Morgunblaðið - 24.04.1988, Page 28

Morgunblaðið - 24.04.1988, Page 28
28 MÚRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988 Svipmynd á sunnudegi /Georg Vassiliou Ríkur vmstrísimii forseti á Kýpur VINSTRI sinnaður auðkýfingur, Georg Vassiliou, var nýlega kosinn forseti Kýpur, aðeins níu mánuðum eftir að hann hóf afskipti af stjórnmálum. Hann sigraði tvo reyndustu stjórnmálaleiðtoga eyjunn- ar, Spyros Kyprianou, fráfarandi forseta, i fyrri umferð forsetakosn- inganna og Glafkos Clerides, leiðtoga hægrimanna, í hinni siðari. Vassiliou var í orði kveðnu óháður frambjóðandi, en naut stuðnings öflugs kommúnistaflokks griskumælandi Kýpurbúa, Akel, sem fylg- ir Rússum að málum og er andsnúinn svokölluðum „Evrópukommún- isma“. Stuðningsmenn hylla Vassiliou: naumur sigur. Vassiliou og frú fagna sigri: deilan um framtið prófsteinninn á hæfni hans. í síðari umferð kosninganna, 21. febrúar, naut Vassiliou stuðnings róttæks sósíalista, dr. Vassos Lyss- arides, sem hafði fallið út í fyrri umferðinni ásamt Kyprianou, og stuðningur hans réð úrslitum. Auk þess hlaut Vassiliou fylgi margra stuðningsmanna Kyprianous for- seta og það kom á óvart, því að búizt hafði verið við að þeir mundu kjósa Clerides. Vassiliou, sem er 56 ára gamall, hefur óvenjulegan feril að haki. Foreldrar hans voru í hópi stofn- enda Akel 1941, þegar bannaður flokkur kommúnista á Kýpur var endurreistur. Faðir hans, Vasos, var augnlæknir og barðist með komm- únistum í borgarastríðinu í Grikk- landi 1944-1949. Móðir hans, Fofo, var tannlæknir og fjölskyldan sett- ist að í Búdapest. Þegar Georg var á fyrsta ári í læknaskóla í Genf 1949 buðust for- eldrar hans til að stunda skæruliða kommúnista í Grikklandi. Vasos var með skæruliðum í tvo mánuði, en Fofo varð um kyrrt í Búdapest. Á árunum 1950-1960 dvöldust Vass- iliou-hjónin í Sovétríkjunum, lengst af skammt frá Tashkent í Mið- Asíu, þar sem skæruliðahemum var komið fyrir. Þau sneru aftur til Kýpur 1960 og tóku ekki þátt í starfsemi kommúnista eftir það. í Búdapest 1956 Georg Vassiliou fór aftur til Búdapest 1950 og fékk vinnu í verksmiðju. Hann hætti námi í læknisfræði og hlaut svokallaðan verkamannastyrk til að stunda nám í ungverska hagfræðiháskólanum. Hann var kommúnisti á námsárum sinum, en kveðst hafa tekið sinna- skiptum þegar hann sá uppreisnina í Ungverjalandi bælda niður með sovézkum skriðdrekum 1956. Nú vill hann sem minnst gera úr stuðn- ingi sínum við kommúnista á yngri árum, en honum er enn hlýtt til til kommúnistaflokksins á Kýpur vegna þess að foreldrar hans áttu þátt í stofnun hans. Hann talar ungversku og rússnesku reiprenn- andi og kann ensku og fleiri tungu- mál. Vassiliou hlaut doktorsnaftibót í hagfræði í Búdapest fyrir ritgerð um ríkisafskipti ( efnahagsmálum. Árið 1958 fór hann til Lundúna til að sérhæfa sig í „markaðssetningu" og markaðsrannsóknum. Hann starfaði um tíma í Bretlandi á sér- sviðum sínum og hefur verið gisti- prófessor við kunnan viðskiptahá- skóla þar. Á námsárum sínum í Bretlandi seldi hann farmiða á jám- brautarstöð. Þegar Vassiliou sneri aftur til Kýpur 1962 var ekki að sjá að hann hefði orðið fyrir varanlegum áhrif- um frá kommúnisma, en hann hefur alltaf verið orðaður við þá vegna baráttu foreidra hans fyrir málstað þeirra. Hann tók sæti í ýmsum nefndum og í stjómum fyrirtækja, fékk inngöngu í félög kaupsýslu- manna og var fenginn til að út- skýra hagfræðileg vandamál í sjón- varpi. Brátt haslaði hann sér völl sem einhver umsvifamesti verktaki Kýpur og varð alger andstæða hug- mynda manna um kommúnista. Stórfyrirtæki Vassiliou kom á laggimar stærsta markaðsrannsóknar-fyrir- tæki við austanvert Miðjarðarhaf („Middle East Marketing Research Bureau") og hefur stjómað því úr stórhýsi í útjaðri Nikósíu. Fyrirtæk- ið hefur útibú í 11 löndum og með- al viðskiptavina þess eru bandaríska viðskiptaráðuneytið og skipulags- málaráðuneyti Saudi-Arabíu. Velta þess nemur um fimm milljónum Bandaríkjadala á ári. Kona