Morgunblaðið - 04.12.1940, Blaðsíða 3
Miðvikudaginn 4. des. 1940.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Útför Pieturs Hall-
#'
dórssonar borgar-
stjóra fer fram í dag
JARÐARFÖR Pjeturs Halldórssonar borgarstjóra
fér fram í dag. Húskveðja verður á heimili hans
Túngötu 38. Húskveðjuna flytur sr. Bjarni
Jónssom
Gert er ráð fyrir, að kirkjuathöfnin hefjist kl. langt
gengin tvö.
Fulltrúar frá Alþingi óg Miðstjórn Sjálfstæðisflnkksins bera
kistuna í kirkju. En iit úr kirkjunni bera kistuna fulltrúar úr bæjar-
ráði og bæjarstjórn Reykjavíkur.
Sr. Friðrik Iíallgrímssoa flytur kirkjuræðuna.
Inn í kirkjugarðinn verður kistan borin af fulltrúuin frá Stór-
stúku Gk>odtemplarareglunnar, <en- að gröfinni af starfsmönnum
bæjarins.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur við kirkjugarðsgönguna.
Atböfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Bæjarstjórn Reykjavíkur anpast um útförina.
MannÍaliH:
550 teljarar
í Reykjavák
Samtat við Pjetur Zophóniasson
—
HVERNIG gekk manntalið? spurðum vjer
Pjetur Zophóníasson í gær.
— Það fór yfirleitt vel úr hendi, og má segja, að flestir
tækju því vel, þó einstakar konur væru tregar til að gefa upp-
lýsingar um sig. En það jafnaðist og upplýsingarnar náðust, og
jafnvel Tjettari en þær vilja vera láta. 5
— Hvað voru teljararnir margir?
— Þeir voru um 550, af þeim voru 42 konur.
— Hverjir voru helst teljarar?
— Aðallega voru það verslunarmenn, skrifarar, en annafs
menn úr öllum stjettum, prófessorar og alþingismenn.
Lj óslamparnir.
Likn þakkar
rausn
bæjarbúa
Eitt a,f þeim viðfangsefnum,
sem Ungbarnavernd Líkn-
ar hefir leitast við að leysa, er
að ráða bót á beinkröm í ung-
börnum og þá meðal annars með
ljósböðum, en mikið hefir skort
á, að fjelagið rjeði yfir nægi-
lega mörgum tækjum í barátt-
unni við þennan algenga sjúk-
dóm.
Nú hefir fjelagið leitað að-
stoðar Reykvíkinga til þess, að
bæta úr þessari vöntun og eins
og svo oft áður hafa menn sýnt
starfsemi fjelagsins velvild og
hjálpsemi.
Tveir ljóslampar hafa verið
færðir fjelaginu að gjöf. — Auk
jþess hefir einn af styrktarmönn-
um fjelagsins beðið mig um að
kaupa nýjan ljóslampa og
senda sjer reikninginn. Loks
hefir safnast álitleg upphæð hjá
Morgunblaðinu og hefir Thor-
valdsensfjelagið og H.f. Edda,
sýnt mikla rausn í framlögpm
sínum til þessa nauðsynja máls.
Ungbarnavernd Líknar getur
nú þegar aukið ljósböðin að
miklum mun. Og með fjölgun
ljóslampa síðar, sem vonandi
verður áður en langt um líður,
má gera sjer von um að geta
fullnægt brýnustu þörf á ljós-
böðum fyrir reykvísk ungbörn,
á þeim tíma árs, þegar áhrifa
sólarljóssins gætir minst, svo að
takast megi með auknu eftir-
liti, að fyrirbyggja og útrýma
beinkröm ungbarna hjer í
Reykjavík.
Öllum þeim, sem með stuðn-
ingi sínum hafa sýnt málinu
stuðning og velvild, færi jeg
hjer með bestu þakkir.
