Morgunblaðið - 19.08.1959, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.08.1959, Blaðsíða 11
Miðvik'udagur 19. áeúst "1959 mnnr.rnvpT 4Ð1Ð 11 Niðurgrei&slur landbúnaðarvarcs aldrei skaðað bœndur Rceða Ingólfs Jónssonar á Alþingi vegna tillögu Frams'áknarmanna um niðurgreiðslu landbúnaðarvara hafa Herra forseti! Hér hefur verið flutt fram- söguræða við tillögu þá til þings- ályktunar á þingskjali 16, um niðurgreiðslu á landbúnaðarvör- um. Ræða þessi var að vísu ekki löng, en innihald hennar, að það væri ’mikil hætta á ferðum fyrir íslenzkan latídbúnað, ef niður- greiðslur landbúnaðarvara yrðu auknar. Og þá bæri með þessari tillögu að koma í veg fyrir,' að það væri gert, minnsta kosti án þess að hafa samráð við Fram- leiðsluráð landbúnaðarins og Stéttarsamband bænda. Það er vitanl. margt við þessi mál að athuga, en niðurgreiðslur á land- búnaðarvörum er ekkert nýtt fyr- irbæri í okkar efnahagsmálum. Það er eina ráðið, sem fyrrver- andi ríkisstjórn og núverandi hæstv. ríkisstjórn hefur haft til þess að halda vísitölunni niðri. Og hin svokallaða vinstri stjórn fyrrv. notaði þetta ráð í ríkum mæli og hækkaði niðurgreiðslur á mjólk, kjöti og kartöfl. í stórum stíl, þannig að það nálgast það, sem hefur verið gert af núverandi hæstv. ríkisstjórn. Það er rétt, að niðurgreiðslurnar eru orðnar miklar, og það eru miklar fjár- fúlgur, sem fara í það að halda vísitölunni niðri á þennan hátt. En það hefur ekki enn verið neitt annað meðal við dýrtíðinni held ur en þetta og til þess hefur ver- ið gripið. Þá er eðlilegt að at- hugað sé, hvort gengið sé sér- staklega á hlut einnar stéttar með því að fara þessa leið, sem farin hefur verið. Hefur verið níðzt á bændum og hlutur þeirba skertur með því að fara þessa leið? Það1 eru aðeins örfá ár síðan 18 fulltrúar Mjólkursamsölunnar í Reykjavík og mjólkurbúar.na á Suður- og Suðvesturlandi sam- þykktu það, að ég heid einróma, man þó ekki hvort einn fuiltrú- inn sat hjá, að gefa eftir 12 aura af mjólkurverðinu gégn því, að niðurgreiðsla á mjólk væri aukin um 42 aura á hvern lítra. Nú segi ég ekki, að þetta hafi verið eðlileg ósk hjá fulltrúunum. Ég segi ekki, að það hafi verið eðli- legt, að þeir byðu fram þessa 12 aura gegn niðurgreiðslu, en það sýnir samt, að fulltrúar bænda 18 talsins í Mjólkursamsölunni í Reykjavík og tveimur stærstu mjólkurbúum á Suður- og Suð- vesturlandi, töldu það svo mikils virði, að niðurgreiðslan væri auk- in, að þeir vildu vinna það til að gefa eftir 12 aura á lítra, og hvers vegna? Það var vegna þess að þeir gerðu ráð fyrir, að mjólk ursalan á innlendum markaði mundi aukast verulega úið þetta og þeir sögðu það, bæði á fund- um og í rituðu máli, að það væri ekki til tjóns fyrir bændur að gefa þessa 12 aura eftir, vegna þess að það mundi gera meira en að vinnast upp í aukinni sölu. Þetta sögðu margir fulltrúar bænda. Það má vel vera, að hv. þingmaður Dalasýslu hafi lítið um þetta sagt, kannske höfum við báðir verið á sömu skoðun, að það væri vafasamt, að hægt væri að vinna þess’a 12 aura upp. Hitt er svo alveg ljóst, að með því að útsöluverð mjólkurinnar og land- búnaðarvara er lækkað, þá leið- ir það til aukinnar