Morgunblaðið - 20.04.1971, Blaðsíða 25
MGRGUNBLA.ÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 19T1
25
Iðnaðarráðuneytið vottur um
breytt viðhorf stjórn
valda til iðnaðarins
| — ályktanir ársþings Félags
íslenzkra iðnrekenda
Ársþingr Félags íslenzkra
iðnrekenda, sem haldið var
að Hótel Sögu 1. og 2. april,
samþykkti eftirfarandi álykt
anir um skattamál, efnahags-
mál og fleira:
„Fjárfestingarkostnaður I
iðnaði 20—10% hærri en i
öðrum löndum."
„Eitt af því, sem ríkisstjórn
in gaf fyrirheit um við inn-
göngu íslands i EFTA var, að
íslenzk fyrirtæki skyldu ekki
búa við lakari kjör hvað
skattlagningu snertir, en
keppinautar þeirra innan
EFTA-landanna. I samræmi
við það, skipaði fjármálaráð-
herra embættismannanefnd,
sem síðan hefur starfað.
Liggja nú fyrir Alþingi breyt
ingatillögur við lög um tekju-
og eignaskatt, sem telja verð
ur til hagsbóta fyrir iðnað-
inn í landinu ef að lögum
verða. Þau atriði í frúmvarp
inu sem ársþing F.f.I. telur til
hagsbóta fyrir iðnaðinn í
landinu eru:
1. Ákvæði um heimild til
endurmats á árunum 1971
og 1972 og útgáfu jöfnun-
arbréfa.
2. Breyting á afskriftarregl-
um.
3. Ákvæði um að draga úr
tvísköttun arðs.
4. Ákvæði sem auðvelda sam
einingu hlutafélaga.
Ársþingið fagnar þeim já-
kvæðu tillögum, er fram hafa
komið, en telur nauðsynlegt,
að flýtt verði endurskoðun
laganna um tekjustofna sveit
arfélaga. Frá sjónarmiði fyr
irtækis er tekjuútsvar og
tekjuskattur raunar sami
skatturinn, en ráðstöfunin
misjöfn og sama er að segja
um eignaskatt- og eignaút-
svar. Helztu tekjustofnar
sveitarfélaga nú eru útsvör
og aðstöðugjöld. Til að sam-
ræma skáttlagningu hér við
önnur EFTA-lönd ber að
stefna að því að aðstöðugjald
verði algjörlega fellt niður
og ekki verði gripið til auk-
inna fasteignagjalda fyrir-
tækja til að bæta sveitarfé-
lögunum tekjumissinn.
Jafnframt leggur ársþingið
mikla áherzlu á að felld verði
niður hið fyrsta innheimta
söluskatts af vélum og öðrum
fjárfestingarvörum. Virkar
söluskatturinn á sama hátt og
fjárfestingarskattur og eru á-
hrif hans því óheppileg og
varhugaverð með tilliti til
þeirrar uppbyggingar og hag
ræðingar, sem nauðsynleg er
í íslenzkum iðnaði á næstu ár
um. Þá er rétt að það komi
fram, að skattar eru ekki lagð
ir á fjárfestingarvörur á hin
um Norðurlöndunum eða þeir
endurgreiddir, að Noregi und
anskildum. Hefur innheimta
slíkra skatta þar valdið mikl
um deilum og er nú í endur-
skoðun. Mun láta nærri að
fjárfestingarkostnaður í iðn-
aði sé 20—40% hærri hér á
landi en í öðrum EFTA-lönd-
um vegna tolla og sölu-
skatts.“
Nákvæmari tölur um
atvinnuleysi
„Ársþingið lýsir yfir efa-
semdum, um að atvinnuleys-
irskráning eins og hún er nú
framkvæmd, gefi rétta hug-
mynd um atvinnuástand á
hverjum tíma.
Óskar ársþingið eftir, að
opinberar tölur um atvinnu-
leysi verði skráðar og birtar
þannig, að þær gefi meiri upp
lýsingar, t.d. með eftirfarandi
sundurliðun:
a) Starfsgreinar hinna
atvinnulausu.
b) Aldursflokka.
c) Tímalengd sem menn hafa
verið á atvinnuleysisskrá.
