Morgunblaðið - 10.04.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.04.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. APRlL 1976 Hitaveitunefnd Akur- eyrar vill halda Jötni HITAVEITUNEFND Akurpyrar gerði eftirfarandi bókun á fundi sínum 8. apríl s.l. og hefur bókun- in verið send dr. Gunnari Thoroddsen orkumálaráðherra: „Hitaveitunefnd óskar ein- dregið eftir þvi við hæstvirtan iðnaðarráðherra að jarðborinn Jötunn verði ekki fluttur frá Syðra-Laugalandi fyrr en hann hefur lokið við borun þriðju holunnar þar. Hitaveitunefnd \ill benda á að raforkunotkun á liinu samtengda svæði á Norðurlandi var á síðasta ári 200 gígavattstundir (Gwh) og hámarksaflþörfin tæp 38 mega- wött (Mw). Af þessari orku voru um 9% framleidd með diesel- vélum og aflþörfin umfram grunnafl á þessu svæði Var um 14 megawött. í næsta mánuði verður byggða- línan tengd við raforkukerfi Norð-Vesturlands og fyrst um sinn rekin á 60 kílóvolta spennu. Þannig fást um 3 megawött inn á þetta svæði. Af þessu er ljóst að nægilegt er fyrir svæðið að fá um 10—15. megawött í viðbót við áðurnefnd 3 megawött til þess að útiloka að mestu eða öllu leyti diesel- keyrsluna á næsta vetri. Því ætti að verða nægur tími til gufuöflunar til Kröfluvirkjunar þó að orðið sé við þessari ósk okkar. Hitaveitunefnd treystir því, að þér hæstvirtur ráðherra beitið yður fyrir framgangi þessa máls." f.h. hitaveitunefndar Akur- eyrar Ingólfur Arnason. Fridrik býr sig undir bardagann vid Karpov FRIÐRIK Ólafsson stórmeistari er nú að búa sig undir bardagann við Antoly Karpov heimsmeist- ara, en eins og Morgunblaðið skýrði frá á sfnum tíma, var Friðrik boðið á fjögurra manna hátíðarskákmót í Hollandi, sem haldið er vegna 75 ára afmælis dr. Þyrla sækir sjó- mann norður í íshaf BREZKA birgðaskipið Owles er nú að koma að ísröndinni norður af Islandi og þyrla frá því á í dag að sækja 72 ára gamlan sjómann urr borð f norska sel»ciA:skipið Harmöy, sem er statt inni í fsnum á “2 42'N op ÍO” 31 \ Owlen mtf’ sigla i áit •: t> ai <ts. er revnt verður að flytja m tnniun I laud með þvrlii um leic' og það verður unnt, en ekki ei gert : áð fyrir að maðurinn komist á sjúkrahús I Reykjavík fyrr en á morgtin. Hannes Ilafstein, framkva-mda- stjóri Slysavarnafélags Islands, sagði í gær, að maðurinn væri talinn alvarlega slasaður. Björg- unarstöðin í Bodö i Noregi hefði haft samband við björgunarstöð Varnarliðsins seint í fyrrakvöld og spurt hvort hægt væri að nálg- ast manninn frá Islandi. Komið hefði til tals að senda þyrlu og Herkules eldsneytisvél, en þar sem Harmöy hefði verið statt 500 mílur frá landi hefði ekki verið talið ráðlegt að senda þyrluna svo langt. Þvi hefði verið haft sam- band við björgunarstöðina í Edin- burgh og spurt hvort einhver frei- gátan sem væri undan Vestfjörð- um gæti sinnt þessari beiðni. Svarið var jákvætt og varð að ráði að birgðaskipið Owlen, sem er með stóra Sea King-þyrlu um borð, heldi áleíðis að ísbréiðunni. Ekki væri vitað hvenær þyrlan gæti hafið sig á loft til að sækja manninn, en vart yrði komið með hann í land á Islandi fyrr en seinni hluta dags á morgun. Vetrarvertíðin: Yfir 10 þús. tonnum af bolfiski landað í Eyjum LIÐLEGA 70 bátar róa nú frá Vestmannaeyjum. Þar af eru 34 með net, 27 með botnvörpu, tveir með færi og 8 aðkomubátar róa þaðan og landa. Eyjabátar voru búnir að landa tæplega 10 þús. tonnum af bolfiski 31. marz s.L, en það var nokkur hundruð tonnum minna en á sama tfma f fyrra. Ht ildarafli frá áramótum til 31. marz skiptist þannig: Landanir 741 62.9% 535 25.6% 24 0,5% 7 8.4% 35 2.6% 1976 Tonn Landanir 1975 Tonn Nct 6.178.5 697 67.2% 6.545.9 Botnvarpa 2.255.2 443 24.5% 2.663.5 Lína og færi 25,4 27 0,3% 48.2 Vestmannaey 492,6 5 5,4% 875,6 Aðkomubátar 236,4 32 2,6% 275,4 9.188,1 1204 100,0% 10.408,6 1342 100,0% Aflahæstu bátar frá áramótum. Net: tonn landanir 1. Þórunn Sveinsdóttir VE 401 429,8 15 2. Surtsey