sölu innan- lands, en á sl. ári þurfti að flytja út mikið af osti fyrir lágt verð og varð það til þess að lækka verð á mjólk um 13 aura á hvern lítra til bænda. Á þessu ári þarf hins vegar ekki að flytja út neitt af osti, enda þótt mjólkurfram- leiðslan sé hin sama fyrri hluta árs 1959 og hún var fyrri hluta árs 1958 og þetta er vitanlega vegna þess, að sala neyzlumjólk- ur hefur aukizt. Þá geta menn spurt að því hvort sala neyzlu- mjólkur hefði aukizt, eins og raun ber vitni, ef hún hefði ekki verið greidd niður, ef hún væri á innlendum markaði 92 aurum hærri heldur en er nú og menn gætu jafnvel spurt að því, hvort salan á neyzlumjólkinni hefði ekki minnkað verulega, ef hver líter væri 92 aurum dýrari í út- sölu heldur en hann er nú. Þetta eru spurningar, sem menn geta velt fyrir sér og sjálfsagt er að hafa í huga, þegar :inn eða ann- ar fullyrðir, að niðurgreiðslurn- ar séu bændum til tjóns. Háttvirtur þingmaður Dala- sýslu sagði hér áðan. að bændur keyptu landbúnaðarvörurnar til heimilisins á hærra verði heldur en neytendur þyrftu að greiða. Það er nú rétt að athuga hvort þessi fullyrðing stenzt. Ég held, að hún standist ekki, vegna þess, að þótt bændúr eigi samkvæmt verðgrundvellinum að fá 3,79 kr. á mjólkurlítra í sinn vasa, þá fá þeir það' ekki. Þeir fengu fyrir sl. ár, margir bændur, aðeins 3 kr. fyrir L, enda þótt þeim bæri að fá miklu meira. Og það er vitanlegt, að það eru ekki tekjur hjá bændum, kostnaðurinn við að flytja mjólkina að stöðvar- vegg, en það ber þeim að gera óg það má þó alltaf draga frá. En það var hjá Mjólkurbúi Flóa- manna, að mig minnir sl. ár 35 aurar á mjólkurl. Auk þess vant- aði talsvert á hjá sumum mjólk- urbúum, til þess að þetta fyrir- skipaða grundvallarverð næðist. Og af þeim ástæðum er það, að margir bændur hafa fengið sl. ár aðeins 3 kr. eða rúmlega 3 kr, fyrir 1., þótt þeim bæri að fá miklu hærra vérð. Söluverð á mjólk í Reykjavík er nú kr. 3,15 mjólkurl. og mætti þess vegna segja, að útsöluverðið væri svipað og það verð, sem bændur hafa fengið í sinn vasa. Sama má segja um kjötið, að kjöt- verðið til bóndans á að vera kr. 21,34. Útsöluverð á súpukjöti mun vera 21 kr. Þarna munar 34 aur- um. Hins vegar má næstum full- yrða, að bóndinn fái ekki þetta verð fyrir kjötið. En nú er það svo, að Framleiðsluráð landbún aðarins hefur heimild til þess að taka tillit til þess, hvað bóndinn þarf að kaupa til síns heimilis. Og það er gert ráð fyrir, að með- al heimili noti 3000 1. af mjólk yfir árið. Þetta er reiknað bónd- anum sem tekjur. Einnig ákveð- inn kílóafjöldi af kjöti og kart- öflum. Framleiðsluráð hefur heimild til þess að reikna bónd- anum þessar vörur til tekna, á því verði, sem bóndanum er hag- stætt. Verði útsöluverðið lægra heldur en það, sem bóndanum ber að fá, þá hefur Framieiðslu- ráðið heimild til þess að reikna lægra verðið bóndanum til tekna á þeim vöruskammti, sem heim- ilinu er ætlað. Ætlast verður til, að þessi heimild verði notuð í haust, og ég efast ekkert um, að háttvirtur þingmaður Dalasýslu vill einnig stuðla að því. Ef þessi heimild verður notuð, sem ég efast ekkert um, að framleiðslu- ráð hafi hug á að gera, þá þýðir ekki