Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1984, Síða 78

Náttúrufræðingurinn - 1984, Síða 78
lýsinga um vinnslugetu jarðhitasvæðis- ins við Reyki. JARÐLÖG OG BROTAKERFI Á 3. mynd er jarðfræðikort, sem Kristján Sæmundsson hefur gert af umhverfi Reykja, en Kristján hefur haft með höndum jarðfræðiathuganir á þessum slóðum (Ólafur G. Flóvenz o. fl. 1982). Bergmyndunum í Fnjóskadal má í grófum dráttum skipta í tvennt, svokallað Eyjafjarð- arbasalt og Kinnarfjallabasalt. Það fyrrnefnda er 7-10 milljón ára, dæmi- gerð blágrýtismyndun úr einföldum hraunlögum með rauðalögum á milli. Það myndar berggrunninn í Eyjafirði. Þar hallar hraunlögunum yfirleitt um 5—7° niður til austurs. Á belti sem liggur eftir endilangri Vaðlaheiði og suður um Reyki, eykst halli Eyjafjarð- arbasaltsins skyndilega í 15-30°. Verulegar óreglur í halla fylgja þessu hallabreytingarbelti og bera þess merki að jarðskorpan sé verulega brotin upp á þessum slóðum. Kinnarfjallabasaltið liggur mislægt ofan á Eyjafjarð- arbasaltinu. Elstu hlutar þess eru um 5 milljón ára. Það er að mestu leyti úr þunnum dyngjuhraunum. Sums staðar eru allþykk setlög inn á milli dyngju- hraunanna. Þá liggja kerfi bergganga og misgengja um Reykjasvæðið með stefnu u. þ. b. 10° austan við norður. Þau sjást vel í giljum og klettabeltum í nærliggjandi fjöllum. Halli þeirra er yfirleitt vestlægur, 60—75° frá láréttu. Dalbotninn, þar sem heita vatnið kemur til yfirborðs, er huiinn set- lögum, ár- og jökulframburði. Því sést ekki hvort uppstreymi heita vatnsins úr berggrunninum tengist einhverju þessara misgengja eða ganga. Mis- gengjabelti þetta teygir sig áfram norður í Ljósavatnsskarð og er jarðhit- inn við Stóru-Tjarnir í því. Til viðbótar áðurnefndu kerfi mis- gengja og ganga, sjást tveir gangar nyrst í Tungufjalli með stefnu NV—SA. Stefna þeir í átt að laugun- um við Reyki. Heita vatnið við Reyki kemur því upp þar sem þrjú misfellubelti í jarð- lögum skerast; hallabreytingarbeltið, N —S misgengja- og gangabeltið og NV—SA gangarnir úr Tungufjalli. Jarðlög við Reyki eru því augljóslega mikið brotin og líkur til að heitt vatn eigi þar greiða leið um. JARÐEÐLISFRÆÐIMÆLINGAR Eins og áður hefur komið fram mæl- ist mjög lágt viðnám í jörðu við Reyki í Fnjóskadal. Viðnám í jörðu í Fnjóskadal sunnan Ljósavatnsskarðs er fremur lágt, um 40 ohmm (í þurrum hraunum á Reykjanesi er viðnám t. d. hærra en 5000 ohmm, stundum jafnvel tugþúsund ohmm, og í kalda grunn- vatninu þar undir er viðnám oft 500— 1500 ohmm). Við Reyki kemur fram í viðnámsmælingum lag með lágu við- námi, 15—30 ohmm (4. mynd). Lagið kemur upp undir yfirborð við laugarn- ar en dýpkar til allra átta út frá því, mest þó til austurs og vesturs. Það bendir til þess að lágviðnámið og jarð- hitinn tengist N—S migengja- og gangabeltinu. Viðnámsmælingar þess- ar hafa ekki næga upplausn (=grein- ingarhæfni, þ. e. hæfileika til að að- greina tvo eða fleiri hluti) til að greina einstakar velleiðandi sprungur eða ganga með þeirri nákvæmni sem þarf til að unnt sé að staðsetja borholu með viðunandi öryggi. Því verður að leita annarra aðferða til að finna slíkar brotalamir. Segulmælingar eru algengasta að- ferðin til að kortleggja ganga og misgengi sem hulin eru jarðvegi. Þeim fylgir þó sá ljóður að missa ört upp- lausn eftir því sem þykkt niður á berg- 168
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.