Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 52

Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 52
um fylgir alltaf öskumyndun en oft einnig vikurmyndun. Venjulega þenst kvikan nokkuð jafnt í allar áttir við gasbólumyndunina. Hún þenst þá oft- ast svo mikið, að blöðruveggirnir rifna og kvikan tætist í smáagnir, ösku, í stað þess að hanga saman sem storkin glerfroða, þ. e. vikur. Sé útstreymis- hraði kvikunnar í slíkum gosum mjög mikill og gosstrókurinn stöðugur (ekki púlsandi eða stakar sprengingar), get- ur það leitt til þess að kvikan þenjist og togni samtímis. Þá myndast vikur, sem hefur aflangar blöðrur. Þenjist kvikan svo mikið undir þessum kringumstæðum, að blöðruveggirnir rifna, verða öskukornin þráðlaga eða nálótt. Það er því myndunarlega séð viss skyldleiki með nornahárum og nálóttri ösku, en mikill munur er á efnasamsetningu kvikunnar. í ein- stöku tilvikum fer saman svo mikill útstreymishraði súrrar kviku og svo mikið gasinnihald, að súr nornahár myndast (Sasaki o. fl. 1981). Að öll- um líkindum er kvikan þá einnig óvenjulega þunnfljótandi miðað við súrar kvikur almennt. Eins og fyrr seg- ir, eru ekki þekkt súr nornahár úr íslenskum eldstöðvum en nálótt öskulög eru hér þekkt í jarðvegi. Eins og sjá má af mynd 6 þá er mikill svipur með innri gerð nálóttu kornanna og nornaháranna. Nornahár, sem urðu til í Kröflugos- inu í nóvember 1981, í Surtseyjargos- inu (ágúst 1966) og snemma í Skaftár- eldum 1783, hafa verið efnagreind, og er samsetning háranna sýnd í töflu I. Einnig er þar sýnd samsetning glersins úr efra nálalaginu. Hér er um að ræða efnagreiningar, sem gerðar eru á ör- greini, og sýna þær því samsetningu glersins eins og hún er í örlitlum punkti. Samsetning glersins í norna- hárunum er í öllum tilvikum nauðalík samsetningu meginhluta þeirra gos- efna, sem upp komu í gosunum á sama tíma og hárin mynduðust. Það er því augljóslega ekki beint samsetning kvikunnar, sem leiðir til nornahárs- myndunarinnar, heldur stjórnast hún af útstreymishætti (extrusion mechan- ism) gossins og magni uppleysanlegra gasa í kvikunni. Samsetning gasanna, sem í rörunum eru, er enn óþekkt, og sama á við um vökvabólur og hinar örfínu kristal- agnir, sem í gasrörunum finnast. Líkur eru til að gassamsetningin í rörunum haldist óbreytt, þó einhver tími líði þar til samsetning þeirra verður greind. Almennt er fremur lítið vitað um sam- setningu gasa í bergkviku og veldur því aðallega hversu erfitt er að safna þeim áður en þau mengast af andrúms- lofti. Vonir standa til að afla megi mjög mikilvægrar vitneskju um þenn- an þátt, með því að greina samsetn- ingu gasanna í rörum nornahára. Nú eru tæknilegir möguleikar fyrir hendi á greiningu gasa í svo litlu magni, án þess að þau komi nokkurn tíma í snert- ingu við andrúmsloft, en svo hefur ekki verið fram að þessu. Ákvörðun á eðlisþunga glersins í nornahárinu frá Kröflu (nóvember 1981) gefur 2.79g/cm '. Hárin voru fín- mulin í agatskál og gasrörin þannig sprengd. Ákvörðunin sjálf var síðan gerð í svokallaðri „pychnometer- flösku“. Niðurstaðan segir því til um eðlisþunga sjálfs glersins og um leið nokkurn veginn eðlisþunga afgasaðrar bergkvikunnar á yfirborði jarðar. 142
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.