Morgunblaðið - 20.04.1971, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1971
Stúlka óskast
Starfsstúlka óskast strax i veitingastofuna Fjarkann,
Austurstræti 4.
Aldurstakmark 20—40 ára.
Uppl. á staðnum í kvöld milli kl. 8 og 9.
Á I i í Mámsstyrkur úr 'Ettarminningarsjóði Halldóru Ólafs. Styrkurinn veitist stúlku til verzlunarnáms í Verzlunarskóla slands eða erlendis. Jmsóknir ásamt upplýsingum um umsækjanda og nám, send- st Guðmundi Ólafs, Tjarnargötu 37, Reykjavík fyrir 4. mai nk.
Bifvélavirkjar
óskast strax
Biireiðar & Landbúnaðarvélarhl.
Suðurland>braut 14 • Bejkjavík - Sfmí 38600
Frysfihúsavinna
Okkur vantar strax nokkrar stúlkur og karlmenn til starfa i
frystihúsi okkar í Grindavík.
Fæði og húsnæði á staðnum.
Upplýsingar í sima 13850 i Reykjavik.
Vélstjórar — Snðumesjum
ARSHÁTÍÐ Véistjórafélags Kefiavíkur
verður hakjin i Stapa, föstudaginn 30. aprfl (kvöldið fyrir 1.
maí).
Allir vélstjórar á Suðurnesjum velkomnir.
Fjöhnennið og takið með ykkur gesti.
Fjölbreytt skemmtiatriði, góð hljómsvert.
Þátttakendur láti skrá sig fyrir 25. þessa mánaðar i síma
1758 — 2772 og 2695.
SKEMMTINEFNDIN.
Bufmugnsverkíræðingur —
rnfmugnstæknifræðingur
Fyrirtæki okkar óskar að ráða rafmagns-
verkfræðing (sterkstraums) eða þýzk
menntaðan rafmagnstæknifræðing, sem
fyrst. Áhugi á tæknilegum viðskiptum og
þýzkukunnáttu nauðsynleg. Æskilegur ald-
ur 25—30 ár.
Þeir, sem áhuga hafa á starfi þessu, eru
beðnir að hafa samband við okkur skriflega
og senda upplýsingar um menntun og fyrri
störf fyirr 10. maí næstkomandi.
SIEMENS-umboðið á íslandi:
SMITH & NORLAND H/F,
Suðurlandsbraut 4.
Níræð í dag;
Helga Finnsdóttir
90 ára er i dag Helga Finns-
dóttir frá Borgarnesi, nú til
heimilis að Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund í Reykjavík.
Helga er fædd á Ferstiklu á
Hvalf jarðarströnd 20. april 1881.
Árið 1928 stofnaði hún heimili
í Borgarnesi ásamt lífsförunaut
sínum Olgeiri Friðfinnssyni.
Þau eignuðust ein son, Ragnar,
nú bónda á Oddsstöðum í Lundar
reykjadal. Annan son hafðí
Helga eignazt áður, Ársæl
Jóhannsson, búsettan á Sel-
fossi.
Ekki er það ætlun mín að
skrifa hér neina ættartölu né
ævisögu. Til þess brestur mig
kunnugleika. Þetta verða aðeins
örfá þakklætisorð fyrir nokk-
urra ára samleið. Nóg veit ég
þó til þess að mega segja að
ekki hefur ævi hennar alltaf
verið dans á rósum.
Enga manneskju hefi ég vit-
að gera jafn litlar kröfur sjálfri
sér til handa, eins og Helgu
Finnsdóttur, og get ég ekki
stillt mig um að nefna lítið
dæmi. Það lýsir lifsviðhorfi
hennar betur en mörg orð. Það
var á Þorláksmessu síðustu jól-
in, sem hún var heima, að hún
fékk hjálp við að þvo hár sitt
óg greiða. Eftir að hafa
þakkað fyrir hjálpina, því að
þakklætinu gleymdi hún aldrei,
þó að minni hennar væri þá far-
ið að sljóvgast, sagði hún:
„Verst að það verður farið að
aflagast á morgun." Það var
engan veginn sjálfsagt, frá
hennar bæjardyrum séð, að
hún fengi aftur hjálp á aðfanga-
daginn. Ég hygg, að Helga hafi
aldrei verið svo fátæk, að hún
hafi ekki á einhvern hátt getað
launað greiða sem henni var
gerður.
Allir þeir sem minnimáttar
eru, hvort heldur eru menn eða
máileysingjar, eiga samúð henn
ar í rikum mæli, og ekki myndi
það verða ofmælt um Helgu,
sem sagt var um einn áf merkis-
mönnum þjóðar okkar, að:
„Víst er það ef dýrin mættu
mæla,
þá myndi verða blessað nafnið
þitt.“
Ekki átti Helga völ á skóla-
göngu fram yfir venjulegan
barnalærdóm þess tíma, en það
ætla ég að bóknám hefði orðið
henni auðsótt. Svo næm var
hún, að ekki þurfti hún að
heyra vísu nema einu sinni, til
þess að læra hana og muna.
Veit ég ekki til að vísnasafn-
arar - hafi uppgötvað hvílikur
hafsjór af fróðleik hún var i
þeim efnum, en þar hafa þeir
farið mikils á mis, því að nú er
minni hennar tekið að bila.
Ég veit að á þessum timamót-
um i lífi Helgu Finnsdóttur, er
henni efst í huga þakklæti til
allra þeirra, sem rétt hafa henni
hjálparhönd, eftir að hún hætti
sjálf að geta þjónað öðrum.
Hún hefur aldrei verið auðug á
veraldarvisu, en lífsviðhorfi
hennar verður ekki betur lýst
en með þessum orðum skáldsins:
„Gengi er valt, þar fé er falt,
fagna skalt í hljóði,
en hitt kom alltaf hundraðfait
sem hjartað galt úr sjóði."
Friður sé með þér Helga min.
RYMINGAR-
SALA ....
VERZLUNIN FLYTUR.
....... ALLT Á AÐ SELJAST
Notið tækifærið og gerið góð
fatakaup.
TERYLENE FRAKKAR
á 1.995,00 og 2.180,00 krónur.
KARLMANNAFÖT á 4.440,00 kr.
Allar stærðir.
STAKIR JAKKAR frá 975,00.
DRENGJAJAKKAR á 500,00 kr.
1
/
SPORTSKYRTUR á 395,00 kr.
LEÐURLÍKISBLÚSSUR á 695,00
— Lítil númer. —
Nærföt og margt, margt fleira
á góðu verði.
Föt fyrir hávaxna
Iog granna
3.500,00 kr.
Einhneppt, tvíhneppt.
Ármúla 5.