Morgunblaðið - 24.04.1988, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 24.04.1988, Blaðsíða 66
66 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988 f m ABU JIHAD LögTegluvörður við bústað Abu Jihads: árásarmennirair voru þaulkunnugir. r SIHBSTAÐIRINN PALESTINUMENN HOTA HEFNDUM Yasser Arafat og Abu Jihad: gamlir vopnabræður. LEIÐTOGAR Frelsissamtaka Palestínu, PLO, hóta að hefna sín á ísraelsmönnum, sem þeir kenna um morðið á Khalil Al-Wazir, æðsta herforingja samtakanna, í höfuðborg Túnis á dögunum. Þeir hafa lýst því yfir að Wazir, öðru nafni Abu Jihad, „Faðir baráttunnar“ eða „Faðir hins heilaga stríðs“,verði„ekki síðasti píslarvottur málstaðar Palestínumanna og „píslarvættis hans verði hefnt“. Róttæk skæruliðasamtök Abu Nidals I Beirút, Byltingarráð Fatah, hafa tekið í sama streng og heitið þvi að hefna morðsins „með kúlum og blóði.“ Forystumenn PLO segja að hins fallna foringja verði hefnt með árásum á ísraelsmenn á Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu (í samræmi við svokallað Kaíró-samkomulag frá 1985), en ekki er útilokað að einnig verði ráðizt á skotmörk utan Israels. Morð Abu Jihads hefur stælt baráttuvilja Pa- lestínumanna og- magnað átökin á her- teknu svæðunum. Daginn eftir morðið varð mesta blóðbað, sem þar hafði átt sér stað síðan uppreisn Palestínumanna hófst 9. desember. Að minnsta kosti 14 féllu og þar með höfðu 157 beð- ið bana síðan uppreisnin hófst. Abu Jihad stjómaði uppreisninni og leið- togar PLO telja að ísraelsmenn hafi myrt hann þess vegna. Auk þess eru þeir vissir um að Banda- ríkjamenn hafi veitt samþykki sitt til morðsins, þótt stjómin í Wash- ington neiti því og hafi fordæmt tilræðið. Israelsmenn hafa hvorki viljað staðfesta né neita að þeir hafi myrt Abu Jihad. Hins vegar herma heim- ildir í Tel Aviv að ísraeiska leyni- þjónustan, Mossad, hafí beðið stjóm Yitzhaks Shamirs a.m.k. þrisvar sinnum um leyfí til að ráðast á Abu Jihad. Fyrst í stað vildi stjómin ekki víkja frá „þegjandi samkomu- lagi“ um að leiðtogar PLO skyldu ekki myrtir. Afstaða hennar breytt- ist þegar skæruliðar Fatah, fjöl- mennustu samtaka hrejrfíngarinn- ar, rændu hópferðabíl í Negev- auðninni í síðasta mánuði og myrtu þijá starfsmenn Dimona-kjamorku- versins. Abu Jihad var leiðtogi Fatah frá gamalli tíð og talið var fullvíst að hann hefði skipulagt ár- ásina. Síðan varð vemleg aukning á tilraunum palestínskra skæmliða til að laumast inn í ísrael. Víkingasveit Eftir árásina í Negev samþykktu Shamir og helztu ráðherrar hans, Shimon Peres varaforsætisráðherra og Yitzhak Rabin landvamaráð- herra, loks að Abu Jihad skyldi ráðinn af dögum. Yfírmenn Israels- hers, Dan Shomron og Ehud Barak, tóku þátt í að skipuleggja aðgerð- ina, sem var nauðalík árás ísraeis- manna frá sjó á aðalstöðvar skæm- liða í Beirút í aprfl 1973, þegar þeir felldu þijá leiðtoga PLO, Kam- al Nasr, Mahmoud Yussuf Najjer og Kamel Adwan. Samkvæmt heimildunum í Tel Aviv vom mennimir, sem vom vald- ir til að taka þátt í aðförinni gegn Abu