Morgunblaðið - 18.03.2003, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 18.03.2003, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLANDSMEISTARAMÓT í 10 dönsum með frjálsri aðferð fór fram í Laugardalshöllinni laug- ardaginn 15. mars sl. Á þessu móti er reiknaður saman árangur í báðum greinum samkvæmisdans- ins, þ.e. standarddönsum og suð- ur-amerískum dönsum, og eru dansaðir 5 dansar í hvorri grein. Þar sem sum danspörin stunda einungis aðra greinina þá eru allt- af aðeins færri pör sem keppa á mótum þar sem keppt er í sam- anlögðum árangri beggja greina. Samhliða Íslandsmeistara- mótinu var haldið mót í öllum flokkum fyrir þá sem keppa í dansi með grunnaðferð. Á laugardaginn fór einnig fram bikarmeistaramót í línudönsum. Var í fyrsta sinn keppt eftir nýj- um keppnisreglum Dansíþrótta- sambands Íslands þar sem t.d. er skipt í aldursflokka og dansar hver hópur tvisvar sinnum. Fyrst er dansaður skyldudans og síðan valdans. Skráðir voru til keppni 7 hópar með alls 60 dönsurum á öll- um aldri. Var það skemmtilegt innlegg í keppnina og ánægjulegt að fjórir hópar komu utan af landsbyggðinni. Til keppni í samkvæmisdönsum voru skráð alls 108 pör auk þess sem 75 pör úr hópi byrjenda sýndu dans. Keppendur komu frá eftirtöldum dansíþróttafélögum: Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar (Dansskóli DÍH), Dansíþróttafélag Kópavogs (Dansskóli Sigurðar Há- konarsonar), Dansíþróttafélagið Gulltoppur (Dansskóli Jóns Péturs og Köru), Dansdeild ÍR, Dans- íþróttafélagið Hvönn, UMFB og Dansíþróttafélagið Ýr (Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar). Keppt var til Íslandsmeistara- titils í 5 aldursflokkum Yngsti hópurinn var Unglingar I (12–13 ára). Þessi hópur keppir reyndar í 8 dönsum og bætast tveir dansar við í næsta aldurs- flokki fyrir ofan. Í flokki Unglinga I voru 4 pör skráð til leiks. Sig- urvegarar voru Haukur Freyr Hafsteinsson og Hanna Rún Óla- dóttir. Þau hafa yfirburði í þessum hópi. Þau hafa dansað saman í mörg ár, farið margsinnis utan að keppa á stórmótum og hafa mikla reynslu fram yfir hin pörin. Þeirra dansstíll er mjög hreinn en Hauk- ur Freyr mætti passa betur upp á að lækka niður hæla þegar hann stígur aftur á bak í Cha Cha Cha. Í öðru sæti voru Aðalsteinn Kjart- ansson og Edda Guðrún Gísladótt- ir. Efnilegir dansarar sem eru á mikilli uppleið. Þau hafa ekki jafn- mikla reynslu og sigurvegararnir og eiga eftir að ná að vinna betur saman. Unglingar II (14–15 ára) var stærsti hópurinn sem keppti í dansi með frjálsri aðferð á mótinu. Íslandsmeistarar urðu Jónatan Arnar Örlygsson og Hólmfríður Björnsdóttir. Þau voru í feikna- formi og tel ég víst að þau hafi haft töluverða yfirburði í stand- arddönsunum. Í öðru sæti voru Þorleifur Einarsson og Ásta Bjarnadóttir. Þau hafa veitt sig- urparinu keppni í suður-amerísku dönsunum en mér fannst þau ekki ná sér á strik í standarddöns- unum. Í flokki Ungmenna (16–18 ára) kepptu tvö pör. Þar sigruðu Frið- rik Árnason og Sandra Júlía Bernburg. Þau dansa mjög áferð- arfallegan dans og hafa góða stöðu í standarddönsunum. Í öðru sæti voru Björn Vignir Magnússon og Björg Halldórsdóttir. Þau hafa sýnt framfarir að undanförnu og þá sérstaklega í suður-amerísku dönsunum þó ekki nóg til þess að skáka sigurparinu. Því miður var einungis bara eitt par sem keppti í flokki Fullorð- inna (19–35 ára). Það voru þau Ísak Halldórsson Nguyen og Helga Dögg Helgadóttir. Þau dönsuðu ein á gólfinu og buðu upp á skemmtilega danssýningu. Það var greinilega engin pressa á þeim og varð engin svikin af þessari sýningu. Þau eru mjög létt og glaðleg á gólfinu enda frábærir dansarar sem ná auðveldlega að hrífa áhorfendur með sér. Þau dönsuðu í heildina mun betur en á síðasta móti þó fannst mér þau stundum missa sig frá hvort öðru í standarddönsunum. Elsti hópurinn var hópur Sen- iora (35 ára og eldri). Þar leiddu saman hesta sína tvö pör. Þar fóru með sigur af hólmi þau Björn Sveinsson og Bergþóra María Bergþórsdóttir. Í suður-amerísku dönsunum hafa þau haft yfirburði en ég er ekki viss um að svo hafi verið í standarddönsunum. Mér fannst vanta meiri yfirferð