F. h. Hjúkrunarfjelagsins Líkn.
Sigríður Eiríksdóttir,
formaður.
★
Með þessu er þá lokið sam-
skotum hjá Morgunblaðinu. —
Þakkar blaðið hjartanlega hin-
ar ágætu undirtektir bæjarbúa
og fagnar því, að þetta velferð-
armál Líknar er nú komið í ör-
ögga höfn. Ritstj.
Samskotin til ljóslampakaup-
anna handa Líkn: A. R. 5 kr.
Davíð 5 kr. R. 2 kr. M. S. 10 kr.
(afh. af Líkn). H. 0. B. 100 kr.
Lóló 10 kr. — Afh. K. Thorodd-
sen lækni: frá Sigrúnu 5 kr., frá
Bergljótu 100 kr.
Forsetí bæjarstjórnar Guðmimd-
ur Ásbjömsson er meðal þeirra,
sem lengst naut samstarfs bins
látna borgarstjóra. Um þá * Við-
kynning og samstarf skrifar bæj-
arstjórnarforsetinn;
Jeg áttí því láni að fagna að
hafa mjög náin kynni af
Pjetri Halldórssyni borgarstjóra.
Samvinna ok-kar- að bæjarmálutn
Reykjavíkur náði yfir 20 ára
tímabil, án þess nokknrn tffna
bæri í milli. Þori jeg að fullyrða,
að erfitt hafi verið að finna ánn-
an mann, jafn lipran til sam-
vinnu og hann var, og þó svo
heilsteyptan. Þeir, sem nokkuð
til hans þekkja, vita að hann var
maður, sem aldrei hvikaði frá því
sem hann vissi sannast og rjett-
ast, og var reiðubúinn til að leggja,
alt í sölurnar fvrir hvert, það
málefni, sem unnið hafði sannfær-
ingu lians.
Þegar Pjetur Halldórsson varð
borgarstjóri 1935, skrifaði jeg um
hann í tímaritið'„Óðinn“, og leyfi
mjer að taka hjer upp nokkurn
kafla úr þeim ummæhim:
„Engan þarf að undra, þó ýms
deilumál komi "upp í bæjarstjórn
á svo mörgum árum, enda hafa
þari verið mörg. Því verður held-
ur ekki neitað, að oft hefir skor-
ist í odda milli flokka þeirra, sem
í bæjarstjórn eru, og hefir Pjetur
Halldórsson þá jafnaðarlega stað-
ið framarlega í sókn og vörn, og
aldrei hlíft sjer eða dregið sig í
hlje. En þrátt fyrir þetta þori jeg,
sem hefi verið samstarfsmaður
Pjeturs síðan hann kom í bæjar-
•Stjórn, og haft meira saman við
hann\ að sælda en flestir aðrir, að
fullyrða. að andstæðingar hans
þar,®bera honum þann vitnisburð,
að hann sje manna sanngjarnast-
ur og drenglyndastur, þó hann
fylgi því, er hann veit rjettast og
best, út í ystu æsar. Jeg hefi
aldrei heyrt nokkurn mann segja
óvildar- eða kalaorð um Pjetur
Halldórsson persónulega.
Borgarstjórinn okkar, Pjetur
Halldórsson ,er manna glæsileg-
astur í allri framgöngu, og ber
PRAMH. Á SJÖUNDU SÍ»U.
Síldarsala
tíl Svíaftim
Petsamoi
Samkomulag mun fengið um
það, að við fáum að selja
Svíum 45—50 þús. tn. síldar, sem
sendar verða um Petsamo.
Svo sem kunnugt er, hafa lengi
staðið yfir samningar um þessa
síldarsölu, en ekki fengist sam-
þykki Breta. Nú mun þeirra sam-
þykki hinsvegar fengið og ætti
þá þessi sala að geta komist í
kring.
