Morgunblaðið - 06.08.1976, Blaðsíða 36
{’ :\ S :\ ()¥:\
Bankasfrœh 9 sími 11811
mgmiHbitoife
VEÐRIÐ ?pAð er suðvestlægri
átt um landið f dag og
á morgun með þurru veðri á austan-
verðu landinu og léttskýjuðu á köflum á
þeim hluta landsins. Um vestanvert
landið er spáð smáskúrum eða súld.
FÖSTUDAGUR 6. ÁGÍJST 1976
Islenzkum kvikmyndatöku-
mönnum bannað að mynda
laxveiðar við
SVO SEM kunnugt er af fréttum
Mbl., er kvikmyndafélagið ÍS-
film að vinna kvikmynd um ís-
lenzka laxinn. Einn þáttur mynd-
arinnar átti að vera um ferðir
hans um höfin, og var m.a. ætlun-
in að mynda veiðar á laxi við
Grænland, en það er eina landið
þar sem laxveiði f sjó er leyfð.
Var sótt um leyfi til Grænlend-
Grænland
inga, en þeir hafa gefið algert
afsvar, svo ekki er sýnna en það
verði alveg að sleppa þessum
þætti f myndinni, nema þá að
takist að bjarga málunum á ein-
hvern annan hátt.
Aðstandendur ÍS-film eru þeir
Indriði G. Þorsteinsson og Jón
Hermannsson kvikmyndagerðar-
Framhald á bls. 22
HUSAVÍK — Myndin var tekin í fyrradag, en þá voru þrjú flutningaskip í
höfninni, Laxá, Skaftafell og hollenzkt flutningaskip sem losaði efni til Kröflu-
virkjunar. Mikill fjöldi af trillum og minni bátum er á Húsavík eins og sjá má á
myndinni.
Laxá í S-Þing.:
Illuti af Iaxastigan-
um byggður í ár
Mjólkurbúðum verð-
ur lokað 1. febrúar
Kaupmenn taka við mjólkursölunni og hafa
tryggt kaupendur að húsnæði 40 mjólkurbúða
„LÖGIN, sem Alþingi samþykkti
á sfðasta vetri gera ótvírætt ráð
fvrir því að öll mjólkursala fari
yfir f hendur kaupmanna og að
yfirtökunni skuli vera lokið fyrir
1. febrúar 1977,“ sagði Stefán
Björnsson, forstjóri Mjólkursam-
sölunnar, í samtali við Mbl. f gær.
Stefán sagði að lögin gerðu ráð
fyrir því, að allir kaupmenn, sem
hefðu vottorð heilbrigðisyfir-
valda gætu selt mjólk. „Með þessu
er algjörlega kippt stoðunum und-
an rekstri mjólkurbúðanna og
þær munu leggjast niður. Fólkið
mun auóvitað kaupa sína mjólk
hjá kaupmanninum en engum
heilvita manni dettur í hug að
reka mjólkurbúð við hliðina á
verzlun, sem hefur mjólk á boð-
Maður hrapar í
gjá á Þingvöllum
75 ÁRA gamall þýzkur ferðamað-
ur hrapaði í gærdag niður í
sprungu rétt ofan við Almannagjá
á Þingvöllum og slasaðist nokkuð.
Maðurinn var á ferð með hópi
þýzkra ferðamanna, sem kom við
hjá útsýnisskífunni við gjána.
Mun hann hafa gengið eitthvað
frá félögum sínum og ekki gætt
að sér og fallið um 10 metra niður
i sprungu sem þar er í hrauninu.
Fra/nhald á bls. 22
stólurn," sagði Stefán. Að sögn
Stefáns hafa kaupmenn tryggt
kaupendur að húsnæði 40 af 52
mjólkurbúða, auk þess sem þeir
munu kaupa hluta af innbúi, en í
þessu húsnæði verður einhver
annar rekstur en rekstur mjólk-
urbúða.
Samkvæmt þessu munu mjólk-
urbúðirnar leggjast niður hinn í.
febrúar n.k. og þá vaknar sú
spurning, hvað taki við hjá þeim
fjölmörgu stúlkum, yem hafa
unnið f mjólkurbúðunum. „Þetta
er vandamál, sem við sáum strax
að myndi koma upp," sagði Stef-
án. „í samkomulaginu við kaup-
menn lofa þeir að greiða götu
þessara stúlkna. Við höfum m'ikla
samúð með stúlkunum en getum
lítið gert, þar sem sett hafa verið
lög um þetta. Við óskum stúlkun-
um hins bezta og vonum auðvitað
að þær fái allar atvinnu við sitt
hæfi.“
STJÓRN Landeigendafélags Mý-
vatns og Laxár samþykkti á fundi
með fulltrúa frá landbúnaðar-
ráðuneytinu sl. þriðjudag samn-
ing um framkvæmdir við laxa-
stigann f Laxá. Samningur þessi
er gerður f framhaldi af samningi
þeim, sem rfkisstjórnin gerði við
' Landeigendafélagið um lausn
Laxárdeilunnar 1973, en f þeim
samningi var kveðið á um að rfkið
skyldi kosta gerð laxastiga upp
fyrir virkjanirnar f Laxá. I sam-
tali við Halldór E. Sigurðsson
landbúnaðarráðherra f gær, kom
fram að hefja á framkvæmdir við
laxastigann nú f sumar og verður
varið til þessa 30 milljónum
króna.
