Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1984, Síða 14

Náttúrufræðingurinn - 1984, Síða 14
Friederich Múller gerði og byggði nærri eingöngu á söfnum og upplýsing- um frá apótekaranum, lækninum og grasafræðingnum Johan Gerhard Kön- ig, en hann ferðaðist hér um sumrin 1764—65 og safnaði plöntum vegna út- gáfu hins mikla rits „Flora Danica“. í þessari skrá Mullers er engar upplýs- ingar að finna um plöntuna sjálfa né vaxtarstaði hennar, aðeins sagt að hún vaxi hér á landi, eins og í flestum öðrum gömlum plöntuskrám héðan, þ. á m. skrá Johans Zoéga sem var reyndar aðallega gerð eftir skrá Múllers og því einnig byggð á söfnum Königs. íslensku nöfnin á tegundinni, hrúta- berjalyng og hrútaber, en hið síðara hefur ekki bara verið notað sem nafn á ávöxtum plöntunnar heldur líka á plöntunni allri, eru án efa gömul í málinu. Þau koma líklega fyrst fyrir í rituðu máli í grein Gísla biskups Odds- sonar (1593-1638), „De Mirabilibus Islandiae", sem fyrst var prentuð í tímaritinu „Islandica“ (1917), 10. bd., en snúið á íslensku af Jónasi Rafnar lækni og gefin út árið 1942 undir nafn- inu „Undur íslands", orðréttri þýð- ingu latneska nafnsins á ritgerðinni. í ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar (1772) er aðeins á einum stað minnst á tegundina, ef frá er talin nafnaskráin aftan við hana, sem áður er getið, og þá eingöngu á aldin hennar og þau nefnd hrútaber, en nafn á plöntunni allri er ekki til- greint. En bæði Nicolai Mohr (1786) og Oddur Hjaltalín (1830) nota nafnið hrútaber á plöntunni allri, þó að Odd- ur nefni að vísu fleiri nöfn á henni. Chr. Grpnlund (1881) kallar tegund- ina einnig hrútaber í „Islands Flora“ og hið sama gera Torfi Bjarnason í óprent- uðu handriti, „Um fóðurjurtir“, frá 1897 og Helgi Jónsson (1906-1907) í grasa- fræði sinni, „Bygging og líf plantna“. í maturtabók Eggerts Ólafssonar, eða „Lachanologia", sem Björn Halldórsson (1774) gaf út, er aftur á móti notað nafnið hrútaberjalyng, og það gerir Björn Halldórsson (1783) líka í „Grasnytjum", þar sem hann kallar tegundina hrútaberjalyng í fyrir- sögn en hrútaber í lýsingu hennar, og Olav Olavius (1781) í „Fáein jurta- fiska- og fuglanöfn." Sama nafn nota einnig Moritz H. Friðriksson (1883) í „Grasaríkinu á íslandi“, Páll Jónsson Árdal (1884) í „Náttúrusögu handa al- þýðu“ og Stefán Stefánsson (1901) í 1. útgáfu „Flóru íslands“ og var því fylgt í báðum síðari útgáfum Flóru (1924 og 1948). Stefán notar reyndar einnig nafnið hrútaberjaklungur í 2. útg. Flóru, sem hann gekk sjálfur frá til prentunar að mestu leyti, og hefur það meira að segja á undan hinu, og það var líka gert í 3. útgáfunni. Petta síðasttalda nafn mun Stefán hafa búið til út frá hinu gamla nafni klungur (sbr. „klungurbrekka", „um kletta og klungur“ o. fl.), sem virðist upphaf- lega merkja þyrnir eða þyrnirunni, en Stefán færði það yfir á ættkvíslina Rubus (Stefán Stefánsson 1901, 1919, 1924 og 1948). Nafnið hrútaberja- klungur taka þeir svo upp Chr. Osten- feld og Johs. Gröntved (1934) og Áskell Löve (1945, 1970, 1977 og 1981), en Johs. Grpntved (1942) fylgir 2. útgáfu Flóru íslands, þó að hann breyti nafnaröðinni. Ég held að þetta nafn, hrútaberjaklungur, hafi aldrei orðið alþýðumál, mönnum sé það ekki tamt í munni en kalli tegundina í dag- legu tali hrútaberjalyng eða jafnvel bara hrútaber. Stöku nöfnum öðrum á þessari plöntutegund bregður fyrir. Eggert Ólafsson (1832) segir á einum stað í Búnaðarbálki (3. kvæði: Munaðar- dælu eður Bóndalífi og landselsku, 79. vísu): „Maðran örþreyttum léttir lúa, 108
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.