Þegar um það var að ræða s.l.
sumar, að; Svíar keyptu af okkur.
síld, var ætlunin að síldin yrði
send til Gautaborgar. Var þá tal-
að um verð, 70 kr. pr. tn. fob.
JSn svo var útilokað, að hægt yrði
að fá síldina flutta á skipi til
Gautaborgar, heldur til Petsamo
í Finnlandi. Fóru þá Svíar fram
á, að verðið yrði lækkað eitthvað,
vegna hins gífurlega flutnings-
kostnaðar frá Petsamo. Var þá á-
kveðið að lækka verðið um 10 kr.
pr. tn., til þess að reyna að koma
þessari sölu í kring.
Síld sú, sem hjer er um að
ræða, er hausskorin og magadreg-
in. Það var fyrir atbeina ríkis-
stjórnarinnar, að ráðist var í það
s.l. sumar, að salta þessa síld,
þrátt fyrir algera óvissn um sölu
Einhverjar líkur munu nú einn-
ig vera fyrir því, að takast muni
að selja Svíum ull og gærur, en
þó ekki fyr en eftir áramót.
%
Kennedy hefir
beðist lausnar
að hefir verið opinberlega
staðfest í Washington, að
Joseph Kennedy,' sendiherra
Bandaríkjanna í London, hefir
beðist lausnar frá sendiherra-
starfinu.
Roosevelt hefir tekið lausnar-
beiðnina til greina, en engin
ákvörðun hefir verið tekin enn
um hver verður eftirmaður
hans.
— Er alt talið nú?
— Nei. Veikindi og ýmsar
tafir hafa gert það að allir telj-
arar hafa ekki getað lokið verki
sínu enn. Teljari, er var lagður
á stað að telja, datt á götunni
og meiddist svo, að það varð
að flytja hann á sjúkrahús. —
Vitanlega varð að útvega ann-
an í hans stað. Jeg vil því biðja
alla þá, þar sem teljari hefir
ekki komið, að gera mjer við-
vart um það, annað hvort í síma
1040 eða 3355.
— Hvernig er starfið af hendi
leyst?
— Yfirleitt ágætlega. Jeg er
sannfærður um að ekkert mann-
tal er jafn vel af hendi leyst,
— Hefir ekki eitthvað borið
við, sem er í frásögur færandi?
— Ójú — styttingar og gælu-
nöfn hafa skrítin áhrif. Á ein-
um stað rifust hjónin um hvað
eitt barnið þgirra hjet — það
var þó skírt. Á öðrum stað bjó
maður með konu sinni; alt virt-.
ist í besta samlyndi, en hann
vissi ekki hvað hún hjet. Þégar
íonum var sagt að hún hjeti
öðru nafni er byrjaði á Kr., vissi
hann ekkert hvað það var og
fyrra nafnið vissi hann ekki
með vissu, nema það býrjaði á
Guð. ’ '3
■ ~ #i ,v ,
Nfrfiskur h»kk-
ar enn I verði
. ',rí
erð á öllum nýjum fiski hækk
aði hjer í bænum í gærmorg-
un um 10 aura kílóið.
Fisksalar bæjarins verða nú að
greiða fyrir fiskinn í verstöðvun- -
um 37 aura pr. kg. fyrir þorsk o,g
45 aura fyrir ýsu. Svo legst á i
fiskinn flutningskostnaður og
rýrnun. Útsöluverðið er hjer 40
aur. kg. þorskur og 48 au. ýsa.
Þá er nú svo komið með bless-
aðan fiskinn, að hami er orðinn
lúxusvara hjá hinni miklu fiski-
þjóð, íslendingum. Það er margt
sem stuðlar að þessu gífurlega
verði á fiskinum: Mjög hár mark-
aður erlendis, lokun fiskimiðanna
fyrir Vestfjörðnm (svo að togar-
ar koma nú í bátafiskinn), treg-
ur afli hjer í Faxaflóa og mjög
stirðar gæftir.