Morgunblaðið - 29.01.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 29.01.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1993 21 Engar aðgerðir til að hafa upp á þeim sem komust undan ENGIN formleg skref höfðu í gær verið stigin af hálfu íslenskra yfirvalda til að krefjast handtöku erlendis eða framsals yfir fólkinu sem látið var laust í Lúxemborg síð- degis á þriðjudag eftir að eldri dóttir Ernu Eyjólfsdóttur, Elísabet Jane Pittman, hafði verið send að nýju til íslands. Fólkið var handtekið í flughöfninni í Lúxemborg og sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins mátti litlu muna að það kæmist undan. Talið er að fólkið hafi farið til London strax í fyrrakvöld. Fólkið sem um er að ræða er faðir telpunnar og fyrri eiginmaður Ernu, Frederick Arthur Pittman, en hann kom aldrei til landsins, heldur beið í Lúxemborg meðan á aðgerðinni stóð; Judy Feeney, eiginkona Donalds Feeneys; maður sá sem sagðist vera lífvörður Sylv- Segist hafa fengið telp- unaafhenta SAMKVÆMT upplýsingum Morgunblaðsins kom James Brian Grayson til landsins á mánudagsmorgun, daginn áður en til atburðanna á Hót- el Holti kom. Hans frásögn mun, samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins, vera á þá leið að hann hafi þá feng- ið boð um að móðirin væri reiðubúin til að afhenda hon- um dóttur sína. Hann mun ekki hafa komið inn á hótel- ið, en kveðst hafa beðið í bil fyrir utan og tekið við dóttur sinni sem hann segir hafa gengið út af hótelinu og inn í bílinn til sín. Halla Bachmann Ólafsdóttir, dómarafulltrúi við Héraðsdóm Reykjavíkur, mun í dag kveða upp úrskurð sinn um gæslu- varðhaldskröfu þá sem RLR hefur gert yfir James Brian Grayson og Donald Michael Feeney en þess er krafist að þeir sæti gæsluvarðhaldi til 10. febrúar. Fjallað var um kröf- urnar fyrir Héraðsdómi í gær og hvor mannanna yfirheyrður í u.þ.b. tvær klukkustundir. esters Stallone og kynnti sig sem Lawrence Caravan, og loks konan sem Erna Eyjólfsdóttir þekkir sem Jacklyn Davis, en hún hafði að sögn unnið að því að vinna traust hennar í u.þ.b. mánuð áður en barnsránið var framið. Lífvörðurinn og Jacklyn Davis eru bresk, aðrir sem koma við sögu bandarískir. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins þykir ekki augljóst hvers vegna yfirvöld í Lúxemborg ákváðu að senda stúlkuna að nýju til íslands en láta fólkið engu að síður laust. Eftir því sem Morgun- blaðið kemst næst var þar um að ræða eindregin munnleg tilmæli íslenskra lögregluyfírvalda. Ólafur Walter Stefánsson, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu, vildi það eitt um málið segja að ekki væri óalgengt að lögregluyfirvöld í ýms- um löndum hafi með sér samvinnu eftir óformlegum leiðum í aðkall- andi málum. Hins vegar séu gerðar ríkar formkröfur þegar um sé að ræða handtökuskipun eða fram- salskröfur. „Tyrkirnir í þessu máli“ Lögfræðingur sem Morgunblaðið ræddi við og er kunnugur meðferð mála af þessu tagi og atvikum þessa máls sagði að um nokkurt skeið hefði verið unnið að því að fullgilda af Islands hálfu alþjóðlega samninga um forræðismál barna. Sú fullgilding lægi hins vegar ekki fyrir en ef slíkur sáttmáli hefði verið fullgiltur væri ljóst, að sögn lögfræðingsins, að íslenskum stjórnvöldum bæri skylda til að sjá svo um að forsjá barns yrði fengin því foreldri, sem hefði fullgildan forsjárúrskurð í höndum. „Við erum Tyrkirnir í þessu máli,“ sagði þessi viðmælandi Morgunblaðsins. Talsmaður fyrírtækisins við blaðamann Viljum ekki vita um hvað þú talar „VIÐ höfum ekkert um þetta að segja núna, alls ekki neitt. Við vitum ekki um hvað þú ert að tala, við viljum ekki vita um hvað þú ert að tala. Hringdu ekki hingað aftur.“ Á þennan hátt svaraði Fairclough, talsmaður fyrirtækisins CTU, Corporate Training Unlimited, þegar blaðamaður hafði samband við hann í gær til að kanna viðhorf fyrirtæk- isins til barnsránsins í Reylqavík í fyrradag. Fyrirtækið, sem hefur aðal- stöðvar í Fayetteville í Norður- Karólínu og sérhæfir sig í aðgerð- um af þessu tagi auk hvers konar öryggisþjónustu og þjálfunar ör- yggisgæslufólks, hefur komið við sögu í fjölmörgum málum, einkum í löndum þriðja heimsins, þar sem bömum hefur verið rænt og kom- ið í hendur bandarískra foreldra. Frá þessum málum er greint í bókinni, Rescue My Child sem skrifuð hefur verið um starfsemi fyrirtækisins. Auk Donalds M. Feeneys og eiginkonu hans, Judy, hefur maður að nafni Dave Chatallier staðið í stórræðum á vegum CTU. Sá er nú orðinn fimmtugur og hefur dregið sig í hlé þar sem hann tel- ur sig orðinn of roskinn fyrir verk- efni af þessu tagi. Donald, sem er sagður fæddur 21. október 1953 og því á fertug- asta ári, og Dave Chatellier eru báðir fyrrum hermenn í Delta-sér- sveitum Bandaríkjahers og þjálf- aðir í aðgerðum gegn hryðjuverka- mönnum. Báðir munu m.a hafa barist í Víetnam-stríðinu. