Morgunblaðið - 18.05.1969, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.05.1969, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1969 — Elskan mín, hvernig getum við verið bara vinir? —Það veilt ég etoki. En ég veit bara það eitt, að það væri þó skárra en að sjá þig alls ekki. Vita ekki hvar þú værir eða hvernig þér liði. Röddin í mér bilaði og ég fann, að tárin voru allveig að brjótast fram! — Lof- aðu mér því elskan mín, að fara ekki burt. — Ég lofa þér að fara ekki, nema láta þig vita af því. — Það nægir mér ekki. Lof- aðu, að þú skulir aldrei fara. — Ég lofa því að fara ekki strax. Ég varð að láta mér þetta nægja. Ég vissi, að það þýddi ekki að reyna að neyða Bob. Ef út í það var farið, var ég sjálf ekkert verr á vegi stödd en hann. En þegar við komum inn og hann sagði, að hann yrði að fara og finna Nick og hjálpa homum við vinnuna, þótti mér fyrir því að missa sjónar á hon- um. Þegar hann hafði borðað kvöldverð og ég var að kveðja hamn, þrýsti ég mér fast að homum. — Þú kemur í fyrramálið eins og vant er? — Vitanlega geri ég það. Mér varð ekki svefnsamt. Ég lifði upp aftur þennan dag, sem ég var viss um, að hafði verið sá versti á allri ævi minni. Ég spurði sjálfa mig, hvort Bob mundi líka vera andvaka og í eims döpru skapi og ég var sjálf. Framtíðin hjá mér var heldur skuggaleg. Svo ólík því, sem ég hafði hugsað mér hana fyrir skömmu. Ég sá sjálfa mig eftir nokkur ár. Heyrði fólk vera að pískra: „Hún Melissa Grindly? Nei, hún giftist aldrei. Hún var einusinni trúlofuð mannii, sem vann hjá hennd á búinu. Bob Johnston minnir mig hann héti. En það fór eitthvað út um þúfur hjá þeim, sem enginm veit hv_að var“. Ég gróf höfuðið niður I kodd- ann og grét þangað til ég átti ekki nein tár eftir Þetta var orð ið alveg vonlaust. Bob hafði ver- ið svo ákveðinn, þegar hann sagði, að konan hans mundi aldrei skilja við hann. Næsta morgun hnykkti mér við að sjá andlitið á mér í spegl- inium. Það voru svartir skuggar undir au'gunuim. Það var aiLveg auðséð, að ég hafði sofið illa. Jafnvel Mark, sem var aninars ekki sérlega eftirtektarsamur, sagði við morgunverðinn: — Þú ert eitthvað ræfilsleg, Melissa. — Er ég það. Það er allt í lagi með mig. Haltu nú áfram að borða, Mark, þú ert að verða of seinn. Ég horfði svo á eftiir honum þeg ar hann lagði af stað tiil skól- ans, og áminnti hann um að vara sig á gatnamótum. Hann glotti. — Ég er nú eng- inn kraikki! — Kannski ekki, en þú ert slærmur með að hjóla alltof hratt. Ég fór í búðir í þorpimu þenn- an morguin. Rétt þegar ég var að koma út frá matvöruisalanum, sá ég John þjóta framhjá í Bentley- honum, hissa á að sjá hann. Ég var viss um, að hann hefði ekki 46 séð mig. Ekki svo að skilja, að hann hefði stanzað, til að tala við mig, þó hann hefði séð mig. Það muindi hanin aldrei þora. En ef hann var hérma og ekki í Róm, hvaða skýring var á því? Hvar var Kay? Hann hafði verið einn í bílnum. Og jaifnvel þótt hann hefði stytt eitthvað dvöl sína í Róm, þá hefði Kay áreiðanlega haft samband við mig tafarlaust. Ef þau þá voru gift . . . Ég var hvort tveggja í senn fegin, ef svo væri ekki, og hrædd um Kay, ef þau væru það ekki. Ég hafði farið gangandi til þorpsins, því að mér hafði ekki þótt það ómaksins vert að taka litla bí'linn. En nú flýtti ég mér heim, eins og ég gat. Ég sá Bob úti á enginu og var í vafa, hvort ég ætti að fara beint til hans og segja honum, að ég hefði séð John, eða hringja heim til Johns. Ég ákvað að gera það siðar- nefnda. Ég gaf númerið og beið. Eftir stutta stund heyrði ég sett lega rödd brytans. Já, hr. Frin- ton var heima; Ef ég vildi biða, skyldi hann ná í hann. Stongaveiðiíélag gili Reykjavíkur heldur atmennan félagsfund í Þjóðleikhússkjallaranum, mið- vikudaginn 21. maí kl. 8.30. Fundarefni: Samkeppni erlendra og innlendra stangaveiði- manna. Allir áhugamenn velkomnir. _______ ____________ STJÓRN S.V.F.Ft__________ Frá skemmtinefndinni. Munið vorfagnaðinn i Þjóðleikhússkjallaranum í kvöld. Bezti leiðsögumaðurinn Hvert á að fara í sumar- leyfinu? Linguaphone kennir yður nýtt tungumál á