Morgunblaðið - 18.03.2003, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 18.03.2003, Qupperneq 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 15                                          !                 "#               $           %   &                     '     ()    "           * #  +   ,  -          .  & !"# $" /0&11'/2&11      "                ! KAUPENDUR að 45,8% hlut ríkisins í Búnaðar- bankanum ætla að reiða fram 60% af kaupverðinu, 7,14 milljarða króna og greiða þar með fyrir 27,48% hlutafjár í bankanum, í vikunni. Þeir nýta sér því ekki 30 daga greiðslufrest frá birtingu nið- urstaðna Fjármálaeftirlitsins, en það samþykkti kaupin í gær. Með því að greiða fyrir hlutinn í vikunni hljóta kaupendurnir, eða S-hópurinn svokallaði, sem samanstendur af Eglu hf., Eignarhaldsfélaginu Samvinnutryggingum, Samvinnulífeyrissjóðnum og Vátryggingafélagi Íslands, þau atkvæði sem honum fylgja á aðalfundi bankans á laugardaginn. Fyrsta verkefni að styrkja starfsreglur bankans Ólafur Ólafsson, talsmaður kaupendanna og stjórnarformaður Eglu hf., segir að eitt af fyrstu verkefnum fulltrúa hópsins í bankaráði Búnaðar- banka verði að beita sér fyrir því að starfsreglur bankans verði styrktar, með það fyrir augum að takmarka hættu á hagsmunaárekstrum. „Þetta er í samræmi við niðurstöður Fjármálaeftirlitsins,“ segir hann. Hann segir að í dag verði skilað inn til- lögum að fulltrúum í bankaráði, en vill ekki tjá sig um hvaða einstaklingar skipi þann lista. Samkvæmt kaupsamningi S-hópsins við ís- lenska ríkið, sem undirritaður var 16. janúar, skulu 27,48% hlutafjár í bankanum afhent í kjölfar undirritunar kaupsamnings, að fengnu samþykki Fjármálaeftirlitsins. 18,32% skulu afhent eigi síð- ar en 20. desember 2003. Málefnalegar athugasemdir Í fréttatilkynningu frá Eglu hf. segir að í nið- urstöðu Fjármálaeftirlitsins komi fram málefna- legar athugasemdir, sem kaupendahópurinn hafi ákveðið að samþykkja fyrir sitt leyti. Meðal ann- ars setur eftirlitið það skilyrði að kaupendur skuldbindi sig til að tilkynna því með nægjanleg- um fyrirvara um tímasetningu fullra aðilaskipta að hinum seldu hlutum í bankanum. Einnig að all- ur hinn keypti eignarhlutur verði falinn einu eign- arhaldsfélagi, komi til þess að hinn virki eignar- hlutur fari upp fyrir þriðjung af heildarhlutafé bankans. „Jafnframt skuldbinda hluthafar Eglu hf. sig til þess að viðhalda a.m.k. 30% eiginfjárhlutfalli í fé- laginu, sem og sinna viðvarandi upplýsingaskyldu til Fjármálaeftirlitsins. Sama ákvæði gildir um upplýsingaskyldu Eignarhaldsfélagsins Sam- vinnutrygginga, en Vátryggingafélag Íslands hf. og Samvinnulífeyrissjóðurinn sæta þegar eftirliti Fjármálaeftirlits,“ segir í tilkynningunni frá Eglu. Sáttir við athugasemdirnar Ólafur segir að kaupendur séu sáttir við athuga- semdir Fjármálaeftirlitsins. „Þær eru mjög al- menns eðlis og faglegar. Þær snúa að því að styrkja innri vinnureglur bankans og við munum beita okkur fyrir því,“ segir hann. Ólafur segir að ekkert í athugasemdunum komi