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra á fundi Verslunarráðs Langtí mastefnumótun í atvinnulífinu á dagskrá Til greina kemur að erlendir aðilar aðstoði við stefnumótunina FJÁRMÁLARÁÐHERRA telur að innan tíðar muni sljórn- völd sýna frumkvæði í að koma af stað samstarfi aðila vinnumarkaðarins, stofnanna, fyrirtækja og annarra aðila til að vinna að langtímastefnumótun í atvinnulífinu. Þann- ig eigi með skipulegum hætti að leita að tækifærum til að búa til ný arðsöm atvinnutækifæri í framtíðinni. Einnig eigi að kanna hver styrkur íslensks atvinnulífs sé og hvern- ig hægt sé að byggja á honum. Þetta kom fram á fundi Verslunarráðs í gærmorgun. Fjármálaráðherra, Friðrik Sophusson, sagði að of mikil áhersla hefði verið lögð á skyndila- usnir í atvinnulífínu og á undan- förnum árum hefði a.m.k. 10 millj- örðum króna verið eytt í „nýsköp- un“ sem nú væru að mestu leyti tapaðir. Þessi staðreynd hefði eðli- lega fælt stjórnvöld frá beinum afskiptum af atvinnulífinu. Nú eru skilyrði fyrir vaxtalækkun Hann tók fram að vissulega hefði eitthvað þegar verið gert í tengslum við atvinnumál. T.d. hefði verið samþykkt aðild að EES, gert hefði verið stórkostlegt átak í að lækka kostnaðarskatta fyrirtækja, talsvert hefði verið gert af rannsókna- og þróunar- starfsemi, tekin hefðu verið erlend lán til að vinna að atvinnuupp- byggingu í opinberum fram- kvæmdum og vegna þess að okkur hefði gengið skár í ríkisfjármálum ættu nú að vera skilyrði fyrir vaxtalækkun. Á fundinum kom fram að ráð- gjafarfyrirtækið McKinsey hefur að frumkvæði Stjórnunarfélagsins unnið að skýrslu um nýjar hug- myndir um langtímastefnumótun íslendinga í efnahagsmálum. Árni Sigfússon, framkvæmdastjóri Stjórnunarfélagsins, hefur tekið saman niðurstöður McKinsey þar sem m.a. kemur fram hveijar að- gerðir slíkrar stefnumótunar eigi að vera. McKinsey hefur til dæmis fengist við sambærileg verkefni í Danmörku, annars staðar í Evrópu og einnig í Austur-Asíu. Erlendir aðilar til ráðgjafar Á fundi Verslunarráðs sagði fjármálaráðherra að það kæmi vel til greina að erlendir aðilar, ekki endilega McKinsey, komi að mál- inu og aðstoði okkur við stefnu- mótunina. „Utanaðkomandi aðilar sjá vandamálin oft betur en þeir sem búa við þau. Það er ekkert nýtt að erlendir aðilar aðstoði okk- ur, árlega koma t.d. fulltrúar OECD og Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins og gefa okkur góð ráð í efna- hagsmálum. Erlendu aðilarnir geta lagt til aðferðafræðina en auðvitað verða hugmyndirnar og efnislegt framlag að koma frá ís- lendingum sjálfum.“ Aðspurður um hvenær undir- búningur gæti hafist sagði Friðrik Sophusson að engin ákvörðun hefði enn verið tekin í ríkisstjórn- inni. „Einstakir ráðherrar hafa rætt málið sín á milli og ég á von á að þetta verði til umræðu milli viðkomandi aðila innan tíðar. Það er ekki bara æskilegt og nauðsynlegt að vinna að langtíma- stefnumótun í atvinnulífinu. Það er stórhættulegt að gera það ekki. Við getum hvorki treyst á einfald- ar patentlausrir né það að at- vinnulífið lagist af sjálfu sér,“ sagði Friðrik Sophusson fjármála- ráðherra. Tlutancv Heílsuvörur nútímafólks JL fógetatíð Skúla Magnússonar voru oft haldnar hinar veglegustu veislur og var þá vel veitt Hjá Fógetanum í Reykjavík í Aðal- stræti 10, fbgnum við Þorra með veglegu Þorrahlaðborði frá kl. 18.00 öll kvöld meðan á Þorra stendur. Egils öl rennur um krana Fógetans samkvæmt íslenskri hefö. Málskostnaður léttir vart pyngju svo nokkru nemi, aðeins 1.900 kr. pr. mann og ólíkt íslensku réttarkerfi er allt afgreitt samstundis. Lifandi og þjóðleg tónlist er leikin öll kvöld. GJÖRT í AÐALSTRÆTI10 Sími 16323

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.