Um leið og ársþingið minn-
ir á, að stór skref hafa verið
stigin með frjálsum samning-
um miUi atvinnurekenda og
verkalýðsfélaganna um
aukna aðstoð við aldraða og
sjúka, svo og auknar bætur
almannatrygginga, þá varar
þingið við að ekki sé gerður
greinamunur á milli atvinnu-
leysisbóta annars vegar og
styrks vegna skertrar starfs
orku hins vegar. Leggur árs-
þingið ríka áherzlu á, að öll-
um reglum um atvinnuleysis-
tryggingar og skráningu
verði nákvæmlega fylgt.“
Aukin hætta á launaskriðu
Ársþing Félags íslenzkra
iðnrekenda samþykkti eftir-
farandi ályktun um efnahags
mál o.fL:
„Ársþing F.I.L 1971 fagnar
þeirri jákvæðu þróun, sem
orðið hefur á mörgum sviðum
íslenzks iðnaðar á liðnu ári,
og lýsir þeirri von sinni, að
framhald verði þar á iðnaðin
um og þjóðarbúinu til styrkt
ar. Ársþingið telur sérstak-
lega mikilvægt, að tekið hef-
ur til starfa sjálfstætt iðnað-
arráðuneyti, sem hefur á að
skipa sérmenntuðum mönnum
um iðnaðarmál. Stofnun þessa
ráðuneytis er ljós vottur um
breytt viðhorf stjórnvalda til
iðnaðarins og almennt auk-
inn skilning á hinu mikilvæga
hlutverki iðnaðarins í þjóðar
búskapnum og vaxandi gildi
hans í framtíðinni.
Þá telur ársþingið að stofn
un norræna Iðnþróunarsjóðs
ins muni leiða til verulegrar
úrlausnar fjárfestingalána-
þarfar þess hluta iðnaðarins,
sem er innan verksviðs sjóðs
ins, en vekur athygli á því,
að mörg iðnfyrirtæki búa við
mjög þröngan kost um rekst-
urslán og hvetur til, að svo
verði búið að iðnaðinum, að
hann hafi sambærileg kjör
við sjávarútveg og landbún-
að um lánveitingar til hrá-
efnakaupa svo og um lán út
á fúllunna vöru, sem bíður
sölu eða útflutnings.
Jafnframt bendir ársþingið
á, að Iðnlánasjóður er fjarri
því að geta fullnægt hlut-
verki sínu, sem hinn almenni
fjárfestingasjóður iðnaðarins.
Er brýn nauðsyn, að hann
verði efldur og ekki settur
skör lægra en fjárfestinga-
sjóðir annarra atvinnuvega
eins og nú er.
Það var skilningur félags-
ins, að við inngöngu Islands
í- EFTA hefði ríkisvald svo
og þjóðin öll tekizt á hendur
að halda kaupgjalds- og verð-
lagsmálum hér á landi í sem
mestu samræmi við þróun
þeirra mála í öðrum EFTA-
löndum. Taldi F.1.1. þetta eitt
frumskilyrði þess, að hér á
landi mætti þróa iðnað, er
ætti í samkeppni við iðnað
annarra landa.
Raunin hefur hins vegar
orðið sú, að stórfelldar launa
hækkanir svo og hækkanir á
flestum öðrum útgjaldaliðum
iðnfyrirtækja áttu sér stað
aUt árið fram að setningu
verðstöðvunarlaganna og
einnig eftir að þau voru lög-
fest. Varð sú lagasetning að
vísu til að stöðva að nokkru
víxlhækkanir verðlags og
kaupgjalds en leysir ekki var
anlega þann vanda sem að
steðjar.
Fæst iðnfyrirtæki höfðu að
fullu reiknað þær kostnaðar
hækkanir inn í verð vara
sinna, sem komnar voru og
sem komu til framkvæmda
eftir setningu verðstöðvunar
laganna eða tóku ekki að
verka fyrr en eftir gildistöku
þeirra. Er því svo komið, að
afkoma þeirra fyrirtækja hef
ur versnað mjög upp á síð-
kastið og stefnir til taprekst-
urs þrátt fyrir það, að fram-
leiðsla iðnaðarins hafi að með
altali aukizt um 13—15% á
árinu 1970. Veikir þetta mjög
fjárhagslegt bolmagn fyrir-
tækjanna, þannig að þau eru
verr undir það búin að mæta
aukinni samkeppni.
