Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1.989 37 ? í 1« \ i1* *' \ ? i i i Isslá SVARAR I SIMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI w TIL FÖSTUDAi ‘bmban--— Höfðingjarnir í þjóðfélaginu Til Velvakanda. Það vakti furðu okkar Breið- hyltinga að ríkisfjölmiðlar sögðu það alls ekki fréttnæmt að á fjórða hundrað manns héldu hátíð með lúðrasveit, útimessu og grillveislu, af því tilefni að borgarstjórinn í Reykjavík afhenti þeim skrúðgarð- inn „Bakkatún", sunnudaginn 3. september sl. Allir íjölmiðlar fengu fréttatil- kynningu og dagskrá og gerðu þessu góð skil, með fyrmefndri undantekningu. Hjá fréttastofu útvarps var sagt að ómögulegt væri að segja frá þessu í útvarpi, þó að Stjarnan og Bylgjan ijölluðu vel um þetta enda virðist þeim ýmislegt auðvelt, öðr- um ómögulegt. Og fréttastjóri sjónvarps sagði að þetta væri alls ekki fréttnæmt, en Stöð 2 var á öðru máli og gerði þessu góð skil í fréttum þá strax um kvöldið. Ég get ekki sagt að það sé sann- gjarnt af ríkisfjölmiðlunum að hefna sín a'þennan hátt á okkur þarna í Breiðholtinu þó að okkur seinki stundum svolítið við að greiða afnotagjöldin. Nú, fyrst ég er farinn að æsa mig upp: Þegar hlustað er á fréttir, og höfðingjarnir í þjóðfélaginu segjast varla geta tjáð sig um hitt eða þetta vegna þess að þeir voru er- lendis, þá hvarflar að manni að stjórnendur þessa lands hafi alls ekki efni á því að lifa á íslandi, enda ódýrara fyrir þá að lifa á dagpeningunum okkar erlendis. Hvað höfðum við venjulegar sálir til þessara höfðingja yfírleitt nema sem neytendur við kjötborð þeirra, eða spariklædd atkvæði marserandi á kjörstað. Og svo er það blíðmælgin og vinahótin sem koma reglulega á fjögurra ára fresti, og hver fellur ekki fyrir glæsilegum ioftköstulum með hug- sjóna-ívafi er tryggja okkur öllum bjarta framtíð. Nú, og svo þegar ekkert stenst og allt horfir í óefni, þá er það ekki höfðingjunum að kenna hvernig komið er, heldur þvotta- konu í Seðlabankanum, eða okkur fyrrverandi atkvæðum, vegna ór- áðsíu og sukks. Það hlýtur að koma upp í huga, okkar verkamanna, hvort höfð- ingjastéttin á íslandi sé okkur ekki of dýr, og hvort ekki megi sama lögmál gilda fyrir lýðveldið ísland og góð fyrirtæki, að þegar fram- kvæmdastjórarnir skila ekki sínu þá eru þeir reknir og liæfari menn ráðnir í staðinn. Það er vitað að löngun fólks til að lifa vel er fyrir hendi, og þrátt fyrir að launin séu lág, vill það halda höfði og hugsa stórt. Það er einnig vitað að þegar óáran brestur á og samdráttur verður, þá bitnar það á verkamanninum og hans líkum en ekki á höfðingj- unum hjá Aðalverktökum og SÍS: Helgi Steingrímsson AFGASRULLUR fyrir bílaverkstæði Olíufélagið hf 681100 D.ÞORGRÍMSSON&CO ‘papARMA PLAST ÁRMÚLA 16 OG 29, S. 38640 ^MORAJ AUÐSTILLT MORATEMP blöndunar- tækin eru með auðveldri einnar handar stillingu á hitastigi og vatnsmagni. MORA sænsk gæðavara fyrir íslenskar aðstæður. Fást í byggingavöruverslunum. MORATEMP . meiri ánægja J P Þessir hringdu .. . Úlpa Græn kuldaúlpa með hvítum kraga og skreytt landakorti á fóðri var tekin í fatahenginu í Leikhúskjallaranum 22. septem- ber. Þeir sem geta gefið upplýs- ingar eru vinsamlegast beðnir að hringja í síma 53894. Ósæmileg framkoma Kona hringdi: „Það gekk alveg yfir okkur að sjá hvernig tveir fréttamenn á Stöð 2 komu fram í viðtals- þætti við Steingrím Hermanns- son sl. fimmtudagskvöld. Þeir sýndu svo mikla frekju að ég tel slíka framkomu ekki sæmandi. Mér hefur hingað til þótt þeir góðir fréttamenn en sé þá ekki í því ljósi lengur. Þeir skiptust á um að tæta hann í sig og neyttu allra bragða. Steingrímur sýndi fulla kurteisi allan tímann en það er meira en hægt er að segja um fréttamennina." Tímabær grein Vallarstarfsmaður hringdi: „Ég vil lýsa ánægju minni með grein Matthíasar Bjarnasonar þar sem hann bendir _á að æski- legt sé og eðlilegt að íslendingar taki að sér fleiri störf á Keflavík- urflugvelli. Ánægjulegt væri ef fleiri þingmenn og ráðherrar sýndu þessu máli áhuga. Stefna Varnarliðsins virðist nefnilega hafa verið sú að yfirtaka sem flest störf sem íslendingar hafa unnið.“ Þríhjól Gult þríhjól með svörtu sæti var tekið við Flúðasel 86 fyrir skömmu. Eigandinn, sem er þriggja ára, biður þá sem kynnu að hafa séð hjólið að hringja í síma 79470. Hjálmur Svartur hjálmur af gerðinni Valay cross var tekinn af snaga í Réttarholtsskóla. Þeir sem geta gefið upplýsingar vinsamlegast hringi í síma 34573. Föt Ljósgrá karlmannsföt, inn- pökkuð í ljósan plastpoka, töpuð- ust af bíl 25. september. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 35878. Fundar- laun. Myndavél 35 mm myndavél fannst í Ármúla. Upplýsingar í síma 36619 á kvöldin. Fyrirgreiðslur Gömul kona hringdi: „Ekki dregur úr fýrirgreiðslum Framsóknar þegar kominn er„- jafnréttisflokkur “ með Stefán Valgeirsson í broddi fylkingar. Nú er þröngvað fyrirgreiðslum upp á jafnréttisgoðann, en Pat- reksfirðingar eru ekki neyddir til að taka við fyrirgreiðslum. Þjóðin er búin að fá fyrirgreiðslupólitík- ina frá 1927 endurborna.“ Gullúr Gullúr tapaðist í Mávahíð, Lönguhlíð eða Eskihlíð. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 18256. Disklingur Disklingur fannst fyrir utan Þjóðarbókhlöðuna fyrir skömmu. Á honum eru m.a. ritgerðir um íslenskar hljóðfræðirannsóknir. Upplýsingar í síma 23494. Matthias Bjarnagon albinKÍ»maður: Islendingar taki að sér að vinna fleiri störfá KeflavíkurflueveHi Funahöföa 19, sími 685680 FATASKAPAR / E I ataskáparnir frá okkur vekja athygli fyrir góða hönnun, fjölbreytt útlit og ekki sí frábært verð. Það er spennandi að heimsækja okkur. Sjáumst!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.