Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 18
18 m i »aaMínM3í :os j< joa<juotíh BiQAtíi^uofloj/ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SÉPTEMBER 1989 Viðræður Bandaríkjamanna og Sovétmanna: Efiiahagssamstarf risaveldanna: Sovétmenn vilja ráð- gjöf fremur en lán Jackson Hole, Wyoming-ríki. Reuter. JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lét svo ummælt á laugardag að loknum tveggja daga fundi með Edúard Shevardnad- ze, sovéskuin starfsbróður sinum, að Sovétstjórnin vildi koma á markaðshagkerfí. Sagði Baker að Sovétmenn hefðu sýnt áhuga á því að læra af Bandaríkjamönnum á þessu sviði. í því augnamiði fara Alan Greenspan, bankastjóri Seðlabanka Bandaríkjanna, og Robert Zoellick, háttsettur ráðgjafí Bakers, til Sovétríkjanna í næsta mánuði. Reuter Baker sagði á fundi með frétta- mönnum á laugardag að efnahags- vandræði Sovétríkjanna hefðu mik- ið verið rædd á fundum utanríkis- ráðherranna. Hann sagði að Sovét- menn hefðu undirstrikað að þeir væntu hvorki lána né styrkja frá Bandaríkjunum. Þeir vildu fremur læra af reynslu Bandaríkjamanna Utanríkisráðherrar risaveldanna, þeir James Baker (tv.) og Edúard Shevardnadze, snúa aftur úr veiði- ferð sem þeir héldu í er hlé var gert á viðræðum þeirra í Wyoming-ríki i Bandaríkjunum. --- Greitt fyrir viðræðum um feekk- un langdrægra kjarnavopna Fækkun stýriflauga í skipum og kafbátum verði rædd sérstaklega Jackson Hole, Washington, New York. Reuter, The Daily Teiegraph. UMTALSVERÐAR tilslakanir af hálfii Sovétstjórnarinnar hafa gert það að verkum að bandarískir embættismenn telja nú vaxandi líkur á því að risaveldunum tveimur takist að ná samkomulagi um fækkun langdrægra kjarnorkuvopna. Tilslakanir þessar voru kynntar í bréfí frá Míkhaíl S. Gorbatsjov, aðalritara sovéska kommúnistaflokksins, til George Bush Bandaríkjaforseta en utanríkisráðherra Sovétríkj- anna, Edúard Shevardnadze, færði Bush bréfið í síðustu viku. A laug- ardag lauk í Wyoming-ríki í Bandaríkjunum fundi utanríkisráðherra risaveldanna og skiluðu þær viðræður verulegum árangri á vett- vangi afvopnunarmála auk þess sem afráðið var að þeir Bush og Gorbatsjov kæmu saman til fundar á fyrri helmingi næsta árs. Bush Bandaríkjaforseti var sýni- lega ánægður með niðurstöður fundar utanríkisráðherranna er hann ræddi við blaðamenn síðdegis á laugardag. Kvaðst hann telja það mjög vel við hæfi að þeir Gorb- atsjov hittust í Washington á fyrri helmingi næsta árs en formlega hefur fundarstaðurinn enn ekki ver- ið ákveðinn. Fyrr um daginn höfðu utanríkisráðherrarnir, þeir Shev- ardnadze og James Baker, skýrt frá því að leiðtogafundur yrði haldinn á næsta ári. George Bush tók fram að óvarlegt væri að gera ráð fyrir þvi að afvopnunarsamningur yrði undirritaður á fundi þeirra Gorb- atsjovs. Geimvarnir undanskildar Bæði sovéskir og bandarískir embættismenn lýstu sig ánægða með niðurstöður fundar utanríkis- ráðherranna og sérfræðingar kváðu árangurinn verulegan. Brent Scowcroft, öryggisráðgjafi Banda- ríkjaforseta, sagði að „meiriháttar hindrun" hefði verið rutt úr vegi í viðræðum um fækkun langdrægra kjarnorkuvopna, sem nefndar eru START-viðræðurnar. Átti hann við þá yfirlýsingu Sovétmanna að slíkur sáttmáli þyrfti ekki jafnframt að kveða á um bann við uppsetningu varnarkerfa gegn langdrægum kjarnavopnum í geimnum. Krafa