janúar. Hrafn Ó. Magnússon, Erlingur H. Magnússon. Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 19090 t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR, áður Njarðargötu 61, Reykjavfk, lést 27. janúar. Magnea J. Þorsteinsdóttir, Sigurður H. Þorsteinsson, Hjördís Magnúsdóttir, Guðmundur Þorsteinsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegt þakklæti til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför systur okkar, MARGRÉTAR VALDIMARSDÓTTUR, Hlíf, ísafirði. Starfsfólki sjúkrahússins og Hlífar þökkum við fyrir góða þjónustu. Fyrir hönd ættingja og vina, Þórunn Valdimarsdóttir, Friðrik Valdimarsson, Nilsfna Þ. Larsen. Vegalengdir og útbúnaður var annar í þá daga. Alltaf komu allir heilir úr þessum ferðum undir stjórn Jóns Oddgeirs. Hann skipulagði starf eldri skáta — R.S. skáta í skátafélaginu Vær- ingjum, sem var annað af tveimur skátafélögum í Reykjavík fram til 1938, er þau voru sameinuð. Stærstur skerfur Jóns Oddgeirs var þó forusta hans í þjónustustörf- um skáta, sem beindist að slysavörn- um og kennslu í því hvernig bregð- ast ætti við ef slys bæri að höndum. Fyrst voru ótal námskeið hans meðal skáta og stofnun Hjálparsveit- ar skáta í Reykjavík upp úr 1930. Það var örugglega fyrsta hjálpar- sveitin sem beindi starfí sínu ein- göngu að björgun á landi. Menn höfðu ekki gert sér grein fyrir því að slys verða ekki síður þar en á sjó og fór tíðni þeirra ört vaxandi með aukinni umferð, vélvæðingu og tækni. Það varð svo til þess að Jón Odd- geir skrifaði bókina „Hjálp í viðlög- um“. Þessi bók og innihald hennar vakti mikla athygli og kom út nán- ast árlega í nýjum útgáfum með nýjungum sem Jón fylgdist vel með. Jón Oddgeir fór svo að halda nám- skeið fyrir almenning í hjálp í viðlög- um vlðs vegar um landið. Varð þá fljótlega starfsmaður Slysavamafé- lags íslands. Gerði þetta mikið gagn og hefur svo verið ávallt síðan. Lengi býr að fyrstu gerð. Þá var hann stofnandi Blóðgjaf- arsveitar skáta, sem starfaði mikið áður en Bióðbankinn tók til starfa. Þá lá blóðgjafínn iðulega við hlið blóðþegans og blóðið rann beint á milli þeirra. Margt af því sem Jón Oddgeir gerði fyrstur er nú orðið almennings- eign. Var oft gaman að fylgjast með því hve hann var fijór á nýjungar í starfinu. Hann bjó til hnyttin orð- tæki, sem „slógu í gegn“, svo sem „forðist slysin“. Fyrir skátahreyfínguna vann Jón Oddgeir ómetanlegt starf og var hinn ötuli og fijói brautryðjandi. Jón Oddgeir var vel hagmæltur og skilur eftir sig mörg fögur ljóð, þó að skátar muni nú best „Bræðra- lagssönginn", sem alltaf er sunginn við slit funda og varðelda skáta. Fjöldamörg gamankvæði koma upp í hugann, sem Jón átti létt með að yrkja þegar tilefni gafst eða á slíku þurfti að halda fyrir skemmtun eða varðeld. Það koma því margar minningar í hugann þégar starfs Jóns Oddgeirs er minnst og allar eru þær ánægju- legar, því að svo gott var að vinna fyrir hann og með honum. Hann var alltaf hvetjandi og stefndi öllum málum til góðs. í huganum sjáum við gömlu skátarnir hinn bjarteyga foringja okkar sem kenndi okkur þetta ljóð sitt: Vom hörundslit og heimalönd ei hamla látum því, að bræðralag og friðarbond vér boðum heimi í. Nú saman tökum hönd í hönd, og heits þess minnumst við, að tengja saman lönd við lönd og líf vort helga frið. Páll Gislason, fyrrverandi skátahöfðingi. t Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, FJÓLA EINARSDÓTTIR frá Vestmannaeyjum, Norðurtúni 22, Bessastaðahreppi, verður jarðsungin frá Bessastaðakirkju í dag, föstudaginn 29. janúar, kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. Bergur Ólafsson, Einar Bergsson, Ólafur Bergsson. t KRISTJANA ÞÓRÐARDÓTTIR frá Ólafsvik, til heimilis í Hvassaleiti 7, Reykjavík, verður jarðsungin frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 30. janúar kl. 14.00. Minningarathöfn fer fram frá Fossvogskirkju föstudag- inn 29. janúar kl. 15.00. Jenný Magnúsdóttir, Kristín Magnúsdóttir, Höskuldur Magnússon, Guðmundur Magnússon, Edda Magnúsdóttir, tengdabörn og barnabörn. ________________,, « t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför GUÐNÝJAR S. RICHTER. Emil S. Richter, Erla Gunnarsdóttir, Sigvaídi Búi Bessason. t Móðir mín, JÓHANNA JÓNSDÓTTIR, sem lést 21. janúar sl., verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 30. janúar kl. 11.00 fyrir hádegi. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Sjúkrahús Skagfirðinga. Fyrir hönd aðstandenda, Birna Sigurðardóttir. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við fráfall og útför GUÐRÚNARJÓNATANSDÓTTUR, Kirkjubraut 7, Seltjarnarnesi, áður Suðurgötu 40, Siglufirði. Vilhelmína Baldvinsdóttir, Ólafur Stefánsson, Sigurlín Erlendsdóttir, Örn Ellertsson, Rafn Erlendsson, Hrefna Bragadóttir, Páll Gunnarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.