hópnum á óvart eða komi sér illa fyrir hann. FME samþykkir kaup S-hópsins á 45,8% í Búnaðarbankanum Meirihluti kaupverðs reiddur fram í vikunni GREINING Íslandsbanka segir íMorgunkorni sínu í gær að líkur séu áþví að verðbólga fari yfir 2,5% verð-bólgumarkmið Seðlabankans í næsta eða þar næsta mánuði. „Verðbólgan hefur verið undir verðbólgumarkmiði bankans frá því í nóvember á síðastliðnu ári. Lægst fór verðbólgan í janúar niður í 1,4%, en nú stendur hún í 2,2%. Á milli mars og apríl í fyrra hélst vísitala neyslu- verðs óbreytt og einnig á milli apríl og maí. Aðilar vinnumarkaðarins lögðu þá mikið á sig til að halda vísi- tölunni undir hinu rauða striki kjara- samninga. Nú eru hins vegar líkur á því að vísitala neysluverðs hækki um 0,2–0,3% á milli mars og apríl og um 0,1–0,2% milli apríl og maí. Rætist þetta mun verðbólgan fara yfir verðbólgumarkmið Seðlabank- ans á næstu tveimur mánuðum. Þrátt fyrir að verðbólgan sé nú aðeins að aukast væntir Greining ÍSB þess að verðbólgan haldist áfram lág, bæði á þessu og næsta ári,“ segir í Morg- unkorni. Spáð að verð- bólga fari yfir markmið Seðlabanka KÍTÓSAN, efni sem unnið er úr rækjuskel á Siglufirði, er notað í nýja gerð sáraumbúða sem fram- leiddar eru fyrir bandaríska herinn. Talið er að umbúðirnar, sem ætlað er að stöðva miklar útvortis blæð- ingar, eigi eftir að bjarga þúsund- um mannslífa. Primex ehf. á Siglufirði sérhæfir sig í framleiðslu á kítíni og kítósani, sem unnið er úr rækjuskel. Fyr- irtækið hefur gert samning við bandaríska fyrirtækið HemCon um notkun kítósans í nýja gerð sára- umbúða sem HemCon hefur þróað í samstarfi við við bandaríska herinn, sem býr sig nú af kappi fyrir átök við Persaflóa. Jóhannes Gíslason, rannsókna- og þróunarstjóri Primex, segir að HemCon noti kítósan í framleiðslu sáraumbúða sem séu sérstaklega hannaðar til að ráða við erfiðar blæðingar. Hann segir að kítósan sé jákvætt hlaðin fjölsykra og ná- skyld mikilvægri fjölsykru í manns- líkamanum. „Geysileg viðurkenning“ „Mannslíkaminn hafnar þannig ekki kítósaninu sem myndar blóð- kökk í sári og stöðvar þannig blæð- ingu með því að líma saman sárið. Það hafa verið gerðar ýmsar til- raunir í þessa veru en þetta mun í fyrsta sinn sem þessi vara er sett á markað. Það felst geysileg viður- kenning í því að vara frá okkur skuli vera sú fyrsta sinnar tegundar sem er viðurkennd af heilbrigðis- iðnaðinum,“ segir Jóhannes. Tilraunir með noktun kítósans í sáraumbúðir hófust fyrir aðeins tæpum tveimur árum og hlutu þær samþykki bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitsins í nóvember sl. Jó- hannes segir að HemCon hafi þróað sáraumbúðirnar í samstarfi við bandaríska herinn og það hafi vissulega hjálpað til við að umbúð- irnar fengu skjóta afgreiðslu og við- urkenningu frá bandarískum yfir- völdum. Hann segir að kítósan hafi ótal eiginleika og möguleikarnir til hag- nýtingar því margir. Hinsvegar sé efnið í sumum tilfellum of dýrt til að hægt sé að nýta eiginleika þess. „Í þessu tilfelli er verið að nýta ein- staka