VE 2 356,1 23 3. Kap II VE 4 321,7 34 4. Arni í Görðum VE 73 310,4 32 5. Heitnaey VE 1 303,2 25 6. Dala-Rafn VE 508 302,8 44 7. Kópur VE 11 297,8 36 8. Danskí Pétur VE 423 296,7 30 Framhald á bls. 35 Max Euwe, forseta Alþjóðaskák- sambandsins. „Ég hef nú mætt þessum skák- mönnum áður en það er alltaf betra að glöggva sig á þeim og skákstíl þeirra," sagði Friðrik, þegar Mbl. ræddi við hann í gær. Auk Friðriks og Karpovs verða með í þessu móti bandaríski stór- meistarinn Walter Browne og hol- lenzki stórmeistarinn Jan Timman. Kemur Timman i stað Júgóslavans Ljubojevie, sem for- fallaðist. Friðrik hefur oft teflt við Browne og Timman en aðeins einu sinni mætt Karpov við skák- borðið. Það var í Rússlandi 1971 og lauk skák þeirra með jafntefli. Mótið hefst í Hollandi 14. maí og það stendur til 22. maí. Tefld er tvöföld umferð, þannig að hver keppandi teflir 6 skákir. „Ég hefði frekar kosið að skákirnar yrðu fleiri, því það gæfi réttari mynd. Þegar skákirnar eru aðeins sex geta ein mistök orðið mjög afdrifarík," sagði Friðrik að lokum. Selma Jónsdóttir forstöðumaður Listasafns tslands stendur þarna við sjálfsmynd Jóns Stefánssonar og blómamynd. Sýning í Listasafninu: 50 málverk Jóns Stefánssonar LISTASAFN tslands opnar I dag, laugardag, sýningu á um 50 málverkum eftir Jón Stefánsson og meðal myndanna eru þekktustu myndir Jóns. Myndir þessar keypti Listasafn- ið árið 1972 úr dánarbúi ekkju Jóns, sem var dönsk. Kaupverð myndanna er um 4 millj. kr. Arið 1972 voru nokkrar mynd- anna afhentar safninu, þ.e. þær sem voru hér heima, en megnið af myndunum var I Danmörku og sumar þurftu viðgerðar við áður en þær yrðu fluttar heim. Nýlega voru allar myndirnar komnar og því afráðið að sýna þær í tveimur fremri sölum Listasafnsins. Verður sýningin opin venjulegum sýningartíma safnsins fram til 20. maí. Meðal þekktra mynda I þessu safni er sjálfsmynd af Jóni mál- uð 1942, rúmönsk stúlka máluð 1918, en elzta myndin er upp- stilling með pelagónium og epl- um, máluð 1915 — 16. Sumar myndanna eru ófullgerðar, en þær verða allar til sýnis og með- al þeirra er skissa af Sigurði skólameistara. Ein af myndum Jóns Stefánssonar Fjörugt tónlist- arlíf á Akureyri Akuryeri 9. apríl TÓNLISTARLlF á Akureyri er mjög blómlegt um þessar mund- ir. Karlakór Akureyrar hefur í þessari viku haldið 5 samsöngva I samkomuhúsinu undir stjórn Jóns H.J. Jónssonar og við undir- leik frú Sólveigar Jónsson. Ein- Norski skips- skrokkurinn kominn til Akureyrar Akureyri 9. april. BJÖRGUNARSKIPIÐ Goðinn kom til Akureyrar skömmu eftir hádegi í dag frá Flekka- fjord í Noregi með togara- skrokk í eftirdragi. Skips- skrokkurinn er smíðaður í Noregi handa Dalvíkingum en Slippstöðin hf. á Akureyri mun ljúka smíði skipsins og frágangi öllum. Ferðin frá Flekkefjord gekk að óskum og tók eina viku. Sv.P. HBmHhkI Goðinn leggst með skipsskrokkinn hafnsögubáturinn á Akureyri. norska að bryggju. Fremst sést Ljósm. Mbl Sverrir Pálsson. söngvarar hafa verið Helga Al- freðsdóttir og Kristján Jóhanns son. Á sunnudaginn halda Guðný Guðmundsdóttir konsertmeistari og Gísli Magnússon píanóleikari tónleika i hátiðarsal Menntaskól- ans á Akureyri og hefjast þeit klukkan 16. Tónleikarnir eru i vegum MA og Háskóla tslands. Á þriðjudagskvöld kl. 21 hefjast svo tónleikar þýzkrar háskóla hljómsveitar frá Munchen, undir stjórn A. Ginthör konsertmeistara við Fílharmóníuhljómsveitina i Múnchen. Þessir tónleikar eru i vegum Tónlistarfélags Akureyr ar. Hljómsveitin mun leika á nokkrum fleiri stöðum á Norður landi, svo sem á Dalvik, Húsavík og Mývatnssveit. —Sv.P. Ömar teflir í Noregi HINN ungi og efnilegi skákmaður Ömar Jónsson heldur á mánu- daginn til Sandefjord i Noregi, þar sem hann tekur þátt í ung- lingamóti dagana 13.—17. april. Verða þarna tefldar 7 umferðir eftir Monradkerfi. Ómar fer utan á vegum Taflfélags Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.