lengur að tala um það, að bændur skaðist að því leyti til, þótt útsöluverðið verði lægra heldur e_n það verð, sem bóndinn á að fá. Ég veit, að hv. þingmaður Dalasýslu er mér innilega sam- mála um, að þessi regla eigi að gilda í verðlagningu landbúnað- arvaranna. Ég tel alveg sjálfsagt, að sú regla verði látin gilda. En þá getum við verið sammála um, að bóndinn skaðist ekki, jafnvel þótt niðurgreiðslurnar væru aukn ar meira hel’dur en orðið er, en ég ætla ekki á þessu stigi að mæla með því, mér þætti það að sjálfsögðu betra, að eitthvert ann að og heppilegra ráð fengist, sem Ingólfiur Jónsson. ekki enn hefur verið mögulegt að nota til þess að halda dýr- tíðinni í skefjum. Háttvirtur þingmaður Dala- sýslu minntist á það hér áðan, að það væri mikil hætta fyrir bændastéttina í því folgin, ef að því kæmi, að niðurgreiðslunum yrði hætt. Við skulum segja, að af þessu gæti stafað hætta fyrir bændur, en mundu nú ekki aðrir þjóðfélagsþegnar einnig telja að þeim stafaði nokkur hætta af þessu líka, einungis vegna þess, að þá mundi allt okkar fjármála- kerfi fara úr skorðum, og hvað mundu neytendurnir segja um það, að niðurgreiðslunum væri einn góðan veðurdag kippt af, án þess að launþeginn fengi það bætt með hækkuðu kaupgjaldi, og hvað gilti það? Það gilti það, sem ég áðan sagði, að setja allt okkar efnahagskerfi og fjármála- líf úr skorðum. Þetta er þess vegna ekki aðeins hætta fyrir bændastéttina, það er þjóðfélags- leg hætta. Það er ekki mögulegt að hætta þessum ráðstöfunum með niðurgreiðslurnar, nem'a annað komi í staðinn, sem getur dugað, ekki aðeins bændum, og öðrum þjóðfélagsþegnum og okk- ar fjármála- og atvinnukerfi yf- irleitt. Ég segi þess vegna: bænd- um stafar ekki meiri hætta af þessu heldur en öðrum þjóðfé- lagsþegnum. Þetta er vissulega vandamál fyrir þjóðfélagið i heild, og ég veit að háttvirtur þingmaður Dalasýslu, er mér sam mála um það, að niðurgreiðslurn ar eru ekki styrkur til bænda, heldur eru niðurgreiðslurnar gerðar að þjóðfélagslegri nauð- syn, ekki fyrir bændur, heldur fyrir þjóðfélagsheildina af því að annað ráð hefur ekki fundist til þess að halda vísitölunni og dýr- tíðinni niðri, til þess að halda at- vinnuvegunum gangandi, og það væri eðlilegt úr því að við erum að ræða þessi mál, að við gerð- um okkur grein fyrir þvi, hver væri aðstaða bænda í dag, ef stefnu fyrrverandi ríkisstjórnar hefði nú verið fylgt, ef verðskrúf an hefði ekki verið stöðvuð. Hvernig væri þá aðstaða bónd- ans í dag, með sinn rekstur? — Það mundu kannski einhverjir spyrja: Hvernig væri ástandið í þjóðfélaginu yfirleitt og okkar at vinnuvegum? Það er alveg Ijóst mál, að ef verðskrúfan hefði ekki verið stöðvuð og vísitalan hald- ið áfram að rjúka upp, þá hefðu atvinnuvegirnir allir stöðvast og hér hefði skapast atvinnuleysi og öngþveiti. Ég held að við getum verið sammála um það, ef við athugum þessi mál ofan í kjölinn og vitum yfirleitt, hvað við er- um að segja og hver er undirstaða þessara mála, að það var vissu- lega nauðsynlegt fyrir bændur, jafnvel nauðsynlegra heldur en nokkra aðra stétt þjóðfélagsins, að verðskrúfan væri stöðvuð. Á sl. hausti var kaupgjald Dags- brúnarverkamanns 