t.d. í Tangó og þau fóru of mikið upp og niður í dansi sem ætti að vera með flatari áferð. Í öðru sæti voru Jón Eiríksson og Ragnhildur Sandholt. Þau dönsuðu af meira öryggi en áður og hafa örugglega náð ein- hverjum stigum af sigurparinu í standarddönsunum. Aldurshóp- urinn 35 ára og eldri er mjög breiður aldurshópur. Víða erlendis er einnig keppt í flokki Seniora II sem er fyrir aldurshópinn 50 ára og eldri. Bæði þessi pör hafa aldur til þess að keppa í þeim flokki. Dómarar keppninnar voru Ann- ette Behrendsen frá Danmörku, Jan A. Foss frá Noregi, Mia Öhrman frá Svíþjóð, David Dougl- ass frá Englandi og Josef Vondt- horn frá Þýskalandi. Þegar á heildina er litið fannst mér flest pörin dansa betur en á síðasta móti sem fór fram 9. febr- úar sl. Þá höfðu sum þeirra ekki tekið þátt í danskeppni síðan í maí á síðasta ári og líklega keppn- isskrekkur komin í þau. Nú leið stuttur tími á milli og pörin hugs- anlega með minni skrekk í sér og notið sín betur á gólfinu. Norski dómarinn hafði á orði eftir keppn- ina að hér á Íslandi væri stór hóp- ur af hæfileikaríkum dönsurum sem við þyrftum að hlúa vel að. Þegar keppni var lokið og dagur var að kveldi kominn þá höfðu vel yfir 400 manns dansað af hjartans list í Höllinni og vonandi farið ánægðir heim eftir dagsverkið. Úrslit keppninnar voru eftirfar- andi: Unglingar I (12–13 ára) 1. Haukur Freyr Hafsteinsson – Hanna Rún Óladóttir, Hvönn 2. Aðalsteinn Kjartansson – Edda Guðrún Gísladóttir, ÍR 3. Karl Bernburg – Ása Karen Jónsdóttir, ÍR 4. Alexander Nikolaev Mateev – Erla Björg Kristjánsdóttir, ÍR Unglingar II (14–15 ára) 1. Jónatan Arnar Örlygsson – Hólmfríður Björnsdóttir, Gulltoppi 2. Þorleifur Einarsson – Ásta Bjarnadótt- ir, ÍR 3. Björn Einar Björnsson – Sóley Emils- dóttir, Gulltoppi 4. Stefán Claessen – María Carrasco, ÍR 5. Baldur Kári Eyjólfsson – Anna Kristín Vilbergsdóttir, Gulltoppi 6. Björn Ingi Pálsson – Ásta Björg Magn- úsdóttir, Gulltoppi 7. Fannar Helgi Rúnarsson – Lilja Guð- mundsdóttir, Gulltoppi Ungmenni (16–18 ára) 1. Friðrik Árnason – Sandra Júlía Bern- burg, Gulltoppi 2. Björn Vignir Björnsson – Björg Hall- dórsdóttir, Gulltoppi Fullorðnir (19–35 ára) 1. Ísak Halldórsson Nguyen – Helga Dögg Helgadóttir, Hvönn Seniorar ( 35 ára og eldri) 1. Björn Sveinsson – Bergþóra María Bergþórsdóttir, DÍH 2. Jón Eiríksson – Ragnhildur Sandholt, Gulltoppi DANS Laugardalshöll ÍSLANDSMEISTARAMÓT Í 10 DÖNSUM Laugardaginn 15. mars. Dansinn dunar í Höllinni Ísak Halldórsson Nguyen og Helga Dögg Helgadóttir í flokki fullorðinna. Jónatan Arnar Örlygsson og Hólm- fríður Björnsdóttir í flokki ung- linga II F. Haukur Freyr Hafsteinsson og Hanna Rún Óladóttir í flokki ung- linga I F. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Kara Arngrímsdóttir FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Aðalfundur Félags íslenskra kjötiðnaðarmanna verður haldinn laugardaginn 22. mars kl. 14.00 á Stórhöfða 31, gengið inn að neðanverðu. Dagskrá:  Venjuleg aðalfundarstörf.  Lagabreytingar. Aðalfundur Félags framreiðslumanna verður haldinn miðvikudaginn 19. mars kl. 15.00 á Stórhöfða 31, gengið inn að neðanverðu. Dagskrá:  Venjuleg aðalfundarstörf.  Lagabreytingar. Aðalfundur Félags matartækna verður haldinn fimmtudaginn 20. mars kl. 17.00 á Stórhöfða 31, gengið inn að neðan- verðu. Dagskrá:  Venjuleg aðalfundarstörf.  Lagabreytingar. Aðalfundur Félags matreiðslumanna verður haldinn þriðjudaginn 18. mars kl. 15.00 á Stórhöfða 31, gengið inn að neðanverðu. Dagskrá:  Venjuleg aðalfundarstörf.  Lagabreytingar. Aðalfundur Bakarasveinafélags Íslands verður haldinn laugardaginn 22. mars kl. 15.00 á Stórhöfða 31, gengið inn að neðanverðu. Dagskrá:  Venjuleg aðalfundarstörf.  Lagabreytingar. Skógræktarfélag Kópavogs Fundarboð — aðalfundur Aðalfundur Skógræktarfélags Kópavogs verður haldinn miðvikudaginn 19. mars 2003 kl. 20.00 í Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf, endurskoðuð lög félagsins. 2. Sigurður Geirdal flytur gamanmál í bundnu og óbundnu máli. 3. Önnur mál. Kaffiveitingar. Mætum öll vel og stundvíslega. R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.