Morgunblaðið - 20.04.1971, Blaðsíða 6
MORGUNBLABIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1971
Áimi) IIEÍLLA
Síðasti snjórinn
Börnin nota síðasta snjóinn.
1 dag: er þriðjudagnrinn 20. apríl. Er það 110. dagur ársins
1971. Árdegisháflæði er klukkan 01.49. Eftir lifa 255 dagar.
Drottinn, til himna nær miskunn þín, tU skýjanna trúfesti þín.
(Sálm. 36,9.)
Næturlæknir í Keflavík
20.4. Kjartan Ólafsson.
21.4. Arnbjörn Ólafsson.
22.4. Guðjón Klemenzson.
23., 24. og 25.4., Jón K. Jóhannss.
26.4. Kjartan Ólafsson.
AA-samtökin
Viðtalstími er í Tjamargötu
3c frá kl. 6- 7 eJi. Simi 16373.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 75,
er opið sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 1.30—4.
Aðgangur ókeypis.
MænusóttarbólusetnJng fyrir
fullorðna fer fram í Heilsuvemd
arstöð Reykjavikur á mánudög-
um frá kl. 5—6. (Inngangur frá
Barónsstíg yfir brúna).
Ráðgjafaþjönusta
Geðverndarféiagsins
þriðjudaga kl. 4—6 síðdegis að
Veltusundi 3, sími 12139. Þjón-
ustan er ókeypis og öllum heim-
U.
Frá Ráðleggingastöð
kirkjimnar
Læknirinn verður fjarverandi
um mánaðartima frá og með 29.
marz.
FORELDRAR
Gleðjið börnin á komandi
sumri með barnastultum (5
iitir). T résmíða verkstæðið,
Heiöargerði 76, sími 35653.
Opið fram eftir kvöldi.
ÓSKUM EFTIR
að kaupa eða leigja 4ra-—6
tonna trillubát i góðu lagi.
Upplýsingar í síma 25717.
IbOð óskast
á leigu í Reykjavík. Sími
26636 eftir kl. 18.00.
EKKJA MEÐ 3 STÁLPUÐ BÓRN
óskar að taka á leigu 3ja—
4ra herbergja íbúð. Reglu-
serrvi og örugg mánaðargr.
Uppl. í síma 16686 og 20430.
HALLÓ NEMENDUR
Löngumýrarskólo veturinn
'65—’66. Hringið í Elvu
Björnsdótur í síma 18494,
sem aifra fyrst.
RIFFILL
Vel með farinn Cal. 222 ósk-
ast. Upplýsingar í síma
32908.
1—3 SKRIFSTOFUHERBERGI
tii leigu. Tilboð sendist
Morgunbl., merkt „7066."
KEFLAVlK
Stúlka óskast til afgreiðslu-
starfa, helzt vön afgreiðslu.
Upplýsingar f síma 1256.
GERUM VIÐ ALLT TRÉVERK
nýtt sem gamalt. Lita, lakka,
pólera, spónlegg, lími og fl.
Kem heim, ef óskað er.
Sími 83829.
Sigurður Blomsterberg.
FRÍMERKI — FRlMERKI
Islenzk frimerki til sölu. Titb.
óskast sent til Morgunbl.
fyrir 25. apríl 1971, merkt
„Frímerki — Pálína 999 —
7368."
ÓSKA EFTIR
þriggja herbergja íbúð. —
Reglusemi, örugg greiðsla.
Upplýsingar í síma 20828
eftir kl. 5.
SJÓMANN VANTAR
á 70 lesta bát. Uppl. í síma
92-7063.
24 ARA GAMALL MAÐUR
sem er sveinn í rafvirkjun
óskar eftir atvinnu. Tilboð
sendist afgr. Mbl., merkt
„7371" fyrir 25. þ. m.
ÞRIGGJA TIL FJÖGRA
herbergja íbúð óskast í
Kópavogi eða Reykjavtk.
Upplýstngar í síma 42215.
STOLKU
vantar til Bergenfield, N. J.,
U.SA. 18—20 ára fyrir létta
húshjálp. Tvö börn, 8 og 6
ára. Fri um helgar. Flugferðir
borgaðar. Uppl. f s. 38437.
ÁHEIT 0G GJAFIR
Áheit og gjafir á Strandar-
kirkju afh. Mbl.
Þórunn 50, V. 100, G.I. 500,
S.J. 3.500, F.G. 50, B.K. 100,
Anna Guðmundsd. 100, J.J.L.
500, S.G. 200, Dúdda 500, G.G.G.
100, G.Þ. 100, Hanna 100, F.I.
100, N.N. 650, Ásgeir 300, Ó.I.
1.000, Fríða 100, Ö.Ó. 2000,
Bjami Halldórsson, Hagamel 18
2.000, K.Þ. 100, G. 500, N.N. 300,
R.J. Laugalandi 100.
Bruninn Grettisgötu afh. MbL
Akureyringur 100, Lauíey 300.
Bruninn að Krossnesi afh. Mbl.
NJST. 500, G.I. 500, I.Ó.I. 1.000,
G.B. 700.
Bruninn að Vatnshlíð
G.B. 700.
Guðm. góði afh. Mbl.
G.H. 500, Margrét 100, gömul
kona 100, G. 500. Hestarnir i snjónum.
m m
► * Jn* ,
m
... ~ .... mHts*
mm
Þann 3. 4. voru gefin saman
í hjónaband í Fríkirkjunni af
séra Þorsteini Björnssyni ung-
frú Hrafnhildur Valgarðsdóttir
og Bjarni Vemharðsson. Heim-
ili þeirra er að Kirkjuteig 13.