í þeim áfanga, sem áformað er
að ljúka f ár, á að byggja laxastiga
upp fyrir neðri stífluna. Ætlunin
er að nota rafmagnsgirðingar til
að beina laxinum meðfram lónun-
um. Halldór E. Sigurðsson sagði
að miklar vonir væru bundnar við
þessa tilraun með rafmagnsgirð-
ingarnar þvi ef tilraunin heppn-
aðist kæmu girðingar af þessu
Ekkert fiskiskip yfir 200
lestir á söluskrá L.Í.Ú.
UM þessar mundir er mjög
lítið um að ísk-nzk fiski-
til sölu
skip séu til söfu og eftir-
spurn eftir skipum er mik-
il. Fyrir nokkrum mánuð-
um leit dæmið þannig út
að fjöldi skipa var til sölu
og sum af betri fiskiskip-
um íslendinga voru þáseld
úr landi. Hefur þvf orðið
algjör kúvending í útgerð
fiskiskipa að því er virðist
ásfðustu mánuðum.
Jónas Haraldsson, skrifstofu-
stjóri Landssambands íslenzkra
útvegsmanna, tjáði Morgunblað-
inu i gær, að ekkert skip yfir 200
brúttólestir að stærð væri nú á
söluskrá skipasölu L.l.tJ. og væri
það f fyrsta skipti sem slíkt hefði
komið fyrir í þau þrjú ár, sem
skipasalan hefði starfað. Þá væri
farið að minnka mikið að góð
minni skip væru til sölu, og mikil
eftirspurn væri eftir skipum yfir
200 brúttólestir að stærð og af
stærðinni 80—105 brúttólestir.
Sagði Jónas, að menn sem ekki
gætu fengið skip yfir 200 lestir
hér innan lands hugleiddu, að
kaupa skip erlendis frá, ef leyfi
fengist.
tagi einnig til góða á fleiri stöð-
um. Eins og áður sagði er áformað
að framkvæma i ár fyrir 30
milljónir króna en það er um
helmingur af heildarkostnaði við
laxastigann og er þá miðað við að
ekki þurfi að gera rennur með-
fram lónunum. Verði hins vegar
að gera rennurnar má gera ráð
fyrir að kostnaður við stigann
verði um 100 milljónir króna.
Hlaupið
yfirstaðið
HLAUPIÐ í Súlu er nú sem næst
yfirstaðið og hafa menn frá vega-
gerðinni athugað ástand mann-
virkjanna á vestanverðum Skeið-
arársandi og hefur komið 1 Ijós að
þau hafa staðið af sér hlaupið án
nokkurra skakkafalla. Sigurjón
Rist vatnamælingamaður sagði
Mbl. í gær að vatnsmagnið f Súlu í
þessu hlaupi hefði orðið um 3000
teningsmetrar á sekúndu, sem er
1000 teningsmetrum meira en
varð f hlaupinu 1973, og mun
meira en f hlaupinu f fyrrasumar.
Sagði Sigurjón að vitað hefði
verið að von væri á hlaupi í Súlu
vegna þess hve mikið vatn var
orðið í Grænalóni. Sagði hann að
við lónið væru merki, sem gæfu
til kynna hve hátt vatnsborðið þar
væri orðið og væri með þvi unnt
að segja til um hvenær von væri á
hlaupi. Sigurjón sagði þó að ekki
væri nægilega vel fylgzt með lón-
Framhald á bls. 22
VELTA A SNORRABRAUT — Jeppi valt á Snorrabraut í Reykjavík í
gangstétt. Ekki urðu slys á fólki. Eins og sjá má var jeppinn, sem er
veltuna og farangur í bflnum hentist úr honum f veltunni.
gærdag og fór á hliðina uppi á
með blæjum, illa útlítandi eftir
Ljósm. Þórir Guðmundsson
Karl prins
búinn að
fá 22 laxa
KARLI Bretaprinsi hefur geng-
ið vel við laxveiðarnar í Hofsá i
Vopnafirði, að sögn Gunnars
Valdimarssonar bónda á Teigi.
Bezt gekk honum á miðviku-
daginn, en þá fékk hann 12 laxa
4—9 punda stóra. Á þriðjudag-
inn fékk hann 4 laxa og 6 á
mánudaginn og alls var hann
búinn að fá 22 laxa fyrstu þrjá
dagana. Ekki vissi Gunnar um
veiðina í gær. Prinsinn mun
veiða i dag og á morgun. Að
sögn Gunnars hefur prinsinn
fengið algjöran frið við veið-
arnar og hefur hann látíð mjög
vel af dvölinni hér.