Morgunblaðið - 18.03.2003, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 18.03.2003, Blaðsíða 42
DAGBÓK 42 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Baltimar Notos kemur í dag. Tuktu fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Ocean Tiger kemur í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Hamra- borg 20a. Fataút- hlutun þriðjudaga kl. 17–18. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, leirlist og jóga, kl. 10 og kl. 11 enska, kl. 11 dans, kl. 13 vinnustofa og postulínsmálun, kl. 14 söngstund. Fræðslu- og skemmtiferð verður 19. mars kl. 13.30, Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu 15, heimsótt skráning að Aflagranda. Árskógar 4. Kl. 9–12 opin handavinnustofa, kl. 9–12.30 bókband og öskjugerð, kl. 9.30 dans, kl. 10.30 leikfimi, kl. 13–16.30 opnar handavinnu- og smíða- stofur. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–9.45 leikfimi, kl. 9– 16 handavinna, kl. 9– 12 tréskurður, kl. 10– 11.30 sund, kl. 13–16 leirlist. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 10 samverustund, kl. 14 félagsvist. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9–16 vefnaður, kl. 10– 13 opin verslunin, kl. 13.30 myndband. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, tré- skurður, kl. 10–11 leik- fimi, kl. 12.40 versl- unarferð í Bónus, kl. 13.15–13.45 bókabíll- inn. Framtalsaðstoð veitt í dag. Korpúlfar, Graf- arvogi, samtök eldri borgara. Vatnsleikfimi er í Grafarvogslaug á þriðjudögum kl. 9.45. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 11 leikfimi, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Kl. 9 vinnu- stofa, glerskurður, kl. 11.40 leikfimi karla, kl. 13 tréskurður og mál- un. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Saumar og bridge kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Kaffistofan lokuð um óákveðinn tíma. Skák kl. 13 og alkort spilað kl. 13.30. Miðvikud.: Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði Glæsibæ kl. 10. S. 588 2111. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 13 boccia, kl. 14 postulíns- námskeið. S. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.05 og kl. 9.50 leikfimi, kl. 9.30 silki- málun, handa- vinnustofan opin, kl. 14 boccia og ganga. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.15 postulíns- málun, kl. 10 ganga, kl. 13–16 opin handa- vinnustofan, kl. 19 gömlu dansarnir, kl. 17 línudans. Hraunbær 105. Kl. 9 postulínsmálun og glerskurður, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12.15 versl- unarferð, kl. 13 mynd- list. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 boccia, kl. 13 handa- vinna, kl. 13.30 helgi- stund, kl. 14.30 spænska. Nýtt spænskunámskeið að hefjast í þessari viku. Skráning á skrifstofu eða í s. 535 2720. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa og tréskurður, kl. 10– 11 boccia. Vesturgata 7. Kl. 9.15–16 bútasaumur og postulínsmálun. kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 10.15–11.45 enska. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9.30 gler- skurður og morg- unstund, kl. 10 leikfimi kl. 13 handmennt og postulínsmálning, kl. 13–14 félagsráðgjafi, kl. 14 félagsvist. Bridsdeild FEBK, Gjábakka. Brids í kvöld kl. 19. Félag áhugamanna um íþróttir aldraðra. Leikfimi í Bláa salnum kl. 11. ÍAK, Íþróttafélag aldraðra í Kópavogi. Leikfimi kl. 11.15 í Digraneskirkju. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði, á mið- vikudögum kl. 20, svarað í s. 552 6644 á fundartíma. Kívanisklúbburinn Geysir Mosfellsbæ, spilavist í kvöld kl. 20.30 í Kívanishúsinu, Mosfellsbæ. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, Hátúni 12. kl. 20 bingó. Í dag er þriðjudagur 18. mars, 77. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Reglur þínar eru dásamlegar, þess vegna heldur sál mín þær. Útskýring orðs þíns upplýsir, gjörir fávísa vitra. (Sálm. 119, 129-130.) Það er alltaf svolítiðmerkilegt hvað sum- ir menn eru ófeimnir að koma fram og tala fyrir hönd fólks án þess að hugsa sig tvisvar um. Forsvarsmenn nokkurra stéttarfélaga hvöttu launafólk sl. fimmtudag til fjöldaþátttöku í bar- áttu gegn fyrirhuguðu stríði í Írak. Af því tilefni birtist Ögmundur Jón- asson í fréttum Stöðvar tvö, ekki í líki þingmanns Vinstri-grænna eða stjórnarmanns Lífeyr- issjóðs starfsmanna rík- isins, heldur sem formað- ur BSRB og sagði: „Hér í fyrsta lagi hefur mynd- ast breiðfylking alls launafólks á Íslandi í þágu friðar gegn stríðs- rekstri. Það í sjálfu sér eru skýr skilaboð. Síðan hvetjum við til umræðu og í okkar áskorun hvetj- um við til þátttöku í fjöldamótmælum gegn stríðsrekstri ef ekki verður lát á á næstu dög- um og vikum.“     Það er naumast hvaðmargir fylkja sér að baki Ögmundi í hans friðargöngu – breiðfylk- ing alls launafólks á Ís- landi hvorki meira né minna. Skyldu allir vita af þátttöku sinni í þess- ari breiðfylkingu? Ög- mundur er auðvitað van- ur að tala með þessum hætti enda byggist starf hans sem formaður BSRB á nauðung- arsamstöðu þar sem all- ir, sem við á, greiða hon- um laun hvort sem þeim líkar betur eða verr. Þeir sem eru á algjörlega öndverðum meiði geta ekki samkvæmt lögum hætt að greiða Ögmundi laun eins og í flestum frjálsum félögum á Ís- landi.     Um kjarasamninga op-inberra starfsmanna frá 1986 segir: „Starfs- maður, sem lög þessi taka til og eigi er innan stéttarfélags samkvæmt lögum þessum, greiði til þess stéttarfélags, sem hann ætti að tilheyra, gjald jafnt því sem hon- um bæri að greiða væri hann í því …“ Þar höfum við það. Þótt launþegar hjá hinu opinbera séu gjörsamlega ósammála pólitískum metnaði og áherslum Ögmundar Jónassonar skulu þeir samt greiða honum laun. Þeir þurfa bara ekki að notfæra sér þjónustu samtaka hans!     Þessi grein er í raundulbúin skylda til að- ildar að stéttarfélagi,“ sagði Pétur Blöndal al- þingismaður nú síðast í febrúar þegar hann vildi þessa grein í lögunum burt og flutti um það frumvarp á Alþingi. Þingmaðurinn Ögmund- ur mótmælti auðvitað enda hætt við að margir kjósi að greiða ekki til félags sem formaðurinn Ögmundur stýrir og styðja þannig málflutn- ing hans þegar hann birtist í fjölmiðlum og talar fyrir hönd „alls launafólks“. STAKSTEINAR Nauðungarsamstaða Ögmundar Jónassonar Víkverji skrifar... HVER er þessi Eydís á Bylgjunni?spyr Sverrir Páll Erlendsson menntaskólakennari á Akureyri á vefsetri sínu. „Ég hélt fyrst að hún væri nýr dagskrárgerðarmaður á Bylgjunni en komst síðar að því að það er misskilningur,“ heldur hann áfram. „Hins vegar er linmæli margra útvarpsmanna slíkt latmæli að meira að segja enskan þeirra er orðin illskiljanleg. Þetta var sko ekki nein Eydís heldur voru þeir að aug- lýsa eighties. Það er út af fyrir sig til skammar að kalla dagskrárliði ís- lenskrar útvarpsstöðvar ensku nafni. Mér finnst á hinn bóginn að útvarps- stöðvar ættu að setja þá lágmarks- kröfu að starfsmenn þeirra tali skýrt og skiljanlegt mál.