eiginleika kítósans og önnur efni með sömu eiginleika eru ekki til. Við erum með fleiri járn í eld- inum, enda stærsti framleiðandi kítósans á Evrópumarkaði og höf- um meðal annars tekið þátt í Evr- ópuverkefni sem miðar að því að nota kítósan til lækninga á bein- brotum. Samstarfið við HemCon hefur hinsvegar skilað okkur hvað lengst inn á heilbrigðismarkaðinn. Þetta er mjög stórt skref í rétta átt og á vafalaust eftir að skila okkur lengra inn á þennan markað.“ Geta bjargað þúsundum mannslífa Sáraumbúðirnar þykja bylting í gerð slíkra umbúða, sem hafa nán- ast ekkert þróast í marga áratugi. Í grein í bandaríska dagblaðinu New York Times fyrr í þessum mánuði segir að kítósan-sáraumbúðirnar geti bjargað þúsundum mannslífa, enda sé blæðing helsta dánarorsök hermanna á vígvellinum, þar sem oft geti orðið löng bið eftir réttri meðferð. Þá er talið að umbúðirnar muni einnig nýtast almennum borg- urum, enda megi árlega rekja um 70 milljónir heimsókna á bráðamót- tökur bandarískra sjúkrahúsa til útvortis blæðinga. Hafa læknar þegar leitað eftir því að fá að nota umbúðirnar, m.a. í áhættusömum heilaskurðaðgerðum. Í greininni kemur fram að bandaríski herinn hafi þegar pantað 20 þúsund sára- umbúðir sem framleiddar eru úr kítósan. Efni úr rækjuskel í nýjar sáraumbúðir AÐALFUNDUR Hraðfrystihúss Eskifjarðar, sem haldinn var síðast- liðinn föstudag, ákvað að nafn félags- ins skyldi stytt í Eskja hf. Um leið var kynnt nýtt merki félagsins. Að sögn Elfars Aðalsteinssonar, forstjóra Eskju, var ástæða nafn- breytingarinnar þríþætt. ,,Í fyrsta lagi var gamla nafnið erfitt í mark- aðssetningu, sér í lagi gagnvart er- lendum viðskiptavin- um okkar. Í öðru lagi var markaðsaðilum orðið tamt að stytta gamla nafnið í Hresk, eða Hreski, og fór það óneitanlega fyrir brjóstið á mörgum. Í þriðja lagi er rekstur félagsins orðinn mun fjöl- þættari en gamla nafnið gaf til kynna,“ sagði Elfar. Öskjulaga laut Spurður um tildrög nafnsins sagði Elfar að nafnið mætti rekja til öskju- laga lautar er fyrirfyndist í hlíðum Eskifjarðarheiðar. ,,Eskifjörður hét í árdaga Eskjufjörður og finnst okk- ur þetta kennileiti tvinna vel saman sögu bæjarins og félagsins. Nýja merkið okkar stendur fyrir silfur hafsins og er bein tilvísun í bæði verðmæti náttúrunnar og þeirra af- urða sem hún gefur af sér.“ Eskja hf. skilaði 1.010 milljóna króna hagnaði á síðasta ári. Í máli Magnúsar Bjarnasonar stjórnarfor- manns kom fram að hagnaðurinn væri sá mesti í sögu þess. Veiðar og vinnsla uppsjávarfisks hafi gengið með eindæmum vel á árinu og af- urðaverð haldist hátt mestan hluta ársins. Bolfiskveiðar og -vinnsla hafi einnig gengið vel, en rækjuveiðum og -vinnslu var hætt í lok árs vegna viðvarandi tapreksturs. Magnús hættir eftir 47 ára starf Á fundinum lét Magnús af stjórn- arformennsku og gekk úr stjórn fé- lagsins og lauk þar með 47 ára starfi fyrir félagið. ,,Miklar breytingar hafa átt sér stað á þessum tíma og nægir að nefna þær sem orðið hafa á fjármálamarkaði, en áður fyrr þurft- um við Aðalsteinn