auðveldan og eðlilegan hátt. Það stuðlar að: / — ánægjulegri ferðalögum. — hagkvæmari viðskiptum. — betri árangri í prófum. og er fyrir alla fjölskylduna. Kennarinn, sem þér hafið í hendi yðar. Enska með íslenzkum skýringum, franska - þýzka - spœnska - ítalska - norska - sœnska - danska o.fl. Hljóðfærahús Reykjavikur hf. Laugaveg 96 — Sími 13656 — Sæl góða — heldurðu ég hafi ekki gleymt glcraugunum í vinnunni. Ég beið, og hundruð órórra hugsana ásóttu mig. Þá heyrði ég í John frinton. — John Frinton hér. — Þetta er Melissa, John, — Þú hefuir þá frétt, að ég væri kominn heim? Ég var að velta því fyrir mér, hvort þú vissir af því. — Bíllinn þinn fór fraim hjá mér í þorpinu, fyrir stundu. Er Kay hjá þér? Hafið þið gift ykkur? Segðu mér það fljótt, því að ég er alveg frá mér af kvíða. Ég heyrði, að hann hló ofur- lítið, sem svar við spurningu minni — og mér fannst þessi hlót ur hans andstyggilegur. — Nei, Kay er ekki hjá mér og við erum heíldur ekki gift. Hélztu virkilega, að við værum það? — Ég fékk bréf frá henni frá Róm um daginn, þar sem hún sagði, að þið ætluðuð að gifta ykkur daginn eftir. — Víst vorum við í Róm. En svo bætti hann við og ég fann, að hann naut hvers orðs, sem hann var að segja: — Ef út í það er farið, Melissa hvaða mað ur mundi ekki vilja taka snotra stelpu eins Kay í ferðalag með sér í nokkra daga? — En ég var að segja þér, þó sagði hún mér, að hún væri að hlaupa að heiman til þess að giftast þér. Aftur heyrði ég ofurlítinn hlát ur. — Það getur vel verið. Og lík 'lega hefur hún sjálf haldið það. Og satt að segja var það það, sem ég var að egna með fyrir hana. —Þetta er skammarlegt af þér, John. — Þetta þykist ég muna, að þú hafir einhvern tíma sagt við mig áður. Það er skaði, að álit þitt á mér skuli ekki hafa breytzt neitt. — Alit mitt á þér er, ennþá lakara en það var þá. Ekki að það skipti okkur neinu máli . . . hvorugt okkar. En það sem ég vil fá að vita, er hvar Kay er niður kominn. — Góða mín, það hef ég enga hugmynd um. Hefði ég farið með þér til Rómar, var dálítið öðnu máli að gegna. Það ert þú, sem ég hef alltaf viljað eiga. En ekki hana liíliu sysitur þína. Ég sfcuddi mig upp við vegg inn, og var máttlaus, rétt eins og hnén ætluðu að síga undan mér. Þessi ka'diranahétt.ur Joihns var meira en mér hefði getað dottið í hug. — Hvenær sástu hana seinast, John? — Það man ég ekkert. Kannski það hafi verið á laugardaginn var. Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl. Leyndarmálin upplýsast i dag. Enginn er ánægður, þótt skaðinn sé ekki langvarandi. Nautið, 20. apríl — 20. maí. Dómgreindin er svo mikils virði, hugsaðu ávallt áður en þú talar. Tvíburamir, 21. maí — 20. júní. Því minna, sem þú aðhefst i dag, þeim mun betra. Þér finnst sam- skiptin við aðra skemmtileg, ef þú kemst hjá því að flækjast i mál þeirra. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí. Þú ert annars hugar í dag, því að margt glepur. Reyndu að gera gott úr öllu. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. Þú kannt að heyra leiðinlegar fréttir, en þú heyrir ekki alla súguua. Meyjan, 23. ágúst — 22. september. Þér veitist auðvelt að áfellast aðra. Fjölskylduviðræður geta orðið að illdeilum. Farðu varlega í umferðinni. Vogin, 23. september — 22. október. Fyllstu varúðar ber að gæta í meðförum allra véla. Samverkamenn og nágannar gera hluti, sem koma þér i vandræði. Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember. Umferða- og viðskiptatafir verða í dag. Misskilningur verður einnig, og ringulreið. . Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. Það er ekki mikið, sem þú getur aðhafst til að standa straum mót- bárunnar. Því minna sem sagt er, því betra, er fram liða stundir. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. Hætta er í umferðinni. Gættu vel að öllum öryggismálum. Vatnsberinn, 20 janúar — 18. febrúar. Viðskipti mega biða, annars getur þú gieymt skapstillingunni. Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz. Auðvelt er að fleipra, gættu þín

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.