Morgunblaðið - 17.10.1987, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987
49
Morgunblaðið/Bjöm Guðmundsson
Snæfellsjökull að hausti
Bjarnarfjörður:
Þurfti að gista í
bílnum vegna veðurs
Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson
Allt er þakið siyó þar sem vegur á Bjarnarfjarðarhálsi fer þvert
yfir leið þá, er vörðumar merkja hina gömlu leið yfir í Bjamarfjörð.
Laugarhóli, Bjamarfirði.
STÓRÁHLAUP af veðri gerði
hér fyrir síðustu helgi. Hófst það
með snjókomu fimmtudaginn 8.
október, sem síðan jók fram á
föstudaginn og fylgdi með mikið
rok og gerði vegi nær ófæra hér
um fjörðinn á föstudeginum.
Póstur og áætlunarbifreið kom-
ust þó leiðar sinnar þann dag.
Laugardaginn 10. október var
svo komið sólskin og nær þvi
logn, en snjór yfir öllu.
Það var mikill lágarenningur um
allt á fímmtudeginum, en svo til
enginn snjór á vegum hér um slóð-
ir. Síðan fór að snjóa meira á
föstudagsnóttina og fram eftir degi.
Kyngdi svo niður snjó fram á að-
faranótt laugardagsins. Á laugar-
dag var svo komið gott veður og
héldu þá Bjamfírðingar til fjárleita.
Hætt er við að fé hafí hrakist í
veðrinu, sem ekki var búið að taka
á hús.
Þegar vegagerðarmenn komu
upp á Steingrímsíjarðarheiði á
föstudagsmorgun var þar fyrir
maður á bíl, sem orðið hafði að
gista á heiðinni um nóttina, þar sem
bíll hans hafði farið út af og óger-
legt var fyrir hann að koma honum
aftur upp á veginn um nóttina. Var
honum hjálpað upp á veginn. Litlu
síðar var vörubfll með þungan aft-
anívagn á leið upp á heiðina en
varð að stoppa, en þá dró aftaní-
vagninn hann útaf. Þannig urðu
nokkur óhöpp vegna veðursins, er
orðið þijú óhöpp í umferðinni áður
vegna veðurhæðar að nokkru leyti
og hálku. Aðeins var um skemmdir
á bflum að ræða.
Það voru bflar vegagerðarmanna
sem brutust gegnum skaflana á
föstudag og áætlunarbifreið frá
Guðmundi Jónassyni hf. komst alla
leið á Drangsnes, um Bjamarfjörð,
og skilaði farþegum af sér og hélt
síðan til Reykjavíkur.
Hefir verið mikil vinna á
Hólmavík nú um sláturtíðina og
orðið að fá vinnuafl úr öllum sveit-
um til að undan hefðist.
Þá er kaupfélagið að byggja stór-
vegar og svo er hreppurinn að
byggja nýtt félagsheimili hinum
megin vegarins. Eru tveir vinnu-
flokkar í fullu starfí við þessar
byggingar og menn að sunnan einn-
ig að vinna við þær. Hús Kaup-
félagsins er um það bil að komast
undir þak, en verið er að taka mót
af kjallarahæð félagsheimilisins.
Þar verður m.a. heimavist fyrir
Gmnnskóla Hólmavíkur.
Það gefur augaleið að við þetta
áhlaup varð að taka allt fé sem var
heima við á hús og hefja gjöf. Er
það fé sem smalast einnig hýst jafn-
óðum og það kemur heim.
Orvöxtur
krefet
Erlend viðskipti
Iðnaðarbankans eru
flutt í nýtt húsnæði
að Ármúla 7 (4. hæð).
Síminner: (91)-681175.
© liiiðarliiliii
meirai^
£
„Aaaaaaaahhhhhhhh! “
- Við höfum aukið verulega bllið á mllli sœtanna.