hans er „lögfræðingur, menntuð í Bret- landi og eins og klippt út úr tízku- blaði". Þau eiga þrjú böm og það elzta, 21 árs gömul dóttir, stundar nám í landafræði í enskum háskóla. Áður en Vassiliou hóf stjóm- málaferil sinn fyrir tæpu ári hafði hann oft haldið því fram í ræðum á Rotary-fundum og víðar að for- seti Kýpur yrði að vera hafínn yfír flokkadrætti og dægurþras. Hann hafði fundið að því að Kyprianou forseti væri bundinn af fyrirmælum, sem h"nn fengi frá flokki sínum (Lýðræðisflokknum) í viðræðum um sameiningu Kýpur. Þeir sem sættu gagnrýni Vassilious áttu erfitt með að svara honum, þar sem hann stóð fyrir utan vettvang stjómmálanna. Framboð Vassilious kom mjög á óvart, en hann undirbjó kosninga- baráttu sína af kostgæfni og naut dyggrar aðstoðar sérfræðinga sinna í markaðssetningu. Þeir kynntu sér sigurmöguleika óháðs frambjóð- anda eins og hans, styrk og veik- leika líklegra mótframbjóðenda, skoðanir stuðningsmanna og and- stæðinga og álit venjulegra Kýp- urbúa á því hvaða kosti forseti þyrfti að hafa til að bera. Enginn hafði áður háð eins nútímalega og vel skipulagða kosningabaráttu á Kýpur og hún bar þann árangur að Vassiliou sigraði, að vísu með litlum mun, og varð þriðji forseti eyjunnar síðan hún hlaut sjálfstæði fyrir 28 ámm. Að mörgu leyti virðist Vassiliou dæmigerður stuðningsmaður einka- framtaks, en þótt hann hafí aðal- lega umgengizt auðuga kaupsýslu- menn hefur hann alltaf staðið lítið eitt til vinstri við miðju í vissum málum síðan hann sneri baki við kommúnisma. Hann hefur aðhyllzt svipaðar skoðanir og lýðræðis-jafn- aðarmenn og það hefur m.a. komið fram í viðhorfum hans til velferðar- mála, heilbrigðismála og „dagvist- unarmála“ útivinnandi húsmæðra. Þess vegna naut hann stuðnings kommúnista, sem hafa heldur ekki gleymt því að foreldrar hans voru virkir marxistar. „Rauða hættan“ Kommúnistar vissu að frambjóð- andi úr þeirra röðum hafði enga sigurmöguleika, því að meirihluti kjósenda hefði ekki þorað að kjósa hann. í fyrstu studdi Akel annan óháðan og vinveittan frambjóðanda, Georg Ioannides, en flokkurinn varð að hætta stuðningi við hann'þegar ljósmjmd af honum í hátíðarbúningi frímúrara skaut upp kollinum. Stuðningur kommúnista átti drýgsta þáttinn í sigri Vassilious og hann naut góðs af skipulags- hæfíleikum þeirra. Sigur hans var ekki sízt merkilegur fyrir þá sök að svör fengust ekki við mörgum spumingum um feril hans í kosn- ingabaráttunni. Samstarfsmenn Vassilious segja að hann sé harður í hom að taka, en f kosningabaráttunni lagði hann sérstaka áherzlu á að hann hefði verið blásnauður og þurft að leggja hart að sér á yngri ámm, þegar hann kom sér áfram af eigin ramm- leik. Hann gaf sér góðan tfma til að spjalla við kjósendur að banda- Kyprianou: úr leik eftir 10 ár i embætti. rískum sið og heimsótti verksmiðjur til að heilsa upp á starfsfólkið. Á blaðamannafundum kom f ljós að hann er eindreginn stuðningsmaður umbóta Mfkhails Gorbatsjovs í Sov- étríkjunum. Helzta vfgorð hans, al- laghi (breyting), hefur svipaða merkingu og glasnost, en með því er átt við að hreinsa verði til í stjóm- kerfinu og stjómmálalífinu. Andstæðingar Vassilious gerðu mikið veður út af því að ef hann færi með sigur af hólmi kynni það að hafa „rauða hættu" f for með sér. Hann var stimplaður útsendari KGB og þvf var haldið fram að hann væri valdalaus leiðtogi valda- ráns, sem kommúnistar mundu standa fyrir eftir kosningar. Um leið sakaði Kyprianou hann um að vera leiguþý Breta og brezka sendi- ráðið sá sig tilneytt að bera það til baka. í kosningabaráttunni reyndi Vassiliou að gera lítið úr tengslum sfnum við Akel án þess að fæla frá sér fjölmennasta hóp stuðnings- manna sinna. „Ég læt ekki stjóma mér að tjaldabaki," sagði hann. Vafalaust verður hann að launa kommúnistum stuðninginn, en hann hefur oft sagt að kommúnistar hafí stutt Kyprianou í átta ár, þótt hann stæði hægra megin við miðju, unz

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.