“ Víkverji stingur stundum við stafni á vefsetri Sverris Páls enda eiga þeir það sammerkt að vera miklir áhuga- menn um verndun íslenskrar tungu. Oftar en ekki er tungan ofarlega á baugi hjá Sverri Páli og á köflum er honum mikið niðri fyrir. Í öðrum pistli segir hann: „Mér finnst af- skaplega skammarlegt að Flugfélag Íslands, sem sameinaðist Loftleiðum svo úr urðu Flugleiðir, skuli nú heita ÆSLANDER og mér finnst líka til háborinnar skammar að Flugleiða- hótel skuli ekki lengur heita íslensku nafni heldur ÆSLANDER HOT- ELS. Eins er makalaust að Ferða- skrifstofa Íslands skuli hafa skamm- stöfunina ITB. Hvers konar íslenska er það? Það er líka hálfaumingjalegt að búðin sem hét 66° Norður heitir núna 66° NORTH, og ömurlegt að horfa upp á tískubúðanöfn eins og Factory, Perfect, Company, Centro, Hanz og Zara á Íslandi. Við búum enn á Íslandi, ekki Æslandi, og þar er enn töluð íslenska og það er dóna- skapur að nota ekki íslenskt mál þar sem því verður komið við með góðu móti. Fyrr má nú selja sig!!!“ Þetta eru orð í tíma töluð, þykir Víkverja. Og tekur undir með menntaskólakennaranum: Hvers konar íslenska er þetta eiginlega? Fyrir áhugamenn um íslenskt mál – og raunar sitthvað fleira – er slóðin á vefsetur Sverris Páls: www.ma.is/ kenn/svp/pistlar/index.htm x x x TALANDI um Menntaskólann áAkureyri, þá hrökk Víkverji í kút á dögunum þegar Tryggvi Gíslason skólameistari léði máls á því „með blæðandi hjarta“ að skólaárið þar á bæ yrði fært til samræmis við aðra framhaldsskóla landsins. Á dauða sínum átti Víkverji von en ekki þessu. Hvað ætla Akureyringar að gera næst? Sameina Þór og KA? Skólaárið í MA hefst í byrjun október og lýkur 17. júní. Punktur, basta. Víkverja segir svo hugur að fyrrnefndur Sverrir Páll hljóti að hafa skoðun á þessu máli og hann bíður þess nú í of- væni að hann fjalli um málið á vef- setri sínu. Enginn er skóli án hefða! Menntaskólinn á Akureyri. Hvurs- lags eiginlega er þetta? ÉG skellti mér í sund í Breiðholtslaug laugardag- inn 8. mars sl. með son minn sem er 51⁄2 árs. Þar fær mað- ur ekki læstan klefa heldur lætur fötin í körfu og lætur þau svo í geymslu hjá klefa- vörðum. Þarna stöndum við, ég og sonur minn, með handklæði utan um okkur þegar önnur konan spyr: Er hann nokk- uð orðinn sex ára? Nei, segi ég, en spyr af einskærri for- vitni afhverju hún vilji vita það. Þá segir hún að þegar börn séu orðin sex ára eigi þau að fara í klefa með sínu kyni. Semsagt samkvæmt þeirra reglum geta litlir strákar (sama gildir um stelpur) ekki farið með mömmum sínum í klefa þegar þeir eru orðnir sex ára. Ég varð gersamlega kjaftstopp og spurði hvort þær væru ekki að grínast í mér. Nei, þær stóðu sko fast á sínu og sögðu að einhvers staðar þyrfti að draga mörkin. Ég lét þær vita að sonur minn væri ekki búinn að læra að reima skóna sína og gæti oft ekki rennt upp eða hneppt af sjálfsdáðum. Þá létu þær mig vita að ég ætti bara að láta klefavörð vita þegar barnið væri eitt og honum yrði hjálpað. Aldrei í lífi mínu myndi ég afhenda sex ára gamlan son minn einhverjum ókunnugum manni sem ætti að aðstoða hann við að klæða sig úr fötunum þó svo að hann væri starfsmaður sundlaugarinnar og svo ekki sé minnst á alla hina sem eru í klefanum, hvað veit ég um þá (hrollur). Einnig finnst mér ábyrgð- arleysi að ætlast til þess að barn sem er ósynt (eins og flest eru sex ára gömul) fari eitt út í laug þar sem klefa- verðirnir vita