Morgunblaðið - 28.08.1977, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 28.08.1977, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. AGUST 1977 GAMLA BÍÓ: ELVIS Þokkalega gerð heimildarmynd um hljóm- leikaferð rokkstjörnunnar miklu og er „endursýnd i minningu um hinn fræga söngvara", (sic). LAUGARÁSBÍÓ: GABLE OG LOMBARD Minningu stórstjarn-. anna er lítill greiði gerður með þessari yfirborðskenndu mynd sem ervíðsfjarri raunveruleikanum. NÝJA BÍÓ: LUCKY lady Stórmynd með víðfrægu stjörnuliði, en tilgangurinn og mestöll fyndnin hefur því miður orðið eftir heima. TÓNABÍÓ: ROLLERBALL Sem S-F kvikmynd oftast bærileg afþreying, en missir marks sem ádeila vegna ómarkvissrar framsetningar. ÁNÆSTUNNI IIAI NAKIÍIO: OK.MW l l( Nl I / I I l{. (.. I'hr Kaulu llas l.ainlrtl" ) l.riksl.j.: Jolui Slurnfs. lirc/k. I'r.á 1077. S>ninyailími: l.‘{2 mín. AiUilhltilu'i'k: MicliaH ( amc. Dmialil SuilicilaiKl. Kulicii l)u\all. A iKcsiiinm miin llarnaihíú licfja s\nini;ai á |M'ssan hcimsfraat;ii siríús- nivncl. scm aúcins cr fárra niánaúa uuinul. Mfiii hciinar. cr mor.mim kiinn- nul af lcsiri samncfnclrar mclsuliihúk- ar scm kuin úl á íslcn/ku fyrir júlin í f\rra. Iln i siuiiu máli fjallar liiin uni kaansknlci;a lilrann l>.júú\cr.ja aú ncma Winsiun Chiirchill á hruil úr s\cila|)urpi í Nurfulk hcraúi. LOKSINS I SJÓNMÁLI Einn óánægður kvik- myndaunnandi kom að máli við síðuna og kvaðst orðinn ærið langeygður eftir Oscarsverðlauna- myndunum tveim sem von Plakat myndarinnar ONE FLEW. . . er á i Tónabió, þ.e. ONE FLEW OVER THE CUCKOO’S NEST og ROCKY. Hann og aðra, sem farnir eru að þreytast á biðinni, get ég upplýst að báðar þessar ágætu myndir eru nú í sjónmáli. Haukur Skúli, fram- vkæmdastjóri kvikmynda- hússins, tjáði undirrituð- um að stefnt væri að því að ...CUCKOO’S NEST yrði jólamyndin í ár, en ROCKY yrði að öllum lík- indum stillt upp sem páskamynd að ári. Þó gæti vel farið svo að hún yrði sýnd fyrr, eða jafnvel strax eftir áramótin ‘77—8. En það eru mörg ljón í veginum í kvikmyndahús- rekstri. Erfitt er að segja fyrir um hvenær umsamin filmueintök koma til lands- ins, þar sem varasamt er að treysta orðum þeirra manna sem sjá um dreif- ingu myndanna, ofvel. Vegna þessarar og margra annara ástæðna eiga ís- lenzk kvikmyndahús í erf- iðleikum með að setja upp ákveðna sýningaráætlun langt fram í timann. UrROCKY Leikstjóri myndarinnar GABLE AND LOMBARD. Sidney J. Furie, á tali við aðalleikarana SANNKÖLLUÐ SÁPUKÚLA LAUGARASBÍÓ: GABLE OG LOMBARD. Leikstjóri: Sidney J. Furie, framleiðandi: Harry Korshak, handrit: Barry Sandier, kvikmynda- taka: Jordan S. Cronen- weth, tónlist: Michael Le- grand. Clark Gable og Carole Lombard voru einar skær- ustu stjörnur síns tima og samdráttur þeirra var blás- inn útí eitt mesta hneyksl- ismál í sögu kvikmynd- anna. Eftir langt og stormasamt ástarsamband fengu þau loks leyfi til þess gð giftast, en fyrri kona Gables neitaði honum löngum um skilnað. Hjónaband þeirra varð skammvinnt, þar sem að Lombard fórst skömmu síðar i flugslysi, langt fyrir jaldur fram. Myndin hefwt á kyrr- mynd af Carole Lombard og Clark Gable úr einu kvikmyndinni sem þau léku í saman, NO MAN OF HER OWN. Gable var löng- um