Morgunblaðið - 20.04.1971, Blaðsíða 31
3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1971
31
1
M^^MMMmMW^orgunbladsins
Kolbeinn
í M FM L Jk %*■ i
n Þórarinn Þorsteinn H. Jón I.
Þeir urðu íslandsmeist-
arar í körf uknattleik...
Gylfi Sigurðnr G.
Birgir
Gunnar
iR-ingar urðu Islandsmeistar-
ar í körfuknattleik árið 1971.
Þeir sigruðu i öllum leikjum sín-
um í mótinu, og hlutu 24 stig,
en næsta lið hlaut aðeins 16 stig.
Þetta er í þriðja skipti í röð sem
ÍR-ingar verða Islandsmeistarar
í körfubolta, og tvö s.l. ár hafa
þeir einnig unnið Reykjavikur-
mótið. Á þessum þremur ár-
um hafa iR-ingar aðeins tapað
leik tvivegis í Islandsmótinu, þ.e.
einu sinni 1970, og einu sinni
1969. Og í bæði skiptin voru
það KR-ingar sem sigruðu þá.
Hér fer á eftir kynning á Is-
landsmeisturum ÍR:
Kolbeinn Kristinsson:
18 ára gamall nemandi í Verzl-
unarskólanum. Hann er 1,80 sm
á hæð og leikur í stöðu bak-
varðar. Kolbeinn hefur leikið 15
leiki með m.fl. og 3 U-lands-
leiki.
Hólmsteinn Sigurðsson:
Aldursforseti liðsins, 31 árs
gamall viðskiptafræðingur.
Hann leikur ýmist miðherja eða
framherja. Hólmsteinn hefur
leikið 247 leiki með m.fl. og 17
landsleiki á hann að baki. Hann
er form. Körfuknattleikssam-
bands Islands. Hæð 192 m.
Þorsteinn Guðnason:
18 ára gamall nemandi í
Menntaskóla. Hann hefur leik-
ið 17 leiki með m f 1. og tviveg-
is í U-landsliði. Þorsteinn leik-
ur I stöðu framherja, hann er
1,90 m á hæð.
Þórarinn Gunnarsson:
22 ára gamall kennaraskóla-
LriJcir 17. apríl 1971 i X *bswí
Atscnal, — Newcastle / 1 • 0
Blackpool •— Nott’m Far. 2 2 «■ 3
Coventry — Burnley l 3 - 0
C. Palace— Man. Utd. 2 3 - s
Derby — Everton l 3 - t
Ipswich — Huddersficld . i 2 - 0
Leeds — W.BA. 2 l - 2
•Liveipool — Totteuham x 0 •- 0
Manch. City — Chelse* X /1 - 1
West Ham — Stoke t i - 0
Wolves — Soulhamptoa 2 0 - 1
Sheff. U. — Birmingham l 3 - 0
HIÐ óvænta tap Leeds á móti
W.B.A. hefur vafalaust sett
marga spámenn út af laginu að
þessu sinni, og hið sama má
reyndar segja um ósigur Wolv
es fyrir Sonthampton. Eigi að
síður höfðu starfsmenn get-
rauna fundið þrjá seðla með
11 réttum í gær, og fá handhaf
ir þeirra um 105 þúsund króna
vinning, Annan vinning — 10
rétta — hlutu svo alls 54. Verð
ur vinningur þeirra um 2500 kr.
Meistaramót í
kraftlyftingum
MEISTARAMÓT Islands i kraft
lyftingum mun fara fram í
Reykjavík helgina 8.—9. maí n.
k. Nánar verður tilkynnt um
keppnisstað, hús og tíma siðar.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast til Björns Lárussonar,
Grettisgötu 71, símar 40255 og
22761, í síðasta lagi 1. maí og þátt
tökugjaldið kr. 100, — að fylgja
með.
nemi. Hann hefur leikið 7 leiki
með m.fl. Hann leikur í stöðu
bakvarðar, hæð 1,82 m.
Þorsteinn Hailgrímsson:
28 ára gamall vericfræðingur.
Þorsteinn á að baki 166 leiki
með m.fl. Hann hefur leikið 30
landsleiki. Hann Ieikur í stöðu
bakvarðar, hæð 1,84 m.
Jón Indriðason:
20 ára menntaskólanemi.
Hann hefur leikið 34 leiki með
m.fl. Jón leikur í stöðu fram-
herja, hann er 1R3 m.
Gylfi Kristjánsson:
22 ára gullsmiður. Hann hef-
ur leikið 54 leiki með m.fl. Hann
leikur í stöðu miðherja, hæð 1,90
m.
Sigurður Gislason:
26 ára garnall skrifstofumaður.
