Morgunblaðið - 24.04.1988, Page 37

Morgunblaðið - 24.04.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988 £7 Reuter March Fong Eu, háttsettur emb- ættismaður í Kaliforníu, heldur á vopni Sirhans Sirhans, sem myrti Robert Kennedy. Morðið á Robert Kennedy: Myndir og skjöl horfin úr skýrslu- bunkanum Sacramento, Kaliforníu. Reuter. SKJÖL um rannsókn morðsins á Robert Kennedy voru opnuð á þriðjudag og kom þá í ljós að 2.400 ljósmyndir vantaði í skjala- pakkana. Þá sýna skjölin að lög- reglan vísaði á bug án skýringa ábendingum um að banamenn Kennedy hefðu verið tveir. John Bums, skjalavörður Kali- fomíuríkis, sagði á miðvikudag að lögreglan hefði ekki tekið mark á eða látið kanna nánar fullyrðingar um að fleiri en átta kúlnaför hefðu fundist á morðstaðnum. Aðeins var hægt að skjóta átta skotum úr byssu Sirhans Sirhans, sem dæmd- ur var fyrir morðið. Menn, sem unnu að rannsókn morðsins, töldu að tveir menn hefðu skotið á Kennedy, sem var myrtur í Ambassadorhótelinu í Los Angeles 5. júní 1968. Byggðu þeir það á því að bandaríska alríkislögreglan hefði fundið 10 kúlnaför í dyra: karmi á morðstaðnum í hótelinu. í skjölunum er engin skýring gefin á því hvers vegna ekki var tekið tillit til kenningarinnar um tvær skyttur. Burns segist hafa átt von á því að finna 5.300 ljósmyndir í skjölun- um en þar hafi aðeins verið 2.900 myndir. Vanti því nær helming myndanna og kvaðst hann enga skýringu hafa á því. Einnig hafi ýms skjöl verið fjarlægð því þar vanti skjöl og skýrslur vitna, sem vísað er til í þeim slqolum, sem eftir eru. Skjölin, sem opnuð voru, eru á um 50.000 vélrituðum síðum, m.a. afrit af viðtölum við 4.400 menn, sem báru vitni eða voru yfirheyrðir vegna morðsins. Meðal rannsóknar- gagna var doppóttur kjóll, sem not- aður var er morðið á Kennedy var sviðsett síðar vegna morðrannsókn- arinnar. Vitni gáfu sig fram sem sögðu að kona klædd samskonar kjól hefði hlaupið frá hótelinu hróp- andi: „Við drápum hann, við dráp- um hann“. Meðal skjalanna var 1.500 síðna lokaskýrsla lögreglunn- ar. Niðurstaða hennar er að Sirhan hafi verið einn að verki og að eng- ar vísbendingar hafi fundist um að samsæri hafi verið gert um að myrða Kennedy. RITVÉLAR REIKNIVÉLAR PRENTARAR TÖLVUHÚSGÖGN ITIVOLI! MOBIRA TALKMAN í TÍVOLÍ! í dag veröur glæsilega útbúinn sýningarbíil frá Mobira staðsettur í skemmtanamiðstöð Suðurnesja-Tívolíinu í Hveragerði. Þar kynnum við Mobira Talkman farsímann, fylgihluti á borð við textaprentara og brenglar^, auk Mobira Cityman handsímans sem kemst nánast ofan í brjóstvasa eigandans! MOBIRA TALKMAN Eini farsíminn á íslandi með ábyrgð og ókeypis kaskó- tryggingu í þrjú ár! Þetta er aldeilis tækifærið: Að taka syrpu með krökkunum í leiktækjunum og reynasíðan farsímatækni eins og hún gerist þróuðust með því að hringja í ömmu! IX Hátæknlhf. Ármúla 26, símar: 91 -31500 - 36700 15% staðgreiðslu- afslátturámeðan sýningarbíllinn erálandinu Askriftarsíminn er 83033

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.