Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1984, Síða 7

Náttúrufræðingurinn - 1984, Síða 7
Árni Einarsson, Jón Þorvaldsson og Hálfdán Björnsson: Nýjungar um íslenska landsnigla í liðlega eina öld hafa ísienskir landsniglar verið rannsóknarefni nátt- úrufræðinga. Flestir hafa keppst við að finna hvaða tegundir lifa hér, og 34 tegundir hafa verið tíndar til (Mörch 1868, Sikes 1913, Schlesch 1923, Odhner 1928, Lohmander 1938, Mandahl-Barth 1938, Armitage og McMiIlan 1963, Lindroth 1965 og Lindroth o. fl. 1973; sjá einnig Wald- én 1966 og Árna Einarsson 1977). Þar af eru 23 sniglategundir með skel, en landkuðungarnir freista safnara gjarna meira en sniglar sem eru án slíks ytra skarts. í ritgerð þessari er greint frá þremur tegundum, sem áður var ókunnugt um að byggju þetta land. Einnig er gerð grein fyrir ýmsum nýjum upplýsingum um útbreiðslu hinna sjaldgæfari teg- unda. Hvað fræðilegar nafngiftir á landsniglum varðar er fylgt fordæmi Kerney og Cameron (1979). NÝJAR TEGUNDIR Tegundirnar þrjár, sem að ofan var minnst á að væru nýfundnar, eru þess- ar: Vertigo substriata (Jeffreys, 1833) (gárastúfur), Vertigo lilljeborgi (West- erlund, 1871) (engjastúfur) og Carych- ium tridentatum (Risso, 1862) (títu- bobbi). Vertigo substriata (1. mynd) fannst við Seljalandsfoss undir Eyjafjöllum, Rangárvallasýslu (J. Þ.). Aðeins eitt eintak fannst í grasbrekkunni milli fossins og Hamragarða sumarið 1982. Kuðungurinn er af fullvöxnum snigli, 1,7 mm hár og 1,1 mm breiður. Hann er egglaga, vindingarnir fjórir að tölu. Útrönd munnans er eilítið íbjúg, munnaröndin þunn og aðeins lítið flennt út. Fimm tennur eru í munnan- um. Eitt höfuðeinkenni kuðungsins eru þéttstæðir, reglulegir gárar langs- um eftir yfirborði hans, þvert á vind- ingana. Gárarnir eru stærstir og mest áberandi á tveimur neðri vindingum hyrnunnar en vantar að mestu á grunnvindinginn. Ytra borð grunn- vindingsins er nokkuð beyglað, og samsvara beyglurnar staðsetningu tannanna innan í honum. Vertigo lilljeborgi (2. mynd) hefur fundist á tveimur stöðum, Reyni- völlum í Suðursveit, Austur-Skafta- fellssýslu og Fagurhólsmýri, Öræfum, Austur-Skaftafellssýslu (H. B.). Á báðum stöðum fundust allmörg eintök í mýrlendi. Flestir kuðungarnir eru um 2 mm á hæð, og er breiddin um tveir þriðju af því. Þeir eru egglaga, með fjóra vindinga. Liturinn er kastaníu- brúnn, og slær á hann rauðri slikju. Yfirborðið er slétt og glansandi. Fjór- ar tennur eru í munnanum og vita í kross. Munnaröndin er þunnvaxin, út- röndin lítið eitt íbjúg og í meðallagi útflennt. Ef munnaröndin er skoðuð frá hlið sést dæld samsíða henni. Önn- Náttúrufræðingurinn 53 (3-4), bls. 101-106, 1984 101
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.