Sovétmanna um að START-sátt- máli þurfi jafnframt að taka til geimvopna hefur verið helsta ágreiningsefnið í afvopnunarvið- ræðum risaveldanna frá því leið- togafundurinn var haldinn í Reykjavík í október árið 1986. Sov- éskir embættismenn sögðu að með þessu yrði unnt .að ganga frá START-samningi en vamarkerfi gegn kjamorkuvopnum og ABM- sáttmálinn um takmarkanir þeirra frá árinu 1972 yrðu þá tekin til umfjöllunar í sérstökum viðræðum í Genf. Sovésku embættismennirnir gerðu einnig heyrinkunnugt að fall- ið hefði verið frá þeirri kröfu að Bandaríkjamenn hétu því að virða ABM-sáttmálann næstu tíu árin auk þess sem Bandaríkjamönnum yrði heimilt að framkvæma „tiltekn- ar“ tilraunir í geimnum svo framar- lega sem þær brytu ekki gegn sátt- málanum margnefnda. Komu þessi tvö atriði mjög á óvart. Þá lýstu Sovétmenn yfir því að þeir væru reiðubúnir til að láta rífa umdeilda ratsjárstöð í Krasnojarsk í Síberíu en bandarískir embættismenn hafa löngum haldið því fram að stöðin sú bijóti í bága við ABM-sáttmál- ann. Stýriflaugar ræddar sérstaklega Sovétmenn lögðu fram aðra mik- ilvæga tillögu á vettvangi START- viðræðnanna sem gerir ráð fyrir því að fækkun stýriflauga og leyfilegur hámarksljöldi þeirra um borð í skip- um og kafbátum verði rædd sér- staklega. Þetta hefur verið eitt helsta ágreiningsefnið í viðræðum þessum, ekki síst sökum þess að sýnt þykir að erfitt verði að ganga frá fullnægjandi eftirlitsákvæðum á þessu sviði samþykki risaveldin að fækka langdrægum gjöreyðingar- vopnum sínum. James Baker fagn- aði þessari tillögu Sovétstjórnarinn- ar en lagði jafnframt áherslu á að mikið bæri á milli í viðræðum risa- veldanna um fækkun stýriflauga á og í höfunum. Hann sagðist telja að tilsiakanir Sovétstjórnarinnar myndu greiða fyrir árangri í START-viðræðunum en tók fram að stjórnvöld í Bandaríkjunum teldu að áfram bæri að vinna að þróun og smíði geimvarna og það yrði gert. Utanríkisráðherrarnir undirrit- uðu sex smæiTÍ samninga sem varða m.a. tæknileg atriði á vett- vangi afvopnunarmála og samskipti ríkjanna. Nefna má að bæði ríkin skuldbundu sig til að greina frá efnavopnabirgðum sínum fyrir lok þessa árs og verulega miðaði í við- ræðum um eftirlit með kjarnorkutil- raunum neðanjarðar. Undanfarin 15 ár hafa risaveldin deilt um hvernig staðið skuli að slíku eftir- liti en nú þykir sýnt að samningur þar að lútandi verði tilbúinn til und- irritunar á næsta ári. af fijálsu markaðskerfi. Baker sagðist telja að Míkhaíl Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, gerði sér grein fyrir þeim erfiðleikum sem fylgdu efnahagsumbótum — sér- staklega hvað varðar atriði eins og að koma á nýju verðmyndunarkerfi og gera rúbluna gjaldgenga í al- þjóðaviðskiptum. Baker sagðist álíta að áður en slíkar umbætur yrðu gerðar þyrfti í fyrsta lagi að draga úr peningamagni í umferð. I öðru lagi yrði að breyta hagkerfinu þannig að pláss væri fyrir frum- kvæði og samkeppni. í þriðja lagi þyrfti að „strengja öryggisnet" til að draga úr áhrifum fijálsrar verð- myndunar á hag einstaklingsins. Ekki kom til þess á laugardag að ráðherrarnir héldu sameiginleg- an fréttamannafund eins og áform- að var. Shevardnadze sagði á sínum fundi m.a. að Sovétmenn vildu inn- leiða „sósíalískt markaðshagkerfi". Hann bætti því við þegar hann sá spurnarsvipinn á viðstöddum frétta- mönnum