Morgunblaðið - 24.04.1988, Side 2

Morgunblaðið - 24.04.1988, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988 Ljósmynd/BS Þúsundmanna rokktónleikar Breska rokkhljómsveitin Uriah Heep hélt tvenna tónleika í Hótel íslandi á fimmtudag og föstudag. Áheyr- endur voru um þrjú hundruð fyrra kvöldið, en seinna kvöldið voru þeir um þúsund að sögn aðstandenda tónleikanna. Áhorfendur voru flestir á fertugsaldri og virtust skemmta sér hið besta. Aðalfundur Sláturféiags Suðurlands: Miklar breyting'- ar verða kynntar Yfirverslunarstjóra sagl upp störfum MIKLAR breytingar á skipulagi og rekstri eru á döfinni hjá Slátur- félagi Suðurlands. Verða þœr tíl- kynntar á aðalfundi félagsins sem haldinn verður á Hvolsvelli næst- komandi fimmtudag. Breyting- anna gætir nú þegar. Yfirverslun- arstjóra SS hefur verið sagt upp störfum og sagði Steinþór Skúla- son, nýráðinn forstjóri fyrirtækis- ins, það vera hluta af skipulags- breytingunum. Jón H. Bergs for- stjóri sagði upp starfi sinu fyrir skömmu vegna ágreinings við stjóm félagsins. Steinþór kvaðst ekki vilja segja neitt frekar uni fyrirhugaðar skipu- lagsbreytingar. Hann sagðist vilja tilkynna starfsfólki um þær, áður en fiölmiðlar segja frá þeim. „Ég held að eftir aðalfund muni menn sjá að enginn þarf að efast um hvað liggur að baki þessu öllu hjá okkur," sagði Steinþór. Þijár stöðubreytingar voru kynnt- ar á föstudag hjá SS og sagði Stein- þór að von væri á fleiri breytingum. Hjalti H. Hjaltason, núverandi skrif- stofustjóri, mun taka við störfum sem fjármálastjóri fyrirtækisins og jafnframt vera staðgengill forstjóra. Staða skrifstofustjóra leggst þar með niður og verður hluti af verksviði §ármálastjóra. Jón Gunnar Jónsson, rekstrarverkfræðingur, mun taka við störfum framleiðslustjóra. Hannes Karlsson mun taka við vörumiðstöð félagsins sem deildarstjóri. Þessar breytingar taka gildi frá og með næstu mánaðamótum. Steinþór.vildi ekki tjá sig um frek- ari breytingar á starfsmannahaldi fyrirtækisins, en hafði þetta að segja um málið: „Ég vil helst ekki segja neitt um það, en það er alveg ljóst að ef einhveijar deildir verða seldar eða lokað, eða hvað yrði, þá þarf ekki að segja fólki upp. Það vantar það mikið fólk á vinnumarkaðinn að það er ekki um eiginlegar uppsagnir að ræða.“ Hann sagði að ef tii upp- sagna kæmi, þá yrðu þær fremur formlegs eðlis, þ.e. fólki yrði sagt upp hjá SS, en yrði áfram í starfi hjá öðrum. Steinþór sagði, að ekki hefði verið tekin ákvörðun um sölu á neinni verslun SS. Álafoss hf: A annað hundrað milljóna Nýr vegnrfrá Rauðavatni í Grafarvog Samgönguráðherra hefur fal- ið vegamáiastjóra að láta hanna gerð nýs Suðurlandsvegar frá Rauðavatni að Vesturlandsvegi í Grafarvogi og er áætluð lengd vegarins rúmlega kílómetri. Einnig skal hanna breikkun Vesturlandsvegar í 4 akreinar frá Höfðabakka að vegamótum Vestur- landsvegar og Suðurlandsvegar í Grafarvogi, tæpan kflómetra. króna tap fyrirsjáanlegt REKSTUR Álafoss hf. gengur erfiðlega vegna efnahagsstefnu ríkis- stjómarinnar, að sögn Jóns Sigurðarsonar forstjóra fyrirtækisins. Hann segir Alafoss hf. nú standa jafnfætis öðrum útfiutningsgreinum, eftir hagræðingaraðgerðir og verðhækkanir undanfarið, en gengis- skráning og verðbólga valda því, að 10 til 12% tap er fyrirsjáanlegt á rekstrinum i ár. Jón sagðist sjá fram á tap á rekstri Álafoss á árinu, en ekki geta gefið upp náV væmar tölur um það, þar sem ekki væri búið að reikna til fulls vaxtagreiðslur. Hann áætlaði þó að tapið yrði svipað og hjá öðrum útflutningsgreinum, á bilinu 10 til 12%. Heildarvelta Alafoss er áætluð Morgunblaðið/Þorkell Ramon Femandez Soignie, sendiherra, nælir orðuna í jakkaboð- ung Guðbergs Bergssonar, rithöfundar. Guðbergur Bergsson hlýt- ur orðu Spánarkonungs SENDIHERRA Spánar á ís- landi afhenti Guðbergi Bergs- syni, rithöfundi, orðu Spánar- konungs á sumardaginn fyrsta. Hún er veitt fyrir störf að þýð- ingum og er þetta æðsta heið- ursmerki sem Spánvetjar hafa veitt íslendingi. Orðuveitingin fór fram á