Hann hefur leikið 197 leiki með
m.fl. Sigurður á einnig 9 lands-
leiki að baki. Hann leikur i
stöðu miðherja, hæð 1,93 m.
Birgir Jakobsson:
23 ára gamall Iæknanemi.
Hann hefur leikið 154 leiki með
m.fl. auk 9 landsleikja. Birgir
leikur í stöðu framherja, hæð
l, 94 m.
Gunnar Haraldsson:
21 árs læknanemi. Hann hef-
ur leikið 61 leik með m.fl.
Gunnar er bakvörður, hæð 1,78
m.
Kristinn Jörundsson:
20 ára viðskiptafræðinemi.
Hann hefur leikið 66 leiki með
m.fl. auk 6 landsleikja. Hann
leikur í stöðu bakvarðar, hæð
l, 81 m. Fyíirliði liðsins.
Agnar Friðriksson:
25 ára viðskiptafræðingur.
Hann hefur leikið 210 leiki með
m. fl. auk 19 landsleikja og 4 U-
Unglingamót
í handknattleik
Handknattleiksráð Hafnarfj.
hefur ákveðið að gangast fyrir
handknattleiksmóti í 2. og 3.
flokki kvenna og 2., 3. og 4.
flokki karla í nýja íþróttahús-
inu í Hafnarfirði, dagana 26.—
30. april n.k.
Öllum félögum er heimil þátt
taka. Fyrirkomulag í hverjum
flokki fer eftir þátttöku.
Þau félög, sem hafa áhuga á
þátttöku, eru vinsamlegast beð
in að senda tilkynningar til
Kristófers Magnússonar, Hafnar
firði, aímar 21240 og 51983.
Tjarnarboðhlaup
TJARNARBOÐHLAUP fram-
haldsskólanna í Reykjavik fer
fram í dag og hefst kl. 18.00.
Hlaupið verður kringum syðri
tjömina. I boðhlaupinu taka þátt
sex sveitir: Menntaskólans í
Reykjavík, Menntaskólans við
Tjömina, Menntaskólans i Hamra
hlíð, Háskóla Islands, Kennara-
skóla Islands og Tækniskóla Is-
lands. Má búast við mikilli bar-
áttu í keppninni að þessu sinni,
en Kennaraskólinn hefur sigrað
í boðhlaupinu í þau tvö skipti
sem það hefur farið fram.
landsleikja. Hann er framherji,
hæð 1,91 m.
Jón Jónasson:
24 ára tannlæknanemi. Hann
hefur lerkið 38 Ieiki með m.fl.
Jón leikur i stöðu bakvarðar,
hæð 1,88 m.
Viðar Ólafsson:
25 ára verkfræðingur. Hann
hefur leikið 62 Ieiki með m.fl.
auk 4 U-landsleikja. Hann er
framherji, hæð 1,89 m. .
Sigurður Jónmundsson:
21 árs gamall verzlunarskóla-
nemi. Hann hefur leikið 10 leiki
með m.fl. Hann leikur í stöðu
miðherja, hæð 2,00 m.
Viöar
Sigurður J.
Einar þjálfari
Átta Islendingar boð-
aðir í EM
Keppendur verða yfir þúsund
NÍU liundruð áttatíu og átta
keppendur hafa boðað þátttöku
sína í Evrúpumeistaramótinu í
frjálsum íþróttum, er fram fer
í Helsinki dagana 10. til 15.
ágúst n.k. Inn í þá tölu vantar
þátttakendur frá Bretlandi, en
tilkynning þaðan hafði ekki bor
izt í tæka tið sökum póstmanna
verkfallsins. Keppendurnir
skiptast þannig eftir kynjum að
673 eru karlmenn og konur eru
315. Fiestir keppndur eru frá
V-Þýzkalandi: 66 karlar og 36
konur, Finnlandi 60 karlar og 20
konur, Frakklandi 65 karlar og
25 konur, Póilandi 56 karlar og
31 kona, Rússlandi 50 karlar og
35 konur.
Fæsta þátttakendur sendir
Liechtenstein, einn karlmann
og eina konu og Luxemburg 4
karla og eina konu.
Boðuð hefur verið þátttaka
átta íslendinga í keppninni, sjö
karla og einnar konu, en sam-
kvæmt upplýsingum er fram
komu á blaðamannafundi sem
stjórn FRÍ hélt fyrir nokkru,
má búast við því að færri kepp
endur fari héðan. Mun það þó
Haukar taka
upp körfu-
knattleik
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Haukar í
Hafnarfirði hefur tekið körfu
knatttleik inn á sína stefnuskrá.
