Morgunblaðið - 17.10.1987, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987
Tveir auðræktaðir
laukar í stofuna!
Sumum fínnst töluvert umstang
fylgja því að koma túlípönum og
hýasintum til að blómstra fyrir
jólin. Laukar þeirra þurfa að vera
á köldum stað á meðan þeir ræta
sig — og svo eru þau ekkert yfír
sig hrifín af stofuhitanum þegar
á reynir.
Öðru máli gegnir með jólaliljur
og riddarastjömur, öðrum nöfnum
Jónsmessulilja eða tassetta og
amaryllis. Þeim fylgir ekkert ves-
en með kælingu og vitjun á
afskekkta staði fasteignarinnar!
Það eina sem þarf að gera er að
setja laukana í mold, stilla pottun-
um út í stofuglugga og sjá til þess
að vökva í hófí. En til að allir fái
nú rétta útkomu skal ég skrifa
dæmið niður lið fyrir lið:
ar ekki. Það er líka hægt að láta
jólaliljur blómstra á þann hátt að
skorða laukana í grófan sand í
vansheldu íláti og láta vatnsborðið
ná upp undir laukana allan tímann.
Jólaliljur blómstra 6—8 vikum eft-
ir að farið er að vökva laukana.
Það er hægt að geyma laukana
þurra í nokkra mánuði og setja þá
í ræktun í umgöngum með hálfs-
mánaðar millibili til að lengja það
tímabil sem við getum notið bló-
manna. Ræktunartíminn styttist
þegar líður á veturinn, t.d. blómg-
ast jólaliljulaukar sem settir eru í
ræktun í byijun janúar um það
bil fjórum vikum seinna. Það borg-
ar sig ekki að halda upp á iaukana
að aflokinni blómgun. Öruggara
er að fá nýja lauka á hverju ári.
Jólalilja, Narcissus „Paperwhite" Grandiflorus.
Jólalilja
Fimm til tíu laukar eru settir
saman í skál eða pott með mold
eins þétt og ílátið leyfir. Betra er
að hafa ílátin nokkuð djúp (15 sm
eða meir) til þess að rótamassinn
fái pláss og festi plöntumar al-
mennilega. Plöntumar njóta sín
líka betur í íláti sem er í þessu
samræmi við hæð þeirra. Það þarf
varla að taka það fram að mjói
endinn á lauknum á að visa upp
og þeir em skorðaðir vel og huldir
til hálfs með mold. Síðan er vök-
vað vel og pottamir hafðir úti í
glugga. Birtan og rakinn skipta
máli. Sé jólaliljan í mjög daufri
birtu teygir hún mjög úr sér og
þá verður oftast að styðja við plön-
tumar með bandlykkjum og priki.
Þomi moldin upp, eyðileggjast
blómvísamir og jólaliljan blómstr-
Riddarastjama, Hippeastrum X Cultorum.
Þeir sem eiga frostlausa eða upp-
hitaða gróðurskála geta þó plantað
jólaliljulaukunum þar niður í beð
og sinnt þeim með vökvun og
áburði út veturinn og fram eftir
sumri þangað til blöðin sölna niður
af sjálfsdáðum. Þá er von um að
þeir geti blómstrað þar aftur
seinnipart næsta vetrar.
Jólaliljan, tassettan eða Jóns-
messuliljan, Narcissus tazetta, er
líklega sú „Narsissa á Saronsvöll-
um“ sem kemur við sögu í Ljóða-
ljóðum Biblíunnar. Víst er um það
að obbinn af þeim hollensku lauka-
sölum sem dreifa laukum um
heiminn láta ísraelsmenn rækta
jólaliljumar fyrir sig. Tegundin er
háð heittempruðu veðurfari og á
afar víðfeðmt útbreiðslusvæði, allt
frá Kanaríeyjum til austurs um
Norður-Afríku, Litlu Asíu að suð-
urhluta Japanseyja. Tegundin
skiptir sér í nokkur afbrigði sem
aftur hafa orðið upphaf að íjölda
„sorta" eins og garðyrkjumenn
kalla útvalin og sémefnd ræktun-
arafbrigði gerð af mannahöndum.
Vinsælasta sortin er „Paperwhit-
es“ með hreinhvítum blómstjöm-
um, oft 5—7 saman á stilk. Aðrar
sortir em „Grand Soleil d’or“, með
gulum blómum, og „Zhiva" með
hvítum bikarblöðum og gulri
krónu. Blóm jólaliljunnar hafa
sterka angan, sem fólk er ekki
sammála um hvort að sé þægileg
eða óþægileg. Sumum fínnst hún
INNRÖMMUN
Alhliða innrömmun, smellu-
rammar, tilbúnir álrammar.
Sérverslun með
innrömmunarvörur
RAMMA
MIÐSTOÐIN
Sigtún 10, 105 Reykjavík, sfmi 25054.
Næg bílastæði v/dyrnar.
OPIÐ LAUGARDAGA KL.9-16
Plaköt og myndir
Fjölbreytt úrval
Iðnþing
haldið á
Akureyri
Landssamband iðnaðarmanna
heldur 42. Iðnþing íslendinga á
Akureyri í næstu viku. Er þetta
í fyrsta sinn síðan 1977 að þingið
er haldið utan Reykjavikur.
Þingið hefst á fímmtudaginn, 22.
október, með setningu forseta
Landssambandsins, Haraldar Sum-
arliðasonar og ávarpi menntamála-
ráðherra, Birgis ísleifs Gunnarsson-
ar. Að því loknu verður
hádegisverður í boði bæjarstjómar
Akureyrar og þá flytur Ingi Bjöms-
son, framkvæmdastjóri Iðnþróunar-
félags Eyjafjarðar, erindi um tengsl
nýrrar tækni og byggðaþróunar.
Fjallað verður um starfsemi
Landssambands iðnaðarmanna og
stefnu f iðnaðar- og atvinnumálum.
Föstudagurinr er skipulagður sem
sjálfstæð ráðstefna, þar sem um-
ræðuefnið verður „Ný tækni í iðnaði
- aukin framleiðni". Frummælendur
verða ýmsir sérsfræðingar á þessu
sviði, bæði frá tækni- og þjónustu-
stofnunum iðnaðarins og eins
forráðamenn fyrirtækja innan
Landssambandsins.
Þinginu lýkur laugardaginn 24.
UFSVON
landssamtök til verndar
ófæddum börnum.
Sími 15111, pósthólf 5003,125 Reykjavík.