Morgunblaðið - 24.04.1988, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 24.04.1988, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988 NÁTTÚRUUNDRIÐ TRÉ OG ORKUBÚSKAPUR ÞESS Á sumardaginn fyrsta verða viss tímamót í hugum íslendinga þótt oft sé kalsasamt þann daginn. Menn eru minntir á að brátt hefjist nýtt vaxt- arskeið í ríki náttúrunnar blóm og jurtir fari að gægjast upp úr mold- inni og tré og runnar laufgast. Það er einmitt náttúruundrið tré og orkubúskapur þess sem hér er vakin athygli á — þegar vökvi fer að streyma um stofn og greinar — þegar ljóstillífun er hafín fyrir til- stilli sólarljóss, lofthita og blað- grænu. Þessi undur eru í raun leynd- ardómurinn um lífíð á jörðinni. Tré hafa þá sérstöðu í gróðurrík- inu að þau bæta við vöxt sinn á hverju ári en byija ekki upp á nýtt eftir veturinn eins og blómplöntur gera. Þau safna sólarorku í stofn og greinar — he§a sama búskap á vorin þar sem frá var horfíð síðasta haust. Meðfylgjandi skýringarmynd sýn- ir í stórum dráttum hvemig tré, t.d. birki, aflar sér næringar, eykur við stærð sína og þroskast á vaxtartí- manum þegar rétt skilyrði eru fyrir hendi. xx Hér eru birtar glefsur úr bók Hákonar Bjamasonar „Ræktaðu garðinn þinn“, sem kom út í 3. og endurskoðaðri útgáfu nú fyrir jólin til frekari fróðleiks, en bókin hefur að geyma leiðbeiningar um trjá- rækt. Um aldursskeið trjáa: „Tré hafa sín aldursskeið á sama hátt og aðrar lifandi vemr, bemsku, æsku, fullorðinsár og elli. Á fyrsta og öðru aldursskeiði em tréin viðkvæmari og þola verr áföll en síðar. Vöxtur þeirra er oft hraður fram til fullorðinsára og gildir það einkum um hæðarvöxtinn. Þegar hæfilegum þroska er náð fara trén að bera blóm og fræ, en það er ekki fyrr en þau em fullþroska sem fræ- vöxtur verður mikill oftast á fárra ára fresti eða árlega. Um það leyti er hæðarvexti að mestu eða öllu lok- ið en hins vegar heldur tréð áfram að gildna enn um mörg ár. Trén em langlíf — langlífari en flest annað sem lifir á jörðu hér. Þó er mikill munur á meðalaldri hinna ýmsu tegunda . . . Elstu birki- tré hér á landi em um 100 ára... 10-15 METRA HÁTT BIRKITRÉ * GETUR BORIÐ ALLTAÐ 50 ÞÚSUND LAUFBLÖÐ. MEÐ UÓSTILLÍFUNINNI EYKST DAGLEGA VIÐARMAGN TRÉSINS UM VAXTARTÍMANN. - LAUFIÐ BLAÐGRÆNAN BINDUR UÓSORKUNA OG BREYTIR KOLTVÍILDIANDRÚMS- LOFTSINS í NÆRANDI SYKRUR. FRÁLAUFINU KEMUR HREINTILDI (SÚREFNI) ÚTÍ ANDRÚMSLOFTIÐ. wm UÓSTILLÍFUN ^atnsg^ STOFNINN UM STOFN OG GREINAR LIGGUR ÖRFÍNT ÆÐANET Á MILLI YSTA VIÐARLAGS OG INNSTA LAGS BARKAR. ÞAR ER VAXTARLAG TRÉSINS, FARVEGUR NÆRINGAR- VÖKVANS MILLI RÓTAR- KERFISOG LAUFS. ÞAÐ ER ÞETTA ÆÐAKERFI SEM GETUR SKEMMST ÞEGAR SINA BRENNUR AÐ RÓTUM TRÉSINS, OG GETUR DREPIÐ ÞAÐ. ðf/Y'. . ÁRLEGUR 'jf/ VIÐARVÖXTUR (árhripgir) ?;/ " * ,mergur RÆTURNAR ÞÆR SJÚGA STEINEFNARÍK- AN VÖKVA ÚR JARÐVEGINUM OG ÝMS KÖFNUNAREFNIS- SAMBÖND OG FÁ UM LEIÐ SYKRUR FRÁ BLAÐKRÓN- UNNI. ÝMSAR SVEPPATEG- UNDIR UMLYKJA OFT RÓTAR- SPROTANA OG ÖRFA VÖKVA- VINNSLU TRÉSINSÚRJARÐ- VEGINUM. í STAÐINN FÁ SVEPPIRNIR DÁLÍTINN SKAMMT AF SYKRUFORÐA TRÉSINS TIL EIGIN ÞARFA. ARAGRÚÍÁNAMAÐKA K STUÐLAR AÐ JARÐVEGS-T,f,1 -JMYNDUN ÞEIR NÆRAST AJURTALEIFUM OG MYNDAjYf- «• ÞÉTTRIÐIÐGANGA-NET &■* USEM LOFT LEIKUR UM. JARÐVEGURINN HANN MYNDAST AF ROTN- ANDI LEIFUM PLANTNAOG DÝRAÁSAMT ÝMSUM STEINEFNUM. Álmur og