Morgunblaðið - 24.04.1988, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.04.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988 23 oykurmolarnir og „ Þegar breski poppsögvarinn Boy Ge- orge, sem héit hér tónleika fyrir skemmstu, var spuröur að því hvað hann vissi um fs- land kom upp úr kafinu að það var tvennt; hann vissi að kona vœri forseti og að Sykur- molarnir vœru frá íslandi. Þessí saga segir sitt um stöðu Sykurmolanna é Bretland, en hljómsveitin er 6 förum til Bretlands í byrjun maf til tónleikahalds. Þegar er upp- seh á fyrstu tónleikana f London, 19. maí, en þá leikur neðansjávarsveitin S.h. draumur með Molunum. í miðri síðustu viku kom heilsíðu plötudómur um Life's too Good í Melody Maker og er þar að finna mikinn grúa af lýsingarorðum. Ekki verður rakið hér hvað gagnrýnanda blaðsins finnst um hljómplötuna, en í dómnum heldur hann því fram að platan sé ein besta hljóm- plata sem út hafi komið. Þegar blaðamaður átti tal við Sykurmolana fyrir skemmstu var því kannski eðlilegt að byrja á plötudómnum. Apókrýfur Sykurmolanna Eruð þið ánngð með Melody Maker- dóminn? Hann er eiginlega of jákvæður. Það er talað um okkur eins og þetta séu ný trúarbrögð sem við erum að senda frá okkur; eins og þetta sé flís úr krossinum; apókrýfur Sykurmolanna. Platan kemur út á mánudag; hvað fylgir f kjðtfarið? Við veröum á ferð í Bretlandi frá 11. til 20. maí og byrjum svo að spila í Bandaríkjunum 25. maí og þá í New York, Boston, Wash- ington, San Francisco og Los Angeles. Að lok- inni Bandaríkjaförinni förum við einn dag til Hollands og síðan aftur til Bandaríkjanna í boöi Electra. Þessi áætlum breytist þó frá degi til dags því að okkur bjóðast alltaf ný og ný tækifæri til að eyða frídögum okkar í að halda tónleika; í að græða peninga, en við erum orðin sérfræðingar í þeirri listgrein. Síðan er búiö aö skipuleggja gróflega það sem eftir er ársins, allt fram til 23. desember. Það er þá ekki mikið sumerfrí framundan Life’s too Good“ hjá ykkur? Fer fólk ekki alltaf til útlanda í sumarfrfinu sínu? Verður ykkar Iff á þessu ári ekki líkast því að vera vélarhiuti? Jú, en við erum hlutar í okkar eigin vél, vél sem heitir Sykurmolarnir, en starfar erlendis sem The Sugarcubes. Við erum vél sem teng- ist annarri stórri vél og viö stjórnum okkar hluta sjálf. Við erum í raun ekki bundin neinum. Ef hljómsveitin hættir til að mynda þá getur eng- inn neytt okkur til að gera eitt eða neitt, við getum sagt upp öllum samningum með þrjátíu daga fyrirvara. Samningarnir tryggja bara það að næst plötur okkar koma út hjá fyrirtækjum sem hafa möguleika á að selja þær. Við höfum ekkert breyst Þið verðið f ferðaiögum í alft sumar og takið þvf sumarfríið hér á landi; getið þið gengið hér um án þess að fóik sýni ykkur áhuga? Það hefur alltaf verið fólk sem sýnir okkur áhuga, en nú sýnir það okkur kannski of mik- inn áhuga. Það eina var að fjölmiðlar sýndu okkur ekki áhuga. Þegar okkur fór að ganga vel ytra fóru þeir að taka við sér og á fyrstu tónleikunum sem við hóldum hér heima eftir það, í Hart rokk kaffi, þá voru áheyrendur nær eingöngu fjölmiðlafólk. Maður sá heilu útvarps- stöðvamar á sumum borðunum. Það káfar ekki upp á okkur ef þessir menn vilja tala við okkur, en það er aftur annaö mál hvort við viljum tala við þá. Þetta sýnir svo enn og aftur hvað meirihlutinn af þessum fjölmiðlamönnum hefur sjálfstæðar skoöanir á því sem er að gerast. Sem minnir mann á lokaorðin á Casa- blanca-tónleikunum 30. október sl.: Við höf- um ekkert breyst, það voru bara fjölmiðlarn- ir sem tóku við sér. Það stendur ennþá. Melody Maker reið á vaðið með að hrósa ykkur og hefur hrósað ykkur ótæpilega síðan. L/ta menn þar ekki á ykkur sem sína eign? Jú, en það er þeirra mál. ( síðustu fjölmiðla- ferð okkar út var það aðalvandamál þeirra sem ræddu við okkur hvað við hefðum fengið já- kvæða umfjöllun, m.a. i Melody Maker, og hvort við værum ekki hrædd við að fá bakslag. Þeir héldu að við værum búin að ski.iuleggja þetta allt frá upphafi og töluðuð um „media hype", eða blekkingu sem sérstaklega væri ætluð fjölmiðlum. Hvað sem því líður þá- er þetta ekki komið frá okkur, þetta umstang allt er skapað af fjölmiðlum og ekki síður á ís- landi. Við höfum hitt sjóaða poppara sem voru á toppnum fyrir fimm árum