ekkert hvort foreldrið er komið út í laug á undan til þess að taka á móti barninu. Ég bý sjálf í Hafnarfirði og ætla mér að athuga hvort sömu reglur gildi þar en þetta hef ég aldrei heyrt áð- ur. Held að 8–10 ára aldur væri kannski hentugri til þess að framfylgja þessari reglu. Einnig finnst mér þetta ýta undir „tepruskap“ og spéhræðslu við hitt kynið allt of snemma á lífsleiðinni. Þegar við vorum svo komin í sturtuna segir litli drengurinn minn: Mamma, við skulum ekki fara hingað í sund þegar ég er orðinn sex. Linda Skarphéðinsdóttir. Saltmengun UNDANFARIN misseri hefur Velvakandi birt mörg bréf frá lesendum þar sem skorað hefur verið á þá aðila sem stjórna saltdreifingu á götur borgarinnar að upp- lýsa hvernig þessum málum er stjórnað. Engin svör hafa borist. Hvaða aðili ákveður eða metur hvort nauðsynlegt sé að salta? Eftir hverju fer sá aðili í ákvörðun sinni? Hve miklu salti er dreift á götur Reykjavíkur á ári? Hvað kostar það? Fá bílstjórarnir greitt eftir því hve miklu magni af salti þeir dreifa? Getur íbúi sem sér salteðj- una hvað eftir annað þekja trén og blómabeðin í garð- inum sínum farið fram á skaðabætur ef gróðurinn skemmist? Geta bílaeigend- ur fengið bætur fyrir óeðli- lega ryðmyndun á bíl sínum vegna saltpækilsins? Getur það virkilega verið eðlilegt að saltbíll komi þrisvar sinnum í sömu götuna á 2 klst. tímabili? Mér er kunnugt um að samhljóða spurningar hafa verið sendar beint til gatna- málastjóra, umhverfisstofu o.fl. aðila sem ætla mætti að hefðu eitthvað um þetta mál að segja, en engar upplýs- ingar hafa borist. Föstudagurinn 28. febr- úar sl. rann upp bjartur og fagur hér í höfuðborginni, sólin skein glatt, lofthiti yfir frostmarki og allar götur þurrar eins og best gerist á regnlausum sumardegi. Veðurspáin um kvöldið gaf engar vísbendingar um snöggar veðrabreytingar og þegar birti af degi árla næsta dag voru allar götur snjólausar, frostlausar og þurrar. En viti menn. Kem- ur ekki saltbíllinn og dreifir salti í allar áttir. Meira að segja um kaffi- leytið daginn eftir (sunnu- daginn 2. mars) mátti sjá hvernig þurrar saltkúlurnar höfðu feykst út í vegkant- ana út frá hjólbörðum bílanna og höfðu myndað þar hrygg sem víða náði tuga og sums staðar hundr- að metra lengd. Nú væri fróðlegt að fá nánari upplýsingar og skýr- ingar í þessum dálkum eða annars staðar í blaðinu. Saltvondur íbúi. Dýrahald Fífi er týnd GRÁBRÚN persnesk læða týndist frá Þórsgötu. Hún er er krúnurökuð á bakinu. Hennar er sárt saknað. Þeir sem vita um Fífi hafi sam- band í síma 691 7306. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Í fylgd með fullorðnum Morgunblaðið/Ásdís Í Árbæjarlauginni. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 LÁRÉTT 1 flík, 4 vita, 7 nið- urgangurinn, 8 málreif, 9 blett, 11 bátur, 13 fjarski, 14 slátra, 15 hnífur, 17 mæla, 20 þjóta, 22 krún- an, 23 líffærið, 24 fram- leiðsluvara, 25 ávinn- ingur LÓÐRÉTT 1 kalviður, 2 land, 3 brún, 4 maður, 5 afkomandi, 6 hitt, 10 kýli, 12 flýtir, 13 ílát, 15 yrkja, 16 steins, 18 dáð, 19 hagnaður, 20 háttalagið, 21 ilma. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 þvengmjór, 8 vírum, 9 nemur, 10 ann, 11 skarn, 13 aurar, 15 magns, 18 safna, 21 vik, 22 rýrna, 23 afræð, 24 þarflaust. Lóðrétt: 2 verða, 3 náman, 4 munna, 5 ósmár, 6 kvos, 7 hrár, 12 Rán, 14 una, 15 mæra, 16 garga, 17 svarf, 18 skata, 19 fargs, 20 auða. Krossgáta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.