Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SjSPT^MBE^ lgg9 ' Elsku Þórir og fjölskylda. Það hefur verið einstök reynsla að fylgj- ast með krafti ykkar og samheldni þessa síðustu og erfiðu mánuði. Þar lögðust allir sem einn á að létta Herborgu stundirnar. Fallegu barna- börnin voru aldrei langt undan og þau föðmuðu ömmu alltaf svo hlý- lega. Þau missa nú góða ömmu en geta auðveldlega styrkt góðan afa. Hann hefur misst góða konu og trú- an vin. Þau voru samhent hjón og einstakir gestgjafar. Öllum ástvinum sendum við inni- legar samúðarkveðjur. Minningin um Herborgu lifir í hugum okkar, hún lifir í þeim áhrifum sem hún hafði á okkur. Ingibjörg og Júlíus Undir morgun þann 19. september f þann mund er dagsbirtan sigrar dimmu næturinnar lést elskuleg tengdamóðir mín, Herborg Krist: jánsdóttir, á heimili sínu, Vesturbrún 6 hér í Reykjavík, eftir hetjulega baráttu við rnjög erfið veikindi, Þeg- ar ég gekk út í morgunbirtuna með fjölskyldunni kom upp í huga mér kært vers úr nýja testamentinu, „komið til mín allir þér sem erfiði og þunga eru hlaðnir og ég muVi veita yður hvíld. (Matt. 11. 28.) Herborg hafði fengið hvíldina og sorgin lagðist yfir. Margar minningar sækja á hug- ann bjartar og góðar á kveðjustund- inni. Minningar og augnablik helguð af amstri líðandi stunda safnast í dýrmætan sjóð sem lifir og lýsir um alla framtíð. Orð eru lítils megnug á stundu sem þessari þegar kvatt er hinstu kveðju. Þakklæti fyrir sam- fylgdina og djúpur söknuður fyllir huga minn. Eins og nóttin var tær þegar kveðjustundin rann upp var allt líf Herborgar, hreint og fölskva- laust. Alltaf falleg og yndisleg við okkur öll. Þórir minn. Missir þinn er mikill, megi Guð gefa þér og systkinunum frá Vesturbrún styrk í ykkar miklu sorg. Herborgu þakka ég allt sem hún gaf okkur. Megi algóður Guð fylgja henni. Blessuð sé minning hennar. Ingvar Einarsson Nú þegar náttúran býr sig undir vetrarsvefninn og við sjáum merki um fölnandi gróður berst okkur fregn um andlát vinnufélaga okkar og vin- ar, Herborgar Kristjánsdóttur. Her- borg unni öllu sem fagurt var og hefur nú orðið samferða fegurstu biómum sumarins. Hún var vinsæll og traustur kenn- ari sen kenndi eina af þeim náms- greinum sem gefa smekkvísi og sköpunargleði gott svigrúm, en þar var handmennt. Það lék allt í höndum Herborgar og henni veittist auðvelt að hvetja nemendur sína til vandvirkni og list- sköpunar. Þó heilsan væri farin að versna á liðnum vetri heyrðist aldrei æðruorð eða kvörtun frá Herborgu. Það var því ekki öllum ljóst hversu mikið veik hún var. Hún var ein af þessum hetjum sem ganga til verks með jafnaðargeði og elskusemi þó kraftarnir dvíni og móti blási. Herborg var gift Þóri Sigurðssyni kennara og námstjóra. Börn þeirra eru: Ingiríður, Þóra Blómastofa FnÓfinns Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sfmi 31099 Opið öil kvöld tilkl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. Björg, Guðrún, Sigurður Kristján og stjúpdóttir Herborgar, Ágústa Rósa. Á meðan börnin voru ung kenndi Herborg af og til stundakennslu og forfallakennslu en tók ekki að sér fasta stöðu fyrr en yngstu börnin voru komin á unglingsár eða 1974 þegar hún varð fastur kennari við Laugarnesskóla. Herborg valdi þann kostinn að veita börnum sínum dijúgan tíma og alla tíð gætti hún þess að heimil- ið og fjölskyldan nytu hluta af vinnu- deginum. Þau Herborg og Þórir voru afar samhent og heimili þeirra bar glögg- an vott um það. Þau voru félagslynd og tóku mikinn þátt í félagslífi kenn- aranna við skólann. Einnig nutu þau þess að dvelja í skólaseli Laugarnes- skólans, Katlagili. Þótt Herborg væri farin að kröftum dvaldi hún eins og svo oft áður eina viku