Morgunblaðið - 24.04.1988, Síða 9

Morgunblaðið - 24.04.1988, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988 9 HUGVEKJA Þekkir þú mig ekki? eftir sr. HALLDÓR GUNNARSSON 3. sd. e. páska Jóh. 14;1.-11. Alltaf er það jafn erfitt þegar þetta er sagt við mann: Manstu ekki eftir mér? Og maður reynir eins og maður frekast getur að rifja upp andlitið, sjá eitthvað í fasi mannsins, eitthvað sem gæti komið manni til hjálpar. Síðan læðist hugsunin að: Á maður að segja ofurlítið ósatt til að vinna tíma eða til að hryggja ekki manninn og segja: Það er nú svo langt síðan. Vor- um við saman í bamaskóla — eða fermdumst við saman ... Nei, vomm við í gagnfræðaskó- lanum. Ha, — ekki heldur þar. Nei, ég kem þér alls ekki fyrir mig. Oftar kemur það þó fyrir að maður kannast við manninn, en kemur alls ekki fyrir sig nafni hans. Það er líka erfitt, því nafn- ið skiptir öllu í samræðum. Mað- ur hefur ekki traust á þeim sem ekki þekkir mann með nafni. Og kennari sem ekki þekkir nöfn nemenda sinna við allar aðstæð- ur heldur ekki virðingu eða aga. Og einnig geta þær aðstæður komið upp, að við þekkjum manninn og nafn hans, en lítum framhjá viðkomandi eins og við þekkjum hann ekki, því við höf- um ekki getað fyrirgefið við- komandi eða okkur sjálfum. Sé- um við sjálf sek, þá er blygðun okkar mikil — svo mikil, að það sem við höfum gert þolir ekki dagsljósið, þolir ekki að við horf- umst í augu við þann sem spyr okkur: Þekkir þú mig ekki? Þannig var þó ekki ástatt fyr- ir Filippusi, lærisveininum frá Betsaídu, þaðan sem Símon Pét- ur og Andrés voru, þegar Jesús spurði hann þessarar spurning- ar. Jesús var að flytja lærisvein- um sínum skilnaðarræðuna og reyna að útskýra fyrir þeim skil- in milli lífs og dauða og sagði. „Hjarta yðar skelfist ekki; trúið á Guð og trúið á mig.“ Síðan sagði hann þeim frá leiðinni sem hann færi og kom aftur inn á þessa stóru spurningu sem brann í huga lærisveinanna og sagði: „Ef þér hafið þekkt mig, munuð þér og þekkja föður minn. Og héðan í frá þekkið þér hann og hafið séð hann. Filippus segir við hann: Herra sýn þú oss föðurinn og þá nægir oss. Jesús segir við hann: Svo langa stund hefí ég með yður verið, og þú, Filippus, þekkir mig ekki?“ Jesús hafði kallað á Filippus til fylgdar í upphafí starfs síns og hann hafði orðið vitni að nær öllum kraftaverkunum, verið með honum í starfí hans frá morgni til kvölds, heyrt ræður hans og dæmisögur, lært bæn- ina: Faðir vor og flutt honum með lærisveinunum játninguna, við Sesareu Filippí: „Þú ert hinn smurði, sonur hins lifandi Guðs.“ Þekkir þú mig ekki? Snúum þessari spurningu Jesú til okkar. Við vorum kölluð til fylgdar við hann með skírninni, frædd af foreldrum og vandamönnum um Jesúm, lærðum Faðir vor og fluttum okkar játningu í ferm- ingunni þegar við vorum spurð: „Viltu leitast við af fremsta megni að hafa frelsara vorn Jes- úm Krist að leiðtoga lífs þíns?“ Svaraðir þú þessari spurningu ekki með jái? Eða manstu nokk- uð eftir þessari setningu úr ávarpi prestsins til þín: „Hafið alla ævi fagnaðarerindi frelsar- ans og dæmi fyrir augum og hugsið til orða hans: Hver sem kannast við mig fyrir mönnun- um, við hann mun ég einnig kannast fyrir föður mínum á himnum?“ Þekkir þú mig ekki? Þannig hljóðar spurning hans á þessum degi til þín. Dagurinn gæti verið sá fyrsti í lífí þínu, einnig sá síðasti. Spumingin hljómar hvar sem þú ert og kemur til þín með svo margvíslegum hætti. Þú getur reynt að koma þér undan með að svara, beðið um frest og þú getur vissulega sett þig í vamaraðstöðu og beðið um frek- ari sannanir. Leitað til dul- hyggju eða spíritisma, lært um orkusvið mannsins og litina sem umlykja okkur, lært um kraft hugsunarinnar og reynt sjálfur að kynnast þeim krafti. Þú getur svo margt, en hvað sem þú ger- ir og hvað sem þú reynir, þá kemstu ekki fram hjá þessari spurningu Jesú Krists: Þekkir þú mig ekki? Þessi spuming er samofín við líf okkar, því hún er spuming um fæðingu okkar og dauða, spuming um hvaðan við koinum og hvert við fömm. Það er alveg sama hvaða þekkingu við geym- um um allt annað undir sólinni, þessi spurning hljómar allt okkar líf, allt í kring um okkur og ef við höfum komið okkur fram hjá að svara, þá er það með engu móti hægt á skilnaðarstundu. Skilnaðarræða Jesú í Jóhann- esarguðspjalli er ræðan til okk- ar, kærleikur hans, útbreiddur faðmur hans, boð um leiðsögn og handleiðslu, boð um frið og jafnvægi, boð um allt það sem við leitum að og þráum. Hans orð em flutt til okkar: „Trúir þú ekki að ég er í föðurnum og faðirinn í mér? Þau orð, sem ég tala til yðar, þau tala ég ekki af sjálfum mér; en faðirinn sem í mér er, hann gjörir verk sín. Trúið mér, að ég er í föðumum og faðirinn í mér; en ef ekki, þá trúið mér vegna sjálfra ver- kanna.“ Brynhildur Sverrisdóttir Margrét Hinriksdóttir Hjá Fjárfestingarfélaginu íKringlunni erlifandi peningamarkaður FJARFESTINGARFÉLAGIÐ og persónuleg þjónusta. Kringlunni 123 Reykjavík Sími 689700 Sigrún Ólafsdóttir Stefán Jóhannsson Opið mánudaga til föstudaga kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-14 UFANDIPENINGAMARKAÐUR IKRINGLUNNI FJÁRMÁL fyrirtækisins „KOBKtruu*mw „gusHiam Símsvari ALLAN SÓLARHRINGINN í síma 28506. Upplýsingar um daglegt gengi Kjarabréfa, Markbréfa, Fjölþjóðabréfa og Tekjubréfa Gengi: 22. apríl 1988: Kjarabréf 2,775 - Tekjubréf 1,371 - Markbréf 1,445 - Fjölþjóðabréf 1,268

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.