að þar yrði um „athyglis- vert hagkerfi" að ræða. Þótt miklir efnahagserfiðleikar blasi nú við Sovétstjórninni segist Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, hafa trú á því að Gorbatsjov hafi hæfileika til að leiða þjóð sína til efnahagslegrar vel- sældar. Leiðtogarnir hittust í fjórar stundir á laugardag þegar Thatcher var á heimleið frá Japan. Að því búnu fór Thatcher fögrum orðum um Gorbatsjov og „djarfmannleg- ar“ umbætur hans. Frá flandskap til samstarfe ÞAÐ hefiir verið til þess tekið hve góður andi ríkti í viðræðum utanríkisráðherra risaveldanna á föstudag og laugardag. James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lýsti þeirri breytingu, sem orðið hefur á samskiptunum við Sovétríkin, svo: „Við létum af flandskap, tókum upp viðræður og nú hefst samstarfið.“ í fjörutíu ár var stefna Banda- árinu að Bandaríkin ætluðu ekki ríkjastjórnar gagnvart Austur- Evrópu og kommúnistaríkjum sú að halda þeim í skefjum. Hún var óbreytt frá því að George Kennan skilgreindi þróun mála í Sovétríkj- unum á árunum eftir síðari heims- styijöldina. George Bush Banda- ríkjaforseti gaf tóninn fyrir breytt viðhorf þegar hann sagði fyrr á lengur að láta staðar numið við járntjaldið heldur láta að sér kveða í ríkjum Austur-Evrópu eft- ir því sem tækifæri gefast. Baker ítrekaði þessa stefnubreytingu um helgina með því að segja að „nýtt skeið“ væri runnið upp í samskipt- um risaveldanna. GARÐASTAL Lausn á steypuskemmdum HÉÐINN STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000 Hryðjuverk IRA í Bretlandi: Óvopnaðir menn á verði St. Andrews. Frá Gudmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter. BRESKA ríkisstjórnin heftir lýst því yfir að til hefði staðið að auka öryKK*sKæslu við Tónlistarskóla breskra sjóliða í bænum Deal á Suð- austur-Englandi. Tíu hermenn fórust í sprengingu þar sl. föstudag og hefur Irski lýðveldisherinn gengist við sprengjutilræðinu. Filippus prins, drottningarmaður, hefiir brotið hefðir með því að fordæma árás IRA. Öryggisgæsla við tónlistarskólann var í höndum einkafyrirtækis og þeir starfsmenn sem önnuðust hana máttu ekki vera vopnaðir. Var þetta fyrirkomulag liður í sparnaðar- aðgerðum stjómvalda. Seint á síðasta ári ákvað breska ríkisstjórnin að efla öryggisgæslu við svonefnd „mjúk“ hernaðarleg skot- mörk. Var það gert skömmu eftir að einn hermaður fórst og níu særð- ust í sprengingu í herskála í London. Filippus prins, drottningarmaður, sagði að sprengjuárásin sl. föstudag væri tilgangslaust og viðurstyggilegt athæfi. „IRA fær engu framgengt með því,“ sagði hann við blaðamenn. Bresku dagblöðin sögðu I gær að prinsinn hefði brotið hefðir með ummælum sínum en samkvæmt þeim forðast konungsfjölskyldan afskipti af viðkvæmum pólitískum deilumál- um. Blöðin gátu þess jafnframt að orð hans endurspegluðu mikla andúð konungsijölskyldunnar á tilræðinu. Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, flaug til herstöðvar- innar í Deal í gær og sagði hún að skæruliðarnir sem stóðu fyrir árás- inni væru mannill óargardýr. „Þeir fá engu áorkað. Þetta eru miklir ill- virkjar, sannkölluð óargardýr," sagði Thatcher. Lögreglan leitar nú þriggja manna sem tóku íbúð á leigu fyrir nokkrum vikum nálægt skólanum. Þeir hurfu sporlaust eftir sprenginguna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.