21 kr. og 30 aurar á klukkustund. Verðlagn- ing landbúnaðarvara til bóndans var miðuð við þetta kaupgjald. Um áramót er vísitalan komin upp í 202 stig og kaupgjaldið í 23 kr. 86 aura á klukkustund. Kaup bóndans var óbreytt, og hefði orðið óbreytt þangað til n.k. haust, þótt vísitalan hefði haldið áfram að hækka og kaup- gjald annarra þegna þjóðfélagsins hækkaði af þeim ástæðum. Kaup bóndans var um áramót tveimur kr. 56 aurum lægra en kaup laun þeganna, sem verðlagning afurð- anna var miðuð við sl. haust, þannig að kauphækkunarskrúfan og vísitöluskrúfan, sem átti sér stað undir forystu vinstri stjórn- arinnar hafði á þessum fáu mán- uðum snuðað bóndann um 2 kr. 56 aura á hverja klukkustund. Ég efast um að hv. þingm. Dal. hafi gert sér grein fyrir þessu. Ég held að hann hefði ekki stað- ið fyrir flutningi á þessari tillögu í því formi, sem hún er, ef hann hefði gert sér grein fyrir því, hvaða þýðingu það hafði fyrir bændur að stöðva vísitöluskrúf- una. Með því að vísitöluskrúfan var stöðvuð og sú leið var farin, sem farin var sl. vetur, var þetta misræmi að mestu leyti lagfært. Mismunurinn er ekki nú 2 kr. 56 aurar, eins og var um sl. áramót, heldur er mismunurinn nú 33 aur ar, sém bóndinn tekur minna á klukkustund heldur en verkamað urinn. Eftir niðurfærsluna er verkamannakaupið 21 kr. 63 aur- ar, eða 33 aurum hærra heldur en sl. haust, þegar verð landbúnað- arvara var ákveðið. Munurinn er þess vegna nú 33 aurar, sem bónd ann vantar á móti tveimur kr. 56 aurar um áramót. Ég er hér um bil sannfræður um >það, að hv. þingm. Dal., þegar hann gerir sér grein fyrir þessu, að þá fær hann allt aðra skoðun á þessu máli, og það hefði verið vel gert af honum að kynna sér á hvaða grundvelli málið stendur áður en hann flutti sína ræðu. Hélt hann að hann kæmist upp með að flytja hér mál, sem nægði til á- róðurs og ekki yrði andmælt. Það er sumt í till., sem ég tel að eðlilegt sé að fra mkomi hjá fulltrúum bænda. Viðvörunarorð eru vissulega góð og oft nauðsyn- leg. Sjálfsagt, er að farið sé eft- ir því sem í till. stendur, hvað varðar Stéttarsamband bænda og Framleiðsluráð, að taka tillit til tillagna þeirra samtaka og leita samráðs við þau. Efast ég ekkert um að það verði gert, hvort sem þessi till. verður samþykkt eða ekki. Annars er það ekki nema ánægjulegt að heyra, hvað Fram- sóknarmenn hafa nú gert sér grein fyrir því, að bændastéttin er ekki á góðum vegi stödd, hvað efnahagsmál hennar og verð- lagsmál snertir, en aðstaða bænd- anna er ekki slæm vegna að- gerða núv. ríkisstjórnar. Aðstaða bændastéttarinnar er slæm vegna aðgerða fyrrverandi ríkisstjórnar sérstaklega vegna bjargráðanna 1958, vegna þess að þá voru ekki gerðar þær ráðstafanir sem þurfti til þess að hlutur bænda yrði ekki fyrir borð borinn. Það var þá sem tekin var upp ný stefna, að gera upp á milli hinna ýmsu stétta þjóðfélagsins. Þá var tekin upp sú stefna að leggja jafnháa skatta á brýnustu nauðsynjar og ónauðsynlegar vörur, á rekstrar- vörur landbúnaðarins og sjávar- útvegsins, iðnaðarins og hinna ýmsu atvinnuvega. Ég hygg að segja megi að flestir hafi fengið nokkrar bætur upp í þessa skatta ,aðrir heldur en bændurrúr. En