Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.2000, Blaðsíða 8
I /i h~T
1 / í ■ 1
' v.-'ÆÓ'.
Tungufellskirkja er aðeins 22 fermetrar og tekur um 30 manns í sæti. Hér er séð frá kór út eftir kirkjunni.
TUNGUFELLSKIRKJA
LENGST FRÁ SJÓ ALLRA KIRKNA Á ÍSIANDI
Séð heim að Tungufelli. Kirkjan sem nú er í umsjá Þjóðminjasafnsins stendur í kirkjugarðinum framan við bæinn.
Tungufellskirkja er látlaus bygging og stendur í skjóli gamals reyniviðarlundar.
GREIN OG LJÓSMYNDIR:
GÍSLI SIGURÐSSON
Tmgufell og Jaðar eru efstu bæir í
Hrunamannahreppi og sjást vel
þegar ekinn er vegurinn upp
Hrunamannahrepp og yfir Hvítá
á Brúarhlöðum. Bæjarstæðið
undir hlíð fellsins er hlýlegt, en
norðan við bæina skerst Gullfoss-
gljúfur inn í hálendisbrúnina.
Austan við Tungufell er Tungufellsdalur og
liggur nú greiðfær bflvegur frá Tungufelli inn
eftir dalnum og allar götur inn á afrétt Hruna-
manna. Sú leið var ekki alltaf jafn greið og
Tungufell var þá viðkomustaður þeirra sem
lögðu á Kjalveg og fóru leiðina austan Hvítár.
Það gerðu til dæmis Reynistaðarbræður; þeir
komu við í Tungufelli á feigðaríor sinni í vetrar-
byrjun 1780. Samt var Tungufell ekki innsti
bær í Hrunamannahreppi í þá daga. Fram á 19.
öld var búið í Hamarsholti, skammt austan við
Gullfoss og fyrr á öldum var byggð talsvert inn-
ar með Hvítá.
Um aldir stóð býlið Tungufell eitt undir hlíð-
inni, en á 17. öld stofnaði Brynjólfur biskup í
Skálholti nýbýlið Jaðar og ætlaði það konu sinni
til ábúðar að sér látnum. Talsvert áður, á 15. og
fram á 16. öld, bjó í Tungufelli Halldór Brynj-
ólfsson lögréttumaður, einn af íyrirmönnum í
Amesþingi þá, og er hans minnst íyrir að hafa
orðið fyrstur manna til að skrifa undir Áshildar-
mýrarsamþykkt 1496, þar sem ofríki yfirvalda
var mótmælt. Af öðru merkisfólki sem bjó í
Tungufelli fyrr á tímum má geta um Guðrúnu
Hallvarðsdóttur, móður séra Kolbeins latínu-
skálds í Miðdal og Jóns í Tungufelli, sem kallað-
ur var lesari. Líklega hefúr hann verið læs
manna best án þess þó að vitað sé hversvegna
hann var nefndur svo. Það hefur þótt markvert,
að út af Jóni lesara er kominn stór hópur mynd-
listarmanna; Einar Jónsson og Ágrímur þar á
meðal, en út af Kolbeini er kominn hópur presta
og biskupa.
Útsýnið frá Tungufelli er ekki eins og ætla
mætti yfir gervallt Suðurlandsundirlendið því
Skerslin, hálendisbrún ofarlega í Ytrihreppi,
skyggir á útsýnið til vesturs og Hlíðarfjall er
fyrir suðrinu. Tungufell og Jaðar eru dæmi-
gerðar fjallajarðir og eru með þeim sem hvað
lengst eru frá sjó á íslandi. Það kann að koma á
óvart, en skemmsta leið til sjávar er ekki til suð-
urstrandarinnar, heldur í Hvalfjarðarbotn.
Loftlínan þangað er 58 km. Jafnframt telst
kirkjan í Tungufelli vera sú kirkja á íslandi sem
lengsterfrásjó.
Eins og myndimar ættu að bera með sér læt-
ur Tungufellskirkja ekki mikið yfir sér. Hún
stendur þó á fallegum stað, framanvert við
bæinn í skjóli gamalla trjáa og nýtur sín vel.
Þama hefur kirkja staðið öldum saman; raunar
er fyrst vitað um kirkju í Tungufelli skömmu
eftir 1200. Þá var hún helguð Andrési postula
og svo var æ síðan í kaþólskri tíð. Hún var þá út-
kirkja frá Reykjadal í Hrunamannahreppi, sem
ekki er lengur kirkjustaðm-, en frá árinu 1819
hefur hún talizt vera útkirkja frá Hmna. Ekki
messa Hrunaklerkar þó að staðaldri í Tungu-
fellskirkju, en þeirri hefð hefur verið haldið að
messa þar einu sinni á sumri hveiju. Kirkjan í
Tungufelli var bændakirkja allt til ársins 1987
að eigendur gáfu hana Þjóðminjasafninu. Ekki
er annað að sjá en það eignarhald gefist vel;
kirkjan var að hluta nýmáluð þegar ég var þar á
ferð og hún leit í alla staði prýðilega út.
Sú Tungufellskirkja sem nú stendur var
byggð úr timbri árið 1856. Upprdnalega var
hún bikuð, en 1903 var hún að hluta klædd með
bámjámi og síðar alveg. Ekki er stærðinni fyrir
að fara; gólfflöturinn er aðeins 22 fermetrar.
Samt tekur kirkjan um 30 manns í sæti.
Tungufellskirkja er með gulmálaðri boga-
hvelfingu, en burðarvirkið er málað blátt og
rímar vel við bláu litina á predikunarstólnum,
sem er útskorinn og málaður. Líkur em taldar á
að bæði hann og umgjörð altaristöflunnar séu
verk Ófeigs Jónssonar frá Heiðarbæ. Þeir era
sennilega eldri en sjálf kirkjan, eða frá því í
kringum 1825-30. Altaristaflan er Kristsmynd
sem Brynjólfur Þórðarson hefur málað og er
hún gjöf til kirkjunnar frá Matthíasi Þórðar-
syni, þjóðminjaverði. Hefur myndin átt að vera
sárabót fyrir svonefndan Tungufellskross, sem
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 15. APRÍL 2000