Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1984, Blaðsíða 96

Náttúrufræðingurinn - 1984, Blaðsíða 96
F vinstri. Litlar líkur voru taldar á því, að í Skotlandi fyndist annað par sem væri nákvæmlega eins merkt. Þá sá- ust stakar hvítgæsir víða og sýndist sitt hverjum um tegundargreiningu (Crawford o. fl. 1963, Macmillan 1964). Spurningin um kynblöndun kom auðvitað fljótt til álita. Um þetta leyti var Macmillan rit- stjóri „Scottish Birds“, en það tímarit flutti helst fregnir af hvítgæsum í Skot- landi. Samkvæmt bréfi frá Macmillan (dags. 18. 4. 1982) sagðist hann hafa verið helst á þeirri skoðun, að um sömu fuglana hafa verið að ræða í öll skiptin. Skosku fuglarnir hurfu yfir sumartímann. Það ásamt því, að þetta átti sér stað sömu ár og hvítgæsir urpu í Skógum, ýtti undir þá skoðun, að merkta skoska hvítgæsaparið væri sama parið og varp í Skagafirði (Mac- millan o. fl. 1963, Macmillan 1964). Ég tel, að sú skoðun geti ekki staðist og skal það rökstutt nánar. Finnur Guðmundsson getur þess í lýsingu sinni á Skógagæsunum, að karlfuglinn hafi verið miklu stærri en kvenfuglinn. Lýsingar á skosku fugl- unum gefa til kynna, að lítill munur hafi verið á stærð merkta parsins (Macmillan o. fl. 1963, Crawford o. fl. 1963). Allt bendir til þess, að Skógafuglarnir hafi verið ómerktir. Björn Björnsson var eini maðurinn sem sá gæsirnar í návígi og hefði getað sagt til um þetta atriði. Björn lést fyrir allmörgum árum og ekki eru til neinar upplýsingar frá honum um Skógaferð- ina. Heimilisfólkið á Sjávarborg minntist þess ekki, að Björn hafi nefnt að fuglarnir væru merktir. Myndir Björns hefðu átt að geta sýnt þetta, en Björn ánafnaði Náttúrufræðistofnun úrval mynda sinna eftir sinn dag. Mun hann hafa brennt þær myndir sem hann taldi minna virði, þ. á m. flestar hvítgæsamyndirnar úr Skógum. Mér er kunnugt um aðeins eina mynd, sem sýnirfuglana standandi (7. mynd). Svo óheppilega vill til, að þeir fætur fugl- anna sem sjást vel á myndinni, eru einmitt þeir fætur sem voru ómerktir á skosku fuglunum. Myndin sannar því ekkert. Þó má telja líklegt, að merkin hefðu sést, ef þau hefðu verið til staðar. Það sem styður frekar, að Skógarfuglarnir voru ómerktir, er að sá fuglinn sem fannst dauður mun líklega ekki hafa borið merki. Hafi svo verið, má telja öruggt, að heimilisfólkið á Sjávarborg hafi haft samband við Finn Guðmundsson, umsjónarmann fuglamerkinga. Þrátt fyrir þessar vangaveltur, er enn óljóst hver uppruni hvítgæsanna í Skógum var. Tímasetning þessa hvít- gæsavarps í Skagafirði gefur vissulega tilefni til að álíta, að fuglarnir hafi komið frá Skotlandi. Erfiðleikar skorskra fuglaskoðara við tegundar- greiningar styðja þá tilgátu frekar, þar sem nú er vitað að Skógagæsirnar voru kynblendingar. Fuglaskoðarar í Skotlandi tóku eftir því, að hvítgæsir voru oft í heiðagæsa- hópum. Það ýtti undir þá skoðun, að fuglar upprunnir úr andagörðum, lentu stundum í hópa villtra gæsa og leituðu með þeim norður til varp- stöðva að vori. Par helsingja (Branta leucopsis), sem varp í norður-Svíþjóð sumarið 1952, var talið hafa sloppið úr haldi í Skotlandi árið 1948 (sjá Mac- millan o. fl. 1963). Sambærilegt atvik kann að hafa átt sér stað með hvítgæs- irnar í Skógum. Báðar hvítgæsateg- 186
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.