Lýsir ársþing F.Í.I. yfir á-
hyggjum vegna þeirrar þró-
unar verðlags- og kaupgjalds
mála, sem átt hefur sér stað
síðustu mánuðina og þó sér-
staklega um þróun þessara
mála, er vænta má á hausti
komanda, þegar verðstöðvun
arlögin renna út og nýir
kjarasamningar verða gerðir.
1 þessu sambandi virðist vera
sérstök ástæða til að taka
upp nýja aðferð við gerð
kjarasamninga, er tryggi
meiri varanleika samninganna
og að ekki sé samið um meiri
launahækkanir en hagkerfið
Framh. á bls. 24
Skrifstofustúlka
Útflutningsfyrirtæki óskar að ráða skrifstofustúlku strax.
Þarf að vera góð I vélritun, ensku og dönsku.
Umsóknir, er tilgreini menntun og fyrri störf, sendist Mbl. fyrír
23. þessa mánaðar merkt: „7367".
TRUBROT
flytur
LIFUN
Trúbrot flytur Lifun í heild í kvöld.
DISKOTEK.
Plötusnúður Magnús Magnússon.
M. a. verða flutt lög úr kvikmyndínm
Woodstock.
Aldurstakmark f. ’55 og eldri. Nafnskírteini.
Húsið opið frá kl. 8—11.30. Verð 50 kr.
1.0.0.F.=0b.1P. =1524208Vi
=B.stig.
□ Edda 59714207 — 1 atkv.
I.O.O.F.Rb4=1204208Ví—
9.0.1.-II.-III.
Kvenfélag Neskirkju
heldur fund þriðjudaginn 20.
apríl kl. 8.30 í Félagsheimil-
inu. Kvikmyndasýning, kaffi.
Mætið vel. — Stjórnin.
Félagsstarf eldri borgara
í Tónabæ
I dag þriðjudag er handavinna
og föndur. Á morgun mið-
vikudcig verður opið hús frá
kl. 1.30—5.30 e.h.
Dagskrá: Spilað, teflt, lesið.
Kaffiveitingar, upplýsingaþjón-
usta, bókaútlán og gömlu
dansarnir.
K.F.U.K. — A.D.
Fundur í félagshúsínu að
Langagerði 1 í kvöld kl. 20.30.
Kristniboðsflokkur K.F.U.K.
sér um fundinn. Nýtt frétta-
bréf frá Eþíópíu, Gjöfum til
kristniboðs veitt móttaka. —
Kaffiveitingar.
Stjórnin.
Fíladelfía
Almennur biblíulestur í kvöld
ki. 8 30 Einar Gíslason talar.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
heldur fund í félagsheimilinu
að Hallveigarstöðum þriðju-
daginn 20. apríl kl. 8.30. —
Jón H. Björnsson skrúðgarða-
arkitekt sýnir litskuggamynd-
ir, talar um blómarækt, skrúð-
garða og svarar fyrirspurnum.
Mætið vel. — Stjórnin.
HÆTTA Á NÆSTA LEITI • ettir John Saunders og Alden McWilliams
HtLMAR FOSS
Logg. skjalþ. og dómt.
Hafnarstræti 11 - sími 14824.
RACNAR JONSSON
Lögfræðistörf
og eignaumsýsla
Hverfisgata 14. - Slmi 17752.
Knútur Bruun hdl.
Lögmomuskrifstofa
Grettisgötu 8 II. h.
Sími 24940.
Hvað er að þér, góði, hvar finnurðti
til? Ó, ó, ó, í magaiium, mér líður hrarði-
lega. (2. niynd) Og ég er svo máttlaus.
Bíddu aðeins rólegur, ég losa mig við tal-
stöðina. (3. mynd) Það er læknisstofa upp
nu'ð götuiuii, liLuipið og náið í lækninn.
Btiðu þig undir að hressast í snatri dreng-
ur, við i'ruiu að fara að hlaupa.
HÖRÐUR ÓLAFSSON
hæstaréttarlögmaður
skjalaþýðandi — ensku
Austurstræti 14
símar 10332 og 35673