Morgunblaðið - 24.04.1988, Side 29

Morgunblaðið - 24.04.1988, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988 29 þeir sneru við honum baki vegna þess að þeim fannst hann halda illa á málum í viðræðum við Kýpur- Tyrki. „Nýstárlegur“ Þótt Vassiliou nyti stuðnings Akels telja vestrænir fulltrúar hann ekki kommúnista og benda á að hann styðji t.d. tollabandalag Kýpur og Evrópubandalagsins og hafí allt aðra afstöðu en þeir í fleiri málum. En e.t.v. mun há honum að 48% kjósenda þorðu ekki að kjósa hann, því að þeir töldu að hann yrði verk- færi Akels. Ymsum fannst hann líka nokkuð óspar á kosningaloforð og það kann einnig að koma honum í koll. Algengt var að æstustu stuðn- ingsmenn segðu fyrir kosningamar: „Kýpur verður paradís á jörðu!" Grískum Kýpurbúum fínnst Vassiliou „nýstárlegur", eins og fv. ráðherra hefur komizt að orði, og þeir virðast yfírleitt vilja gefa hon- um færi á að sýna hvað hann hefur til brunns að bera. Grikklands- sérfræðingurinn Kenneth Mac- Kenzie skrifar: „Helzti veikleiki hans er sá að hann hefur alls enga stjómmálareynslu og styðst ekki við dyggan hóp aðstoðarmanna, sem hann getur dreift til verkefn- um. Styrkur hans er fólginn í því að hann er viðfelldinn og á merki- lega auðvelt með að ná til fólks, sem er skýringin á því að margir óháðir kjósendur kusu hann. Staða hans getur orðið sterk, ef honum tekst að sýna að hann sé raun- verulega óháður ættjarðarvinur, sem sé hafínn yfír leynimakk og flokkadrætti." Áhrif Vassilious munu standa og falla með því hvort honum tekst að leysa deiluna við Kýpyr-Tyrki og stjómina í Ankara um framtíð- arstöðu eyjunnar. Kýpurmálið komst í algera sjálfheldu í 10 ára forsetatíð Kyprianous, þar sem Kýpur-Tyrkir ákváðu að koma á fót óháð smáríki með stuðningi 30.000 tyrkneskra hermanna frá megin- landinu. Kyprianou krafðist brott- flutnings tyrkneska herliðsins og 65.000 tymeskra landnema og setti það sem skilyrði fyrir því að viðræð- ur gætu hafízt. Þrýstingnr í kosningabaráttunni hét Vassili- ou nýjum tilraunum til að binda endi á þráteflið með sveigjanlegri afstöðu. „Við verðum að hafa skýr markmið: tryggingar fyrir öryggi, brottflutning tyrkneska herliðsins og raunverulegt sambandsríki," sagði hann. Þótt hann hefði enga reynslu af deilunni kvaðst hann reiðubúinn að ræða við Rauf Denkt- ash, leiðtoga Kýpur-Tyrkja, „án fyrirfram skilyrða,“ en tók fram að sáttaumleitanir gætu tekið tíma. Grískir Kýpurbúar sannfærðust um að Vassiliou gæti reynt nýjar leiðir til að leysa deiluna og fleiri vandamál og það var enn ein skýr- ingin á sigri hans. Hófsöm afstaða hans í Kýpur-málinu varð til þess að sigri hans var yfírleitt vel tekið í erlendum höfuðborgum, þrátt fyr- ir tortryggni í hans garð vegna stuðnings fjölskyldu hans við kommúnista. Jafnvel Bretar, sem hafa herlið á Kýpur, virtust sætta sig við afstöðu hans. Hins vegar er ljóst að Vassiliou mun eiga fullt í fangi með að finna lausn, sem Kýpur-Grikkir geta sætt sig við, því að þeir vilja ekki sam-' þykkja tilslakanir. Síðan Vassiliou tók við embætti hefur hann raunar sett skilyrði, sem benda til þess að stefna hans verði lítt frábrugðin þeirri stefnu, sem Kyprianou fylgdi. Hann hefur þegar orðið fyrir þrýst- ingi frá harðlínumönnum, sem leggjast gegn hvers konar viðræð- um við Tyrki meðan þeir hafa her- lið á Kýpur. Eftir á að koma í ljós hvort hann er nógu viljasterkur til að framfylgja þeirri stefnu, sem hann boðaði í kosningabaráttunni. GH I dósum, ískalt Coca Cola úr íslensku vatni. DrckkiA Coca Cola Skráselt vörunuTki Framlciöandi Vcrksmiöjan ViTilfcll hf. Handbolta - bílahappdrættíö Stöndum saman - ÍSLAND á verðlaunapall á Ólympíuleikunum! * Sameiginlegt átak okkar gerir það mögulegt 35 BÍLAR Dregið 9. maí næstkomandi Greiðum heimsendan gíróseðil (kr. 400,-) FLUGLEIDIR fZ aðalstuðningsaðili HSÍ ATTlR-OCTAVO SIA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.