nefndur „konungur Hollywood" og Lombard hafði verið vinsælasta gamanleikkonan vestra um árabil, þegar hún fórst. Af þessum tveim dáðu nöfn- um, stafar jafnvel enn svo miklum ljóma að það verð- ■ir að teljast fremur hæpið ráðabrugg að ætla sér að gera þau að féþúfu. A.m.k., hefði þá orðið að halda mun betur á spilunum en hér er gert. Bæði er stað- reyndum hagrætt eftir geð- þótta handritshöfundar og leikstjóra, t.d. er því komið á framfæri að Lombard .lafi aldrei gifzt örðum en Gable, en sannleikurinn er sá, að hún og William Pow- ell voru gefin saman árið 1931 og stóð hjónaband þeirra í rúm tvö ár. Stærri galli myndarinn- ar er sú einföldun sögu- þráðar og klaufaleg með- ferð hans, næstum barna- leg, sem blasir við í mörg- um atriðum. Astarsam- band hinna þekktu leikara minnir ósjaldan á senur úr ódýrum kvennareyfurum þar sem að efnið er hrað- soðið oní kröfulitla lesend- ur. Rifrildin eru mörg, og flestum lýkur þeim á þann hátt að Gable, (James Bro- lin) vefur Lombard, (Jill Clayburgh), örmum. Eða þá hún tælir hann uppí næsta sófa. Og að hætti jréttnefndra „sápuópera“,- þá eiga þau að vera, þegar að öllu er á botninn hvolft, ósköp venjulegir krakkar sem aldrei höfðu orðið ást- fangin fyrr en þau fundu hvort annað. Myndin á þó sín góðu augnablik. Þau eru aðal- lega að þakka frábærum leikmyndum, leiksviðs- og búningahönnun Harry Korshak. Eins á hin efni- lega Ieikkona Jill Clay- burgh, góða spretti, þó að handritið leggi henni oft- ast afleitar línur. Mikið er lagt uppúr því hversu James Brolin líkist hinni föllnu stjörnu, og það undirstrikað með lýs- ingu o.fl. En það er ekki nóg; heldur er hann klaufalegur í hlutverki kóngsisns. Og næstu furðu- legar eru tilraunir hans til að ná hinu syfjulega og dreymandi augnatilliti Gables, sem ásamt Monu Lisu brosinu var hans vörumerki. Hitt er annað mál, að óvíst er að aðrir hefðu gert miklu betur, það er erfitt að klæða þjóð- sögn holdi. En ég er ekki í neinum vafa um að kvik- myndahúsgestum hefði verið meiri greiði gerður með því að endursýna heldur mynd þeirra elsk- endanna, NO MAN OF HEROWN. VIÐ KYNNUM: WOODY ALLEN Einn af þekktustu leik- stjórum Bandaríkjamanna í dag, jafnt utanlands sem innan, er háðfuglinn Woody Allen. Margir líkja honum við gömlu meistara grínmyndanna, eins og Marx bræður, Mae West og V.C. Field. Hér hafa allar myndir hans, að þrem þeim nýjustu undanskyld- um, verið sýndar við æ betri undirtektir. Allen er fæddur i Brook- lyn árið 1935, og fór snemma að vinna fyrir sér í skemmtiiðnaðinum. Fyrst kom hann nálægt kvik- myndum árið 1965, við gerð myndarinnar What’s new pussycat? en hann bæði lék í henni og samdi handritið. Sfðan rekur hver myndin aðra: 1966: What’s up, Tiger Lily?, handrit, leikstjórn. 1969: Take The Money and Run. Handrit og aðalhlutverk. 1971: Bananas. Handrit, leikstjórn og aðalhlutverk. 1972: Everything You Always Wanted to Know About Sex... Handrit, leik- stjórn, leúkur. 1973: Sleeper. Handrit, tónlist, leikstjórn og aðalhlv. 1975: Love and Death. Handrit, leikstjórn og aðalhlv. 1976: The Front. Aðalhlutverk. 1977: Annie Hall. Handrit, með öðrum, leikstjórn og aðalhlv. Woody Allen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.