því er nú verr, að bændurn ir voru að þessu leyti settir hjá, það var ekki tryggt um leið og 55% yfirfærslugjaldið var lagt á rekstrarvörur landbúnaðarins, að þeir fengju bætur fyrir í hækk- uðu afurðaverði eða á annan hátt, og það var alveg Ijóst áður en þessi lög tóku gildi, að í gegn- um verðlagningu landbúnaðar- vara á þeim grunni, sem sú verð- lagning er byggð var ekki unnt að fá bætur bændum til handa. Reynslan talar í þessu máli, þess vegna þrengir nú að íslenzkri bændastétt, því að á þessu ári hafa bjargráðin komið á með fullum þunga. Vandamálið, sem nú er við að stríða vegna land- búnaðarins er það, að rétta hlut bændastéttarinnar aftur, þannig að hann verði a. m. k. ekki verri heldur en hann var fyrir bjarg- ráðin. Ég gæti vel trúað að hv. þing- maður Dalasýslu vildi eiga hlut að því og trúi honum til þess að vilja leggja hönd á plóginn til þess að gera hlut bændastéttar- innar betri. Ég er sannfærður um, að ef hv. framsóknarmenn hefðu hugsað um hagsmuni bænda meðan vinstri stjórnin var og hét, þá hefðu þeir aldrei látið óhappið ske og komið landbún- aðinum í vandræði. En það má segja, að það sé ekki ástæða til að vera að'sakast u morðinn hlut. Nú sé verkefnið framundan, að lagfæra það sem illa hefur verið gert og bæta úr því. Það verður að gerast á næstu mánuðum og byrjunin yrði þá sú að verðleggja landbúnaðarvörurnar á þann hátt, sem framleiðsluráðið hefur heimild til, og reikna bóndanum þær vörur sem hann notar til síns bús, ekki á hærra verði í tekjum bóndans heldur en nauðsyniegt er, eða miða við lægra verðið hverju sinni, hvort það er út- söluverð, eða það sem bóndanum er beinlínis ætlað að fá. Þá þarf að tryggja að bændur fái það verð í sinn vasa sem þeim ber samkv. verðlagsreglunum. Þetta teldi ég góða byrjun. Ég er sann- færður um, að það er enginn sann gjarn maður, sem mælir þessu I gegn, en svo er það vitanlega margt rneira, sem þarf til að koma. Ég gæti bezt trúað, að þar ætti ég og hv. þm. Dalasýslu að mörgu leyti samleið. Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þessa tillögu. Ég greiði henni atkvæði þótt það hafi ekki mikla þýðingu hvort hún verður samþykkt. Ég tel það fráleitt, að nokkuð verði gert sem skaði bændur, enda ekki hætta á að það verði,~hvað sem um tillög- una annars skyldi verða. Þar sem vegabréfs áritim er óþörf Á UNDANFÍRNUM árum hafa verið gerðir samningar um nið- urfellingu vegabréfsáritana við ýms lönd, aðallega í Vestur- Evrópu. íslendingar geta nú ferðast til þessara landá og dvalizt þar í nokkurn tíma, ýmist 2 eða 3 mánuði, án þess að sækja um leyfi til þess fyrirfram, enda sé ekki um dvöl í atvinnuskyni að ræða. Löndin, sem þannig hef- ur verið samið við, eru þessi: Austurríki, Bretland, ásamt ný- lendum og verndarríkjum, Dan- mörk, Finnland, Frakkland (Als- ír), Grikkland, Holland, írland, Ítalía, Luxembourg, Monaco, Noregur, San Marino, Spánn, Sviss, Svíþjóð, Sambandsríkið Malaya, Túnis, Tyrkland, Þýzka sambandslýðveldið. Þess skal jafnframt getið, að ef ferðazt er eingöngu innan Norðurlandanna, án viðkomu á stað utan þeirra, þarf ekki að hafa vegabréf meðferðis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.