Jihad, úr Mossad, víkingasveit sjóhersins, Hakommando Hayami, og úrvalssveit landhersins, Sayeret Matkal, sem bjargaði gislum úr klóm flugræningja í Entebbe í Ug- anda 1976. Að sögn yfirmanns ör- yggismála PLO, Abu Iyad, var „heilinn á bak við tilræðið nýr yfir- maður Mossact', sem hann nafn- greindi ekki. Glæsilegur bústaður Abu Jihads í Túnisborg er í úthverfínu Sidi Bou Said og stendur við sjóinn. Sjö eða átta hermenn, vopnaðir vélbyssum og skammbyssum búnum hljóðdeyf- um, tóku þátt í árásinni og munu hafa farið f land á gúmbátum frá fallbyssubáti ísraelska sjóhersins. Samkvæmt sumum fréttum vom þeir klæddir einkennisbúningum túnískra þjóðvarðliða. Þeir nutu líklega stuðnings a.m.k. 30 starfs- manna Mossad og munu hafa þótzt vera skemmtiferðamenn og notað fölsuð frönsk, grísk og skandinavísk vegabréf til þess að komast inn í landið. Þeir tala arabísku og könn- uðu allar aðstæður til öryggis. Aður en árásin var gerð rofnaði allt símasamband í hverfinu þar sem Abu Jihad bjó. Túnísk rann- sóknamefnd hefur skýrt frá því að ísraelsk flugvél af gerðinni Boeing 707, „með einkennisstöfunum 4/997“, hafi verið á sveimi um 55 km undan ströndinni og truflað Qar- skipti í landi með flóknum rafeinda- tækjabúnaði, þegar árásin var gerð. „Rannsóknin hefur leitt f ljós að Israelsmenn vom viðriðnir þessa lúalegu hryðjuverkaárás, sem þeir skipulögðu og framkvæmdu," sagði í tilkynningu. „Árásin á heimili Abu Jihads var þess eðlis að aðeins ríki gat framkvæmt hana.“ Innrás Árásarmennimir fóm til bústað- ar Abu Jihads í smárútum, um- kringdu hann og notuðu kúbein til að bijótast inn. Árásin var gerð kl. 1.55 eftir miðnætti að staðartíma 16.apríl. Túnískur bflstjóri, sem sat í bfl sínum fyrir utan, hlustaði á útvarp og drakk te, var skotinn til bana. Oryggisráðstöfunum var greinilega áfátt og árásarmennimir virtust gerþekkja bygginguna. Tveir palestfnskir lífverðir reyndu að stöðva þá, en vom felldir með vélbyssuskothríð. Abu Jihad, sem var nýkominn heim og sat við skriftir í skrifstofu sinni á annarri hæð, heyrði hávað- ann og hljóp niður. Hann var vopn- aður skammbyssu, en féll fyrir 70 vélbyssukúlum árásarmannanna í viðurvist konu sinnar og unglings- dóttur. Önnur dóttir þeirra, sem er tveggja ára, var sofandi. Þjónustustúlka sá einn árásar- mannanna kvikmynda það sem fram fór. Kona Abu Jihads, Intiss- ar, tók eftir því að einn úr árásarlið- inu var Ijóshærður og talað arabísku með erlendum hreim. Hann skipaði henni að fara inn í svefnherbérgi. Þar komst hún út á svalir og hróp- aði á hjálp, en árásarmennimir óku burt á ofsahraða. Seinna fundust þrír bflar árásar- mannanna, tvær smárútur af Volkswagen-gerð og Peugeot 305, á ströndinni, um 40 km fyrir norðan Túnisborg. Rannsókn hefur leitt f ljós að þrír menn um fertugt með Ifbönsk vegabréf, Khalil Kati, Haqouata Allam Mustapha og Gor- iah Najir Rachad, höfðu tekið bflana á leigu og fótspor í fjörunni bentu til þess að þeir hefðu flúið sjóleiðina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.