í Katlagili á liðnu sumri og lýsir það vel því að hún stóð á meðan stætt var og helg- aði fjölskyldunni allar stundir sem hún gat. Við vinnufélagar þökkum Her- borgu samfylgdina. Megi minningin um góða eigin- konu, móður og ömmu lina sorg að- standenda. Við vottum þeim okkar innilegustu samúð. Matthildur og Jón Freyr Nú er hún elsku amma okkar Herborg Kristjánsdóttir, á Vestur- brún dáin. Amma var búin að vera veik lengi og henni var farið að líða illa. Okkur er kært hve amma var hreinskilin og sagði okkur alltaf ef við fórum rangt með íslenskt mál. Hún amma talaði alltaf svo faliega og vildi okkur alltaf vel. Það eru svo margar góðat' minningar méð ömrnu og afa á Vesturbrún. Við munum eftir því er við fórum fjöiskyldan á Stóru Tjarnir í afmæli systra ömmu. Það var í síðasta skipti sem við gát- um notið stundar með ömmu og skyldfóiki hennar. Það er okkur dýrmætt að hafa getað notið þessarar stundar með ömmu. Elsku amma okkar var alltaf svo góð og yndisleg við okkur öll. Minnisstæðustu stundir með ömmu eru þegar við saumuðum og spiluðum á spil og lékum okkur. Hún kenndi okkur að ptjóna og að vanda okkur við allt sem við gerðum. Við eigum öil eftir að sakna elsku ömrnu okkar. Ég man eftir öllum okkar góðu stundum sent við áttum í Katlagili. Þar erum við búin að vera hvert sumar. Þegar ég var lítil fór ég með afa niður að iæk að gera stíflu og spilaði á spil með ömmu og afa. Stundum fórum við saman í göngu- túr upp eftir fjallinu í gegnum skóg- inn og fórum í laut og fengum okkur nesti. Þetta voru svo sannarlega góðar stundir sem við áttum í Katla- gili með ömmu. Okkur þótti öllum mjög vænt um ömmu. Elsku afi megi Guð styrkja þig á þessari sorgarstund, við söknum öll élsku ömmu okkar. Við þökkum elsku ömmu fyrir allt. Þórir, Ásrún og Herborg t Fósturfaðir minn, tengdafaðir og afi, ÞORVALDUR JÓHANNESSON, Drápuhlíð 4, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 28. septem- ber kl. 10.30. Haukur Gunnarsson, UnaN.Svane, Guðrún Hauksdóttir, Eiríkur Hauksson og Níels Svani Hauksson. Útför eiginkonu + minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVÖVU BJARNADÓTTUR, Hábæ 40, verður gerð frá Árbæjarkirkju, miðvikudaginn 27. september kl. 13.30. Ágúst Filipusson, börn, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, GUÐRÚN STEFÁNSDÓTTIR, Hólmgarði 14, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 28. sept- ember kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, Sigríður Kristjánsdóttir, Kristín Kristjánsdóttir. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, INGÓLFUR Ó. WAAGE, Seljahlíð, áður Háteigsvegi 11, verður jarðsunginn frá Frikirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 28. september kl. 13.30. Gunnar I. Waage, Ásdis Hannesdóttir, Ólöf Erla Waage, Helgi Loftsson og barnabörn. ■■ TOLVU MÖPPUR frá Múlalundi... ... þar er tölvupappírinn vel geymdur. $ Múlalundur Allt í röð og reglu - án þess að vaska upp! Bíldshöfða 14 s: 67 2511 Komdu kaffistofunni á hreint. Duni kaffibarinn sparar þér bæði tíma og fyrirhöfn. Getur staðið á borði eða hangið uppávegg. En það besta er: Ekkert uppvask. FAINIIMIR HF 31 Heildarupphæð vinninga 23.09. var 4.759.383. 1 hafði 5 rétta og fær hann kr. 2.191.104. Bónusvinninginn fengu 5 og fær hver kr. 76.173. Fyrú- 4 tölur réttar fær hver kr. 6.083 og fyrir 3 réttar tölur fær hver um sig kr. 450. Sölustaðir loka 15 mínútum fyrir út- drátt i Sjónvarpinu. Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511. Lukkulína 99 1002 Ármúla 29 símar 38640 - 686100 Þ. ÞQRGRÍMSSON & CO Armstrong LOFTAPLDTUR xœKORAsr GÓLFFLÍSAR ^Jarmaplast einangrun GLERULL STEINULL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.