Morgunblaðið - 29.01.1993, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.01.1993, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1993 Ný norður-austur tenging verður næsta stórverkefni í vegagerð Kostnaður áætlaður milljónir króna Hugmyndir að nýjum hluta Austurlandsvegar. Frá gömlu Gríms- stöðun, um Einbúasand og austur Grímsstaða- dal eystri, suður Jökul- flörður" J dalsheiði og niður á “ 7 Jökuldal. Eða af Ein- búasandi og suður í Langadal og áfram austur og suður. 1200 ÁÆTLAÐ er að nýr vegur milli Norðurlands og Austur- lands, úr Mývatnssveit niður í Jökuldal, kosti um 1200 milljónir kr. Er þá miðað við nýtt vegstæði norðan við nú- verandi veg á Möðrudalsör- æfum. Endurbættur vegur á núverandi stað myndi kosta 200 milljónum kr. minna. Halldór Blöndal, samgöngu- ráðherra, sagði á fundum á Norðurlandi í vikunni að þessi vegur yrði næsta stór- verkefni í vegagerð. Hringvegurinn á milli Norður- og Austurlands teppist fljótt á vetrum og hefur lengi verið rætt um uppbyggingu hans. „Við hér á Norðurlandi megum ekki vera að því að bíða til næstu aldar eftir því að vegur verði lagður um Hóls- fjöll og Möðrudal til Austurlands. Þess vegna mun ég beita mér fyr- ir því að strax og Vestfjarða- göngum verði lokið, verði næsta verkefni, sem ráðizt verður í, að ljúka hringveginum," sagði Hall- dór Blöndal í samtali við Morgun- blaðið í gær. Vegurinn milli Mývatnssveitar og Jökuldals er 113 km langur. Áætlað er að uppbygging hans og lagning bundins slitlags á núver- andi vegstæði kosti einn milljarð, að sögn Eymundar Runólfssonar verkfræðings hjá Vegagerð ríkis- ins. Styttist ekki Hugmyndir hafa verið settar fram um að færa veginn, sem nú liggur frá gamla Grímsstaðabæn- um um Víðidal og Möðrudalsfjall- garð í Ármótasel, norðar. Nýi veg- urinn myndi liggja í suðurhluta Dimmaíjallgarðs, yfir Einbúasand, um Grímsstaðadal eystri, um Há- reksstaði og að Ármótaseli rétt ofan við Gilsá í Jökuldal. Þessi nýi vegur yrði um 60 km að lengd. Grímsstaðadalur er þröngur og ef mönnum líst ekki á að fara hann er til vara gert ráð fyrir vegi um Langadal, fyrir sunnan Þjóðfell, á þeim hluta leiðarinnar. Áætlað er að vegarlagning úr Mývatnssveit í Jökuldal myndi kosta 1,2 milljarða ef nýja veg- stæðið yrði fyrir valinu. Leiðin milli Egilsstaða og Akureyrar, sem nú er rúmlega 270 km, myndi ekki styttast að ráði við þessa vegagerð. Hins vegar styttist leið- in milli Egilsstaða og Vopnafjarðar um 40 km og leiðin milli Akur- eyrar og Vopnafjarðar um 10 km, og er þá miðað við stystu leið frá hringvegi að kauptúninu í Vopna- firði. Yfir Öxarfjarðarheiði í fundaferðinni um austurhluta Norðurlands hefur samgönguráð- herra einnig lagt áherslu á nauð- syn nýs vegar yfír Öxarfjarðar- heiði en þar er nú lélegur slóði. Vegur þar myndi koma Þórshöfn og Raufarhöfn í betra samband við aðra hluta Norðurlands. Þann- ig myndi leiðin milli Húsavíkur og Þórshafnar styttast um tæpa 80 km. Vegurinn þar á milli er nú 230 km þegar farið er fyrir Mel- rakkasléttu en yrði rúmlega 150 km með vegi yfir Öxarfjarðar- heiði. Að sögn Eymundar Runólfs- sonar er áætlað að lagning vegar yfír heiðina, alls um 36 km að lengd, myndi kosta um 420 millj- ónir kr. Ráðgert er að fara með veginn á svipuðum stað og núver- andi vegur liggur, nema austast. Slitlag nánast alla leið NÆSTA haust verður að- eins eftir að bera bundið slit- lag á lítinn hluta vegarins milli Akureyrar og Reykja- víkur. Þetta kom fram í máli Hall- dórs Blöndals samgönguráð- herra á almennum stjórnmála- fundi á Akureyri á miðvikudags- kvöld. Halldór sagði að við stjórnarskiptin hefði það verið eitt mikilvægasta verkefni ríkis- stjórnarinnar að nýta þá fjár- muni betur sem m.a. hafa farið til samgangna. Forsætisráð- herra, Davíð Oddsson, sagði að framkvæmdir í vegamálum yrðu þær mestu sem um