Jónsson oft að bregða okkur í betri fötin og ganga bónleiðina til Reykjavíkur,“ sagði Magnús. Í fundarlok þakkaði for- stjóri félagsins Magnúsi fyrir hans ævistarf í þágu félagsins og klöpp- uðu fundargestir honum lof í lófa. Í máli Elfars Aðalsteinssonar for- stjóra kom fram að rekstur síðustu tveggja ára væri nokkuð svipaður. Arðsemi væri góð, veltufé frá rekstri væri hátt og eiginfjárhlutfall félags- ins styrktist óðum og væri nú tæp 33%. Hann sagði lokun rækjuvinnslu Eskju hafa verið vonbrigði, en óhjá- kvæmilega vegna erfiðra aðstæðna í greininni. Á móti kæmi að félagið ætti von á 1.357 þorskígildistonnum, vegna kaupa á Hópi ehf. í Grindavík og yrði það mikil styrking fyrir bolfisk- vinnslu þess. Um framtíðarhorf- ur sagði Elfar: „Það er ljóst að íslenskur sjávarútvegur hefur byggst upp í heilbrigða og frjálsa at- vinnugrein síðustu 20 árin. Reglu- gerðarfargani hefur verið varpað fyrir róða og greinin hefur notið þess stöðugleika sem skapaður hefur ver- ið. Fyrirtækin hafa opnast upp með markaðsvæðingu greinarinnar og hluthafar hafa margfaldast. Í árslok 2000 áttu um 19.000 manns beina eignaraðild að íslenskum sjávarút- vegsfyrirtækjum, í dag eru þeir 27.000, eða um 10% þjóðarinnar. Eru þá ótaldir hinir fjölmörgu sjóðir og fjárfestingarfélög sem Íslendingar eiga óbeina eignaraðild að. Greinin mun brátt inna af hendi auðlinda- gjald og styrkja með því íslenska rík- ið – þveröfugt við sjávarútveg ná- grannaþjóða okkar, þar sem veiting ríkisstyrkja er daglegt brauð. Því er óskiljanlegur málflutningur þeirra sem fórna vilja uppbyggingu síðustu ára og gera fjöregg þjóðarinnar að leiksoppi pólitísks valdabrölts,“ sagði Elfar í ræðu sinni. Á fundinum kom fram að laun for- stjóra hefðu numið 11.356 þúsund krónum, en hann var 16. launahæsti starfsmaður Eskju á árinu. Ákveðið var að greiða 25% arð af nafnverði, eða sem nemur um 11% af hagnaði. Hresk verður Eskja hf. JAMES Hensel, fyrrum aðstoðar- forstjóri Columbia Ventures, móð- urfélags Norðuráls, er forstjóri HemCon. Hensel er í stjórn Norð- uráls og leiddi uppbyggingu ál- vers fyrirtækis- ins á Grundar- tanga. Hensel hætti hjá Columbia Ventures 1. mars á síðasta ári og hóf þá strax störf fyrir HemCon. Spurður um verð- mæti samnings HemCon við banda- ríska herinn segir hann að fyrir- tækið eigi óafgreiddar um tveggja milljóna dollara pantanir. Hensel segir að tæknin sem um ræðir hafi verið þróuð í Portland í Oregon, hjá Oregon Medical Laser Center, sem er hluti af Providence sjúkrahúsinu. „Þegar ég kom til liðs við HemCon var fyrirtækið að- eins skipað tveimur stofnendum þess. Þeir unnu við tæknilega þró- un, en réðu mig til að reka fyrir- tækið og byggja það upp. Við keyptum tæknina af sjúkrahúsinu, fengum samþykki bandaríska lyfja- eftirlitsins og byggðum upp verk- smiðju í Portland,“ segir hann. Starfsmenn eru nú 15 talsins og á föstudaginn fór fyrsta sendingin af stað til bandaríska hersins. Forstjóri Hem- Con í stjórn Norðuráls James Hensel

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.