heim- ili Ingimundar Sigfussonar, ræð- ismanns Spánar. Ramon Fem- andez Soignie, sendiherra, gerði sér ferð hingað með orðuna sem ber nafnið „Merito civile". Juan Carlos Spánarkonungur veitir hana fyrir störf að menningarmál- um. Guðbergur hefur þýtt um 25 bækur úr spænsku, jafnt klassí- skar bókmenntir sem nútímaverk eftir spænska og mið-ameríska rithöfunda. um einn milljarður króna og er tap- ið samkvæmt því á annað hundrað milljónir króna. Um hugsanlegar uppsagnir starfsfólks sagði Jón Sig- urðarson: „Við erum eins og allir aðrir í útflutningi núna, hugsum okkar ráð. Grandi reið á vaðið með að lækka launakostnað og ég held að menn bíði mjög margir næstu eina, tvær vikumar og sjái hvort stjómvöld grípa inn í eða hvort fram- fylgja eigi þeirri efnahagsstefnu sem hingað til hefur verið við lýði. Ef hún gildir áfram verða fjölda- uppsagnir í útflutningsgreinunum yfir höfuð og fjöldagjaldþrot, það er ábyggilegt." Jón sagði, að til að koma rekstri Álafoss á rétt ról þyrfti bæði að fella gengið og hægja á verðbólgunni. „Við höfum haft okkar tekjumöguleika nánast fasta með þessari gengisskráningu sem verið hefur og við þolum það ekki. Við stöndum þó ekki verr nú en aðrar útflutningsgreinar, það er í raun og veru það sem hefur breyst hjá okk- ur,“ sagði Jón Sigurðarson. Stjóm og forráðamenn Álafoss áttu fund með nokkrum ráðherrum á föstudag og sagði Jón Sigurðarson tilefni hans hafa verið að koma þvi til skila hvemig gengi hjá fyrirtæk- Siglufjörður: Færafiskirí að glæðast Siglufirði GÓÐ veiði hefur veríð á færí hjá trillukörlum undanfama daga. Þeir eru nú smám saman að skipta yfir frá grásleppuveiðum. Siðustu tvo til þijá daga hefur mikill smáufsi gengið i grásleppunetin. Færafiskirí er nú að glæðast hjá siglfirskum trillukörlum og em þeir að fá 400 til G00 kfló í róðri, einn maður á báti. Sex bátar em byijaðir á fæmm, búast má við að þeir verði 40 til 50 talsins þegar allir em komn- ir á færi. í veðurblíðunni undanfama daga hafa þeir róið um fiögurleytið á morgnana og koma seint að, um klukkan tíu að kvöldi. Aflinn er góð- ur þorskur. Grásleppukarlar hafa lent i vand- ræðum nú siðustu daga vegna mikils smáufsa, sem hefur gengið í netin og hefur verið mikið verk að hreinsa hann úr. Hafa sum netin fyllst af smáufsanum. — Matthias SÍS vill taka er- lent rekstrarlán Ástæðan er erfiðleikar kaupf élaganna SAMBAND íslenkra samvinnufélaga hefur óskað eftir heimild við- skiptaráðherra til að taka erlent rekstrarlán, að upphæð hátt á annað hundrað milljónir króna. Forstjóri Sambandsins segir að ástæð- an sé fyrst og fremst slæm staða kaupfélaganna og vinnslustöðva landbúnaðaraf urða sem hafi komið mjög þungt niður á Sambandinu og sé láninu ætlað að létta þann bagga. Guðjón B. Ólafsson forsijóri Sambandsins sagði við Morgun- blaðið að það væri ekkert launung- armál að reksturinn hjá Samband- inu og kaupfélögunum hefði verið ákaflega þungur á seinasta ári. Öll landbúnaðarstarfsemi og útflutn- ingsiðnaður hefði átt í vaxandi erf- iðleikum. Nýtt landbúnaðarverð- kerfi hefði lagst þungt á kaupfélög- in út um landið, afurðastöðvamar og Sambandið. „Það má segja að þessi lántöku- beiðni sé til komin vegna þess að það er búið að veikja svo grundvöll- inn fyrir þessar atvinnugreinar. Auðvitað hefði verið æskilegast að þurfa ekki að taka lán og geta lát- ið atvinnugreinamar standa undir sér en það hefur orðið erfíðara og erfiðara að láta þá enda ná sar an,“ sagði Guðjón. Hann sagði að svipaða sögu væ að segja um allt land og flestöll þí kaupfélög sem hafa landbúnaða vinnslustöðvar hafi goldið mik afhroð eftir að nýju landbúnaða lögin komu. Raunar hafi langfle kaupfélög verið rekin með tapi síðasta ári og sum með mjög alva legu tapi. Þegar Guðjón var spurður hve vegna ekki væri reynt að afla þes: lánsfjár innanlands sagði hann ; innlendur lánamarkaður væri þan ig að ekki væri auðhlaupið að þ að fá lán auk þess sem vaxtakj væm miklu dýrari á íslandi en c lendis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.