getur á þrengingatímum. Mikill áfangi „Nú hefur verið ákveðið að ráðist verði í Bakkaselsbrekkuna strax og unnt er veðurs vegna. Á hausti komanda verðum við komin svo langt áleiðis að bæta veginn suður að einungis verður eftir að bera bundið slitlag á lít- inn hluta leiðarinnar. Halldór nefndi að á svipuðum tíma, þ.e. næsta haust, ætti framkvæmdum við veginn til Ólafsfjarðar einnig að vera lokið. Helsta þröskuldinn í tengingu byggða við Eyjafjörð sagði ráð- herra vera að enn væri ekki í sjónmáli hvenær tækist að ljúka lagfæringu vegarins til Siglu- fjarðar. Miklu munaði fyrir Siglufjörð að vera ekki sú enda- stöð sem bærinn nú væri. Morgunblaðið/Hólmfríður Safnað fyrir skólaferðalagi KRAKKARNIR í Grunnskólanum í Grímsey hafa síðustu daga gengið á milli bæja í eynni og fal- ast eftir munum á hlutaveltu, sem þau ætla að halda á morgun, laugardag. Það fé sem safnast á hlutaveltunni rennur beint i ferðasjóð bam- anna, en það er venja hér að krakkamir fari í eitt skólaferðalag meðan á bamaskólagöngunni stendur. Næst verður lagt upp í ferðalag vorið 1994 og verður safnað fé fram að þeim tíma. Myndin var tekin þegar krakkarnir voru að ljúka söfnuninni í vikunni, en þau heita Margrét, Helga Fríður, Vilborg, Ámi Már, Halla og Henning. Skagstrendingar kaupa skóverksmiðju Fiskvinnslufólk framleiðir skó SKREFIÐ hf., nýtt hlutafélag í eigu Skagstrendings hf. og Höfðahrepps á Skagaströnd, mun væntanlega eignast vélar og tæki þrotabús skóverksmiðjunnar Striksins á Akureyri á morgun, laugardag, en þá er ráðgert að skrifa undir kaup- samning. íslandsbanki leysti eignir þrotabúsins til sín og hef- ur nú verið gengið frá sölu verksmiðjunnar til Skrefsins á Skagaströnd. Kaupverð er 9,5 milljónir. Skrefíð var stofnað nýlega og er hugmyndin sú að félagið muni í framtíðinni sinna víðtækari iðnaðar- starfsemi, þó ekki sé í augnablikinu annað í sjónmáli en rekstur skóverk- smiðjunnar, að sögn Óskars Þórðar- sonar sem situr í stjóm Skrefsins. Hlutafé félagsins verður 30 millj. kr og þar af mun Skagstrendingur greiða allt að 19 millj. og Höfða- hreppur allt að 11 millj. Kaupverð 9,5 milljónir Skrefíð kaupir vélar og tæki til skóframleiðslu af íslandsbanka á 9,5 millj. kr., en einnig er samið um að félagið selji skólager þrotabúsins í umþoðssölu á næstu tveimur árum. Óskar sagði að upphaflega kveikj- an að kaupunum hefði komið í kjöl- far þess að ísfisktogari Skagstrend- ings, Amar, hefði verið seldur og frystitogari keyptur í hans stað. Fyr- irsjáanlegt hefði verið að starfsemi frystihússins hefði lagst af og hefði stjóm Skagstrendings verið einhuga um að leita annarra atvinnutækifæra fyrir starfsfólkið. Niðurstaðan hefði síðan orðið sú að tilboð var gert í eignir skóverksmiðjunnar á Akureyri er hún varð gjaldþrota. 10 fá vinnu Gert er ráð fyrir að um tíu manns muni til að byija með stárfa við skó- verksmiðjuna á Skagaströnd auk framkvæmdastjóra og sölumanns og er áætlað að framleidd verði á bilinu 20 til 30 þúsund skópör á ári eftir að framleiðslan er komin í eðlilegan gang. Óskar sagði að áhersla yrði lögð á framleiðslu gæðavöru. „Við ætlum ekki að taka þátt í slagnum á ódýra markaðnum og vera í sam- keppni við innflutta portúgalska framleiðslu, það er vonlaust." Verk- smiðja Skrefsins mun einbeita sér að sérhæfðum íslenskum aðstæðum og leggja áherslu á að framleiða vandaða kuldaskó auk þess sem reynt verður að vinna markað á nýj- an leik hjá ríkinu, en verksmiðjan á Akureyri gerði t.d. alla skó fyrir lög- regluna hér á landi. Óskar sagði að vélar og tæki verk- smiðjunnar yrðu væntanlega flutt til Skagastrandar eins fljótt og unnt væri. Þá er einnig í athugun að fá fyrrum starfsfólk skóverksmiðjunnar á Akureyri til að miðla væntanlegu starfsfólki á Skagaströnd af þekk- ingu sinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.