Þeir hafa þegar hafið æfingar
með yngstu flokkana, 4. fl. og
minni-bolta, og í bígerð er að
efna til námsskeiða fyrir alla
aldursflokka. Hinn kurmá leik-
maður úr Ármanni, Jón Sigurðs
son, hefur verið ráðinn þjálf-
ari yngri flokkanna, og binda
Haukar miklar vonir við hans
3tarf. Haukar ætla sér að taka
þátt í þremur mótum sem hald
in verða á næstunni fyrir
yngstu flokkana, en nánar mun
verða skýrt frá því síðar.
gk.
fæti í samkeppninni við íþrótta
menn stórþjóða.
Þrívegis hafa íslendingar eign.
azt Evrópumeistara í frjálstum
íþróttum, fyi-st í Oslo 1946, er
Gunnar Huseby sigraði í kúlu-
keppnikefli FRÍ að senda alla varpi síðan í Brussel 1950 er
okkar beztu frjálsíþróttamenn
til þessarar keppni. Möguleikar
á stigum eða verðlaunum eru
þó harla litlir að þessu sinni, en
alltaf er að koma betur og bgt-
ur í Ijós hversu íþróttamenn frá
smáþjóð'unum standa höllum
Huseby sigraði aftur í kúlu-
varpi og Torfi Bryngeirsson
sigraði i langstökki. Á því móti
stóðu íslendingar sig frábær-
lega vel, þvi auk tveggja gull-
verðlauna komust nokkrir fleiri
í úrslit og hlutu verðlaun.
Reykjavík hefur unn-
ið Sendiherrabikarinn
— vann þriðja leikinn við
varnarliðið 59-58
KÖRFUKNATTLEIKSMENN
Reykjavikur hafa tryggt sér
Sendiherrabikarinn i ár. Það
var fyrrverandi sendiherra
Bandarikjanna á íslandi, James
K. Penfield, sem gaf þennan bik
ar fyrir nokkrum árum, til
keppni í körfubolta milli
Reykjavíkur og Varnarliðsins,
og í þau fjögur skipti sem
keppnin hefur farið fram um
bikarinn hefur lið Reykjavíkur
borið sigur úr býtum.
Þriðji leikurinn í keppninni
í ár var leikinn í fyrrakvöld,
og eins og í hinum tveim fyrri
sigraði Reykjavik. Þessi leikur
mun aðallega geymast í hugum
marma, sem einhver sá léleg-
asti leikur sem íslenzkt úrvals-
lið hefu sýnt, og greinlegt er
að sumarhugur og keppnisleiði
eru komnir í mannskapinn. Það
sést lika greinilega að margir
af leikmönnum Reykjavíkurliðs
ins eru hættir æfingum og auka
kílóin“ sem alltaf koma á sumr-
in meðan ekki er aeft, eru byrj-
uð að gera vart við sig hjá
mörgum leikmönnum liðsins.
Leikurinn var mjög jafn all-
an tímann en þó svo væri, var
alltaf einhver deyfð yfir bæði
leikmönnum, dómurum og hin-
um 30 áhorfendum, sem komu
til að fylgjast með leiknum.
Varnarliðsmenn höfðu ávallt
frumkvæðið í fyrri hálfleikn-
um, sem lauk 27:26 þeim í vil,
en strax á fyrstu mín. síðari
hálfleiks komst Reykjavík yfir,
og hafði yfir til leiksloka. Sig-
urinn hefði þó getað lent hvor-
um megin sem var, þvi þegar
17 sek. voru til leiksloka og
Reykjavíkurliðið hafði eitt stig
yfir, 59:58, náðu Varnarliðs-
menn boltanum. Þeim tókst
ekki að skora, og sigra þar með
í leiknum, en litlu munaði því
að boltinn dansaði á körfuhring
íslendinganna þegar flautan galí
í leikslok. Enn einn sigur í þesa
ari keppni var staðreynd, þrátt
fyrir fádæma lélegan leik okk-
ar manna.
Tveir menn báru nokkuð áf á
vellinum, þeir Chewing og Mel-
son, báðir frábærir leikmenn.
En allir hinir, úr báðum liðun-
um minntu einna helzt á kálfa,
sem koma út í fyrsta skipti á
vorin, og voru tilburðir þeirra
oft hlægilegir mjög. En okkar
mönnum til afsökunar skal það
sagt, að þeir eru flestir hættir
æfingum, og geta því í rauninni
mun meira en þeir sýndu í
þetta skipti (Guði sé lof).
Rafn Haraldsson og Erlendur
Eysteinsson reyndu að dæma
þennan leik, og ber að taka vilj
ann fyrir verkið.
gk.