hlynur geta orðið 500—600 ára. Margar fumtegundir geta orðið allt að 800 ára ... Sitka- greni getur orðið 800—850 ára. Stórviðir í Kalifomíu em sumir rösk- lega 3200 ára. Elstu broddfumr em að minnsta kosti 4200 ára í Kletta- íjöllum og Strandfjöllum N-Ameríku og em því sennilega elstu lífvemr jarðarinnar." Á öðmm stað í bók Hákonar er fjallað um hvemig tré afla sér nær- ingar til að lifa, vaxa, þroskast og bera fræ: „Tré afla sér fæðu bæði úr and- rúmslofti og jarðvegi. Úr lofti nema þau koltvíildi (C02) en úr jarðvegi soga þau vatn ásamt næringarefnum ... Grænukomin í blöðum plantna em kveikja alls lífs á jörðinni. Fyrir kraft sólarorkunnar kljúfa þau vat- nið í ildi og vetni og þau sameina vetnið og koltvíildi loftsins í sykur. Ildið hverfur aftur til andrúmslofts- ins en sykmmar breytast í margs- konar lífræna næringu, sem er fæða trésins. Næringarefnin berast frá blöðum um blaðstilkinn inn í greinar og fara eftir sáldvefum inn í vaxtarlag, merggeisla og ofan í rætur og víðar allt eftir því hvar. þörf er fyrir þau.. . Til þess að sameina loftfæðu tijánna og næringarefni úr jarðvegi verður að vera stöðugur straumur vatns frá rótum til blaða ... Rétt er að benda á að trén verða að anda einsog aðrar lifandi vemr til þess að breyta næringunni í orku. Þau draga til sín ildi loftsins gegnum blöð, greinar, stofn og rætur eftir því sem lífsstarfsemin krefst." xx „í þann tíð var ísland viði vaxið milli fjalls og fjöru," segir Ari fróði í íslendingabók um landnámstímann oft er vitnað í þessi orð. Mönnum kemur saman um að hinar uppmnalegu tijátegundir sem uxu þá hér hafí verið björk og víðir. Sumir segja að það sé þessum uppr- unalega tijágróðri á íslandi að þakka að þjóðin lifði af hörmungar á fyrri öldum — þessir skógar vom gemýtt- ir og ekki skeytt um endumýjun. Nú em aðrir tímar og mál að bæta um. Um birkið segir Hákon í bók sinni: „Birki, betula: Til em um 40 tegundir birkis. Þær vaxa allar á norðurhveli jarðar, sumar mjög norðarlega og hátt til fjalla. Margar þeirra em lágvaxnar, sumar aðeins mnnar og nokkrar skriðular. Hér ál andi em taldar tvær tegundir birk- is: ilmbjörk (betula pubescens) og fjalldrapi (betula nana). Nöfnin birki og björk má rekja aftur í sanskrít en þýðing þeirra er hið bjarta eða ljósa tré ... Ilmbjörk- in er hið eina tré sem myndað hefur skóga á íslandi frá því ísöld lauk. ... Nú er það álit fróðra manna að birkið hafí lifað af ísaldimar hér. Enn sem komið er vita menn mjög lítið um loftslag og gróðurskilyrði meðan á ísöld stóð en þau hafa auð- vitað verið mjög misjöfn á hinum ýmsu íslausu svæðum. Sums staðar hefur birkið staðið með allmiklum blóma en á öðmm stöðum hefur aðeins kræklubjörk og fjalladrapa verið vært... Er því síst að furða þótt íslenska birkið sé ærið sundurleitt. . . . Þrot- laus beit, sífellt traðk og skógarhögg hefur allt að því gjöreytt hinum foma uppmnalega gróðri. Fjórir fimmtu hlutar skóglendisins em undir 2 metrar á hæð og aðeins tæpir tveir hundraðshlutar mega kallast skógur frá 8—11 metrar á hæð. Skógarleifamar em nær allar vaxnar upp af gömlum rótum sem höggvið hefur verið ofan af hvað eftir annað. Má það teljast hending ein að finna óbæklað birkitré, sprott- ið upp af fræi á ófriðuðu landi.“ — H.V. tók saman
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.