Studíó Guðmundar, Gaxðastr. 2.
Þann 27. 2. voru gefin saman
í hjónaband í Háteigskirkju af
séra Jóni Þorvarðssyni, ungfrú
Rósa Ólafsdóttir og Jón Jó-
hannesson. Heimili þeirra er að
Vitastíg 17.
Studio Guðmundar, Garðastr. 2.
Þann 27. 3. voru gefin saman
í hjónaband í Kópavogskirkju
af séra Sigurði Hauki Guðjóns-
syni, ungfrú Auður Jónsdóttir
frá Vopnafirði og Ingvi Rúnar
Grétarsson. Heimili þeirra er að
Hlíðargerði 13.
Stúdio Guðmundar Garðastr. 2.
VISUKORN
Ég er fangi fortíðar,
frelsi á ekki samtiðar,
finn ei fegurð framtíðar,
né fjárplógsaðferð nútíðar.
H.V.
FRETTIR
Hafnarf jarðarkirkja
Altarisganga í kvöld kl. 8.30.
Garðar Þorsteinsson.
ÚR ÍSLENZKUM ÞJÓÐSÖGUM
Ég á einn hálfvin
Einu sinni voru feðgar að
þræta um vináttuna. Sá yngri
sagðist eiga 18 vini, og taldi
hann þá alla trygga. Karl sagð
ist aðeins eiga einn hálfvin. Nú
vildu þeir reyna tryggð þeirra.
Sá yngri slátraði kálfi og bjó
um hann sem bezt hann mátti.
Síðan heimsótti hann alla vini
sína á náttarþeli með dauða
kálfinn og bað þá ásjár. Kvaðst
hann vera með mann, sem hann
hefði verið svo óhamingjusamur
að myrða, og bað þá að grafa
hann fyrir sig. En þeir vísuðu
honum allir frá sér með mestu
fyrirlitningu. Loks fann hann
hálfvin föður síns og bað hann
í nafni föður síns að taka und-
ir vandræði sín. Hann brást
vel við og bað hyski sitt að fara
burtu, meðan hann talaði við
mann þennan. Síðan bjó hann
sig til að rífa fjalir úr gólf-
inu til að jarða þar líkið. Hinn
sagði honum þá upp alla söguna
enda voru hinir þá búnir að
áikæra hann, svo við sjálft lá að
hann væri hnepptur í varðhald.
Sýndi hann þá kálfinn og slapp.
Um þetta kvað gamli maðurinn:
Átti ég margan alvininn,
úlf í klæðum sauða,
en hálfkunningi mætur minn
mér var trúr til dauða.
Sýnir Rannveigar
í september 1878 var maður
Rannveigar ekki heima, og svaf
ég hjá henni í svefnherbergi
hennar, er var i öðrum enda
hússins. Þetta kvöld háttaði hún
í fyrra lagi, því hún var ofurlít
ið vesæl, en ég var eftir í dag-
legu stofunni í hinum endan-
um. Áður en ég fór að hátta,
kraup ég á kné við legubekk-
inn og bað kvöldbæn mína.
Voru þá allir I húsinu, það ég
til vissi háttaðir. Þegar ég kom
inn til hennar, lá hún vakandi,
en hálfsyfjuð. Sagði hún þá við
mig, er ég kom: „Þú varst að
biðjast fyrir á legubekknum fyr
ir handan." Mér kom þetta óvart
og illa, því bænin er einungis
gjörð fyrir mann sjálfan, þegar
maður velur einveru fyrir hana,
og sagði ég því nokkuð stutt:
„Hvaða uppáfynding er þetta
fyrir þér?" Sagði hún þá og leit
alvörugefin á mig um leið: „Er
nokkuð ljótt í því að biðja? Og
til vitnis um, að ég veit hvað ég
segi, þá hóstaðirðu eða ræsktir
þið ofurlítið fyrst.“ Þá mundi
ég, að ég einmitt í þetta skipti
hafði gjört það. Að hún í öðr-
um enda hússine hefði heyrt svo
lítið hljóð, sem ég naumelga
fann, voru ekki tiltök. Að hún
hefði verið nálæg, var líka
ómögulegt, þar allar hurðirnar
voru harðlæstar og stirðar I
hjörunum. Að nokkur hafi getað
sagt henni það, var þessu ótrú
legast, þar allir voru háttaðir
og þar að auki óvanir að koma
inn til hennar svo seint.
Spakmæli dagsins
En sá réttláti, þótt hann deyi
ungur, er hann samt í ró. Því
æruverð elli er ekki langlif, og
hún mælist ekki eftir áratölu,
heldur er vísdómur mönnunum
hærur og flekklaust líf elliald-
ur. Af því að hann geðjaðist
Guði og elskaðist (af honum)
og lifði meðal syndara, yar
hann burt fluttur. Hann var
burt hrifinn, svo að vonzkan
skyldi ekki aflaga hans skiln-
ing eða tálið afvegaleiða hans
sál. Því töfrar lastanna draga
dul yfir það fagra, og svimi
gimdarinnar fellir óspillt sinni.
Fullnuma orðinn á stuttum tíma
lifði hann langan tíma. Af því
að sál hans var drottni þóknan
leg, því hraðaði hún sér burt frá
vonzkunni. — Speldnnar bók.
(Biblíuþýðing 1859).
Á BEIT 1 SÓLINNI