Morgunblaðið - 23.10.1983, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.10.1983, Blaðsíða 8
48 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1983 Þessi bygging hefur verid reist á torginu, en þar koma gestir fyrst inn og fá fræðslu áður en þeir halda á vit víkinganna í borginni undir torginu. Dorothy Glenn-Smith Víhngamir á markaðstorginu í York mm tala íslenzku Þegar víkingasýningin mikla í Jórvík verður opnuð 14. aprfl í vetur og gestir taka sér far niður í jörðina á vit víkingaborgar á 10. öld, þá munu þeir heyra talaða á markaðstorginu ís- lenzku. Um síðustu helgi komu hingað 3 Bretar þeirra erinda að taka upp þennan íslenska klið, sem um 40 ósviknir Islendingar framleiddu uppi í Árbæjarsafni á laugardagsmorgun. Fyrir þremenningunum var Dorothy Glen-Smith, fyr- irlesari í útvarpi, sjónvarpi og í fyrirlestrar- sölum, en með henni voru tónskáldið Trevor Wishart, sem sér um frágang á hljóðdagskránni og hljóðtæknimaðurinn David Malham. Karl- mennirnir gátu aðeins stanzað í 3 daga, þar eð Malham var að fara í fyrirlestraferð til Banda- ríkjanna, en við náðum tali af Dorothy Glen- Smith. Sá sem kemur til York til að sjá víkingaborgina mun koma inn í mót- tökuhús, sem er ofan- jarðar, og er þar fræddur um frumatriði eins og hvaðan vík- ingarnir komu, hvenær þeir komu til Bretlands og þessháttar. Síðan sest hann í lítinn rafmagnsvagn, sem þýtur af stað með hann gegn- um aldirnar um svokallaðan Time Tunnel og staðnæmist ekki fyrr en niðri í jörðinni á markaðstorginu um 950. Á leiðinni gegn um tím- ann, eins og það er orðað, heyrir hann fyrst ensku eins og hún er nú töluð í Bretlandi, sem svo breytist eins og málið þróaðist, þ.e. aftur á bak. Þegar komið er aftur að mál- inu sem talað var á þessum stað af norrænum víkingum um 950 þá hlýtur það að vera sem líkast því sem nú heitir íslenzk tunga. Höfðu menn talið sig geta komizt af með eina rödd eða að sækja hljóðin til Færeyja. Svo stóð þegar Dorothy Glen-Smith, sem hefur sérþekk- ingu á Norðurálfu og er m.a. for- seti West Yorkshire Anglo- Scandinavian Society, kom sem ráðgjafi að málinu. Lagði hún þá áherzlu á að það gæti ekki gengið. Til að fá rétt hljóð fyrir fornís- lenzku dygði ekkert minna en tal íslendinga sjálfra. Og ef hljóðið ætti að koma frá markaði, þá yrðu þar til að koma margar og fjöl- breyttar íslenzkar raddir. f fyrstu var það talið of dýrt, en eftir að hún fékk fyrirgreiðslu hjá Flug- leiðum, var ferð þremenninganna ákveðin. Ekki var þó mikill tími til stefnu, aðeins hægt að stanza 3 nætur á íslandi. Ellen Sighvatsson safnaði saman í snarheitum fólki úr skíðafélögunum, úr félaginu Angliu og fleirum, sem mættu á laugardagsmorgni í Árbæjarsafni. Þarna voru börn, konur og karlar. — Og ekki tók landið síður vel á móti okkur, sagði Dorothy Glen- Smith. Þetta var fullkominn lognkyrr morgunn. Bærðist ekki hár á höfði og engin aukahljóð í upptökuvélar. í tröðunum við Árbæ reyndum við að setja á svið markaðstorg. Sumir áttu að vera að selja grænmeti og annað, þjóf- ur átti að stela af borði og sölu- maðurinn að hrópa upp, krakk- arnir gengu í hring og söngluðu og svo framvegis. Við tókum upp þrisvar sinnum og tökurnar voru allar góðar og nú eru tæknimenn- irnir farnir með þetta út til að setja það saman og vinna úr því. Er þetta ekki alveg einstök heppni? Daginn eftir var kominn vindur og daginn þar á eftir ... Þessi einstæði sýningarstaður undir torginu í York, þar sem fornleifauppgröftur opinberaði heilan víkingabæ, er að verða til- búinn. Ætlunin að öllu verði lokið fyrir jól, en síðan verði prófað, æft og lagfært það sem betur má fara fram að opnunardeginum 14. apr- íl. Sagði Dorothy Glen-Smith að þetta ætlaði að verða alveg ein- stæð sýning. Upphaflega var ætl- unin að moka aftur ofan á upp- gröftinn eftir að búið var að rann- saka svæðið og fjarlægja allar Richard Hall, sem stjórnaði upp- greftrinum í Jórvík, blæs hér á 1000 ára gamla flautu eða einhvers konar blásturshljóðfæri sem fannst í beykigötunni Coppergate. Og enn gefur hún frá sér ágætustu tóna. þær fornminjar sem þar fundust og gera þarna bílastæði, enda í miðri York-borg. En þá komu mótmæli. Samtökin York Archeo- logical Trust höfðu verið stofnuð 1972. Nú gaf borgin þetta svæði til varðveizlu og sýningar og fyrir gjafir og framlög einstaklinga og styrki er nú búið að byggja mynd- arlegt aðkomuhús uppi á torginu og undir því í jörðinni þessa merkilegu eftirlíkingu af vík- ingaborginni sem þarna var, í samræmi við alla þá vitneskju sem uppgröfturinn dró fram í dagsljósið. Hefur fyrr í sumar nánar verið sagt frá því sem þar fannst. En formaður fram- kvæmdanefndarinnar er hinn kunni útvarpsmaður Magnús Magnússon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.