Lesbók Morgunblaðsins - 28.09.1996, Page 6
LEIRLISTARFELAGIÐ STENDUR FYRIR SYNINGU A VERKUM FELAGSMANNA I HAFNARBORG
■«
INGUNN Erna Stefánsdóttir við verk sitt Hvell á sýningu Leirlistarfélagsins, Leir ílok aldar, í Hafnarborg ■ Hafnarfirði.
Morgunblaðió/Árni Sæberg
LEIRVERK
LÍÐANDI
STUNDAR
LEIR í lok aldar er yfirskrift sýn-
ingar sem Leirlistarfélagið
gengst fyrir þessa dagana í
Hafnarborg í Hafnarfirði í til-
efni af fimmtán ára afmæli
sínu. Eyðir sýningin öllum efa
um að íslenskir leirlistarmenn
geti í senn myndað sterka heild
og staðið fyrir sínu sem einstaklingar, að
mati Ingunnar Ernu Stefánsdóttur, for-
manns félagsins. „Markmiðið var fyrst og
fremst að mynda sterka heildarsýn en þeg-
ar sýningin var komin upp var jafnframt
athyglisvert að sjá hvað hver og einn lista-
maður nýtur sín. Það er svo sannarlega
enginn fjöldaframleiðslustimpill á íslensk-
um_ leirlistarmönnum."
Á sýningunni eru „leirverk líðandi stund-
ar“, eins og Ingunn kemst að orði, í brenni-
punkti en sýningarhefð Leirlistarfélagsins
ku hafa verið rofin með tvennum hætti
að þessu sinni. Annars vegar var hönnuð-
ur, Pálmar Kristmundsson, fenginn til að
setja sýninguna upp í stað listamannanna
sjálfra o g hins vegar var öllum félagsmönn-
um boðið að taka þátt í sýningunni í Hafn-
arborg, en fram til þessa hafa þeir verið
valdir. „Með þessum hætti stendur hver
og einn og fellur með sínum verkum,“ seg-
ir Ingunn en 26 af 39 félagsmönnum þáðu
boðið en 13 höfðu öðrum hnöppum að
hneppa.
Bjartsýnt fólk
Það var síðia vetrar 1981 sem stofnend-
ur Leirlistarfélagsins héldu fyrsta fundinn.
Segir Ingunn þetta hafa verið bjartsýnt
fólk á framtíð leirlistar í landinu, þótt ekki
hafi verið löng saga að baki til stuðnings
og hvatningar. „Þótt níu þúsund ár séu úti
í heimi frá tilurð fyrsta leirhlutarins voru
á þessum tíma einungis fimmtíu ár frá
brautryðjendastarfi Guðmundar Einars-
sonar frá Miðdal.“
Segir Ingunn markmið félagsins hafa
verið margvísleg, svo sem að gæta hags-
muna starfandi leirlistarmanna, hafa list-
ræna víðsýni út fyrir landsteinana og gefa
landsmönnum hlutdeild í þessari ungu list-
grein. „Víst er að þetta tókst þeim og eru
flest þeirra starfandi enn á einhveiju sviði
myndlistar," segir formaðurinn og telur
upp Borghildi Óskarsdóttur, Eddu Oskars-
dóttur, Elísabetu Haraldsdóttur, Gest Þor-
grímsson, Guðnýju Magnúsdóttur, Hauk
Dór Sturluson, Jónu Guðvarðardóttur, Jón-
GUÐRUN Indriðadóttir. „Unaðsbrunnar.
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 28. SEPTEMBER 1996