eða svo og þeir eru að koma til manns og segja, bíðið þið bara, þið eigið eftir að fara niöurávið. Það kem- ur okkur þó ekki við, ef það er gangurinn, þá bara gerist það. Við þurfum oft að taka það fram við blaðamenn, sem komnir eru út í fárán- Takturogtregi Sem einn þeirra sem elt hefur Sykurmolana, stærstu bflskúrs- hljómsveit Vestur-Evrópu, á tfu tfl fimmtán tónleikum sfðustu seutján mánuðl, var undirritaður orðinn langeygur eftir stóru plötunni sem sveitarmeðlimlr voru sffellt að lofa. Sú bið er á enda, því á mánudaginn kemur út ptatan Ufe’s too Good. Plötuna mætti í raun kaila yfirlit yfir starfsferil sveitarinnar og í því yfir- litl er hver perlan af annarri, ellefu ógleymanleg lög; Traitor, Motorcrash, Birthday, Delicius Demon, Mama, Cold Sweat, Blue Eyed Pop, Deus, Sick for Toys, Take R'n'B og Petrol. Ekkert lag er hægt að kalla uppfyllingu og níu þeirra myndu standa undir því að vera a-hlið á tveggja laga plötu. Ekki vil óg ganga svo langt að segja að þetta sé basta rokkplata sem ég hafi heyrt, en ég man ekki eftir ann- arri betri i svipinn. Það er þó öruggt að Life’s too Good er besta íslenska rokkplata sem ég hef heyrt á þessum áratug. Lagið Take R’n'B vil ég síðan tilnefna sem eitt af tuttugu bestu lög- um allra tíma (i gervinu Tekið í takt og trega færi það í hóp tíu bestu eða jafnvel fimm bestu, en það er annað mál). Sex stjörnur. Ární Matthíasson Ljósmynd/BS legar vangaveltur, að við erum mestallan okkar tíma á íslandi og erum bara áhorfendur að allri þessari velgengni. Við þekkjum ekki þetta fólk sem verið er að skrifa um og birta myndir af þó við vitum að þetta erum við. Það er ótrúlegt að fólk geti litið yfir það sem við höfum gert á síðustu árum og haldið að það sé stórkostlegt samsæri. Það er þó að vissu leyti ánægjulegt að viö skulum hafa örv- andi áhrif á ímyndunarafl fólks. (slendingar eru mikil bókmenntaþjóð. Þannig að þið eigið eftir að verða efniviður f Ijótar sögur. Vonandi. Rík og f rœg Það er alltaf draumurinn að verða ríkur og frægur. Þið eruð orðin fræg, eruð þið orðin rík? Ekki enn, en annars er það okkar einkamál. Við höfum ekki fengið peningafúlgu í okkar einkaneyslu, en við höfum fengið fúlgur í veltu; til að reka batteríið sem er Sykurmolarnir. Við emm með átta manns í vinnu hér heima og ytra og það eru allskyns smáatriði sem tengj- ast þessu. Þetta er orðið einskonar SÍS. Við ætium að stofna fyrirtæki sem á að heita Hug- leysi Vm h/f, sem sér um peningahliðina. Þaö verður ekki fjárfestingarfélag, þannig að fólk getur gleymt því að fara aö rukka okkur um lóðun á snúru fyrir sex árum. Við höfum eytt miklum tíma í það að reyna að skapa okkur eigin lífsrými og veriö með stóran kjaft við stórfyrirtæki úti, en höfum um leið verið á hrakhólum með æfingarhúsnæði, með fjármuni, tæki og hljóðfæri og jafnvel með húsnæði fyrir okkur sjálf. Það hefði ekkert ver- ið auðveldara en að skrifa undir samning og þá hefðum við getað haft það fint. Það sem við höfum verið að gera undanfarið hefur verið að skapa okkur starfsfrið, en nú þegar allt er um garð gengið þá fáum við ekki frið fyrir for- vitni því það halda allir að við séum orðin rík. Þegar við vorum fyrst að fara út og fara í sjónvarpsviðtöl og blaðaviðtöl þá var farið með okkur eins og tuskur og það fór ótrúlega mik- il orka í það að fá að vera við sjálf, að fá að ráöa því hvað viö segðum og gerðum. Líkleg- ast hefði verið auðveldara að láta undan og gera eins og okkur var sagt, en nú erum við að uppskera eftir þá baráttu og fólk er farið að spyrja okkur um það hvað við viljum. Hvað með stöðu hljómsveitarinnar á ís- landi? Búist þið við almennum vinsældum eftir það sem á undan er gengið? Við erum orðin svo vön því að vera erfið og tormelt; að vera úti í horni með okkar áhuga- mál, að við myndum ekki kunna við það ef fólk færi að taka okkur vel. Ætli okkur þætti þá ekki eitthvað vera að? Fólk öskraði á okkur að vera ekki með þennan hroka þegar allir íslensku fjölmiðlarnir ætluðu að éta okkur með húð og hári í vetur. Við bara trúðum þessu ekki, það var of gott til að vera satt að núna allt í einu væru Sykurmolamir orðnir svona skemmtilegir. Okkar hroki er þó alltaf heiðar- legur, ef það er þá hroki. Viðtal: Arni Matthíasson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.