Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 36

Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 36
upp vegna suðunnar í hraunpollinum. Vindurinn, sem blés gegnum sletturnar er þeyttust upp, reif úr þeim smá hnúða og teygði úr þeim glerþræði með svip- uðum hætti og gerist við venjulegan glerblástur. Þessir fínu þræðir bárust áfram fyrir vindinum þar til þyngri endi þeirra dró þá niður og þá sneri vindur- inn þeim þannig, að léttari endi þráð- anna vissi í vindáttina. En yfirleitt var sem einskonar ballast á hverjum þræði sá litli hnúður, sem vindurinn dró út úr hraunsprautinu". Hálfri öld eftir að Dana virti fyrir sér þessa Pelehársmyndun minnist hann aftur á þessa gömlu athugun sína og segir síðari athuganir hafa sannað, að hann hafi haft rangt fyrir sér varð- andi það að vindurinn myndaði Pele- hárið. Athuganir annara hafi sannað, að þræðirnir myndist við það að hraunið þeytist upp og splundrist í slettur, en þræðirnir myndast þegar þær skiljast að og þáttur vindsins sé eingöngu sá, að bera með sér þræðina (Dana 1890, bls. 70-71). Þessi leiðrétta lýsing Dana á mynd- un Pelehárs telst enn rétt, sbr. eftirfar- andi stuttorða og gagnorða skil- greiningu tveggja eldfjallafræðinga (Wentworth og Macdonald 1953, bls. 10) með mikla reynslu frá Hawaii: „The threads of rock glass drawn out by flying clots of molten lava during bubb- ling or fountaining stages of volcanic activity have long been known as Pele’s hair". Því má bæta hér við, að glerdropa, sem myndast og oft eru á öðrum enda Pelehárs, nefna frumbyggjar á Hawaii Peletár, Waimaka o Pele. Varðandi íslensk heiti á þessum fyrirbærum skai þess getið, að í ritgerðinni Óbrinnis- hólar lýsir Jón Jónsson (1974) Pelehári í gjóskulagi í Óbrinnishólum vestur af Undirhlíðum. Jón minnist þar á hawai- isku heitin Pelehár og Peletár og skrif- ar (á bls. 112): „Ekki er mér kunnugt um hérlent heiti á þessum hlutum, en ef til vill mætti nefna þá nornaþráð, nornaþrœði og nornatár. Væri þá haldið að nokkru samræmi við hjátrúna frá Hawaii“. Eins og síðar verður að vikið hefur fyrirbærið Pelehár áður verið gefið ís- lenskt heiti: grjótlýja, en ég er sam- mála Jóni um að velja heiti er minni á hið hawaiiska, en tel þá rökrænna og í samræmi við nornatár að nefna pele- hárið nornahár. Pelehárinu lýsa þeir Wentworth og Macdonald þannig í framhaldi af ofan- greindri skilgreiningu (þýð. S. Þ.): „Þessir þræðir eru venjulega jafnir að þvermáli að heita má svo nokkrum þumlungum skiptir, og verða stöku sinnum „yard“ [91 cmj á lengd. Þver- málið er venjulega á milli 0.01 og 0.10 mm, en getur verið meira. Mjóu þræð- irnir eru tært, ljósgrænt gler. í grófari þráðum eru bólur og vísar að krystalla- myndun. Bólurnar eru stundum út- þandar og belgja út þráðinn svo að þvermál hans verður hálfur mm. Sumir þræðirnir eru dregnir örfínum lang- röndum og sýna vott af „anisotrop- isrna,, í bergfræðismásjá, þegar horft er gegnum bæði Nicol prismin". Þess má geta, að til eru þeir fuglar á Hawaii, sem gera sér hreiður úr norna- hári (Judd 1881, bls. 71). Ein er sú eyja í Indlandshafi, sem kunn er fyrir myndun nornahárs. Hún er ein af Maskareneyjum og lýtur Frökkum, hét í eina tíð Ile Bourbon, í annan tíma Ile Bonaparte, en síðan 1848 Réunion. Á henni er mjög virkt eldfjall, Le Volcan. Það er í frásögur fært, að þegar þetta eldfjall gaus 1821 hafi glerþræðir þakið alla eyna (Humboldt 1858, bls. 411). Er þeim sem þetta ritar ekki kunnugt um frá- sagnir af eldri gosum erlendis, sem myndað hafi Pelehár. Víkjum þá að þriðju úthafseynni, okkar eigin landi. Stutt skýrsla um fyrsta hluta Skaft- 128
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.