Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1994, Blaðsíða 42

Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1994, Blaðsíða 42
SNEMMA vors á Kjalarnesi. MATTHÍAS Jochumnsson og fyrsta eigin- Ljósm.Lesbók. kona hans, Elín Sigríður Knudsen. Inn að landi fiskur fer fá menn þá að sjóða kynja marga kosti ber Kjalarnesið góða. Ekki má oss ama fá eða við því bjóða þó storma köstin komi á Kjalarnesið góða. Meðan andi húkinn ber og bilar ei sjónin góða, klerkur vera kært er mér á Kjalarnesi góða. Herrann blessar hagi fjár hans er stjórnin fögur, hún hefir leitt mig æfi ár 84. Vísurnar eru eftir séra Jón Vestmann. KIRKJAN í Brautarholti. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Ljósm.: Pétur Thomsen. Höfundur er þulur. Eftir PÉTUR PÉTURSSON MÓAR á Kjalarnesi. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Ljósm.: Gunnar R. Ólafsson. er hann fékk Kjalarnesþing. Þar sat hann til ársins 1855. Enginn heftr kveðið Kjalar- nesinu viðiíka hrós, né rómað landkosti og búsæld. Segja má að ljóð séra Jóns sé ástar- játning til Kjalarness og mega Kjalnesingar vel við una að eiga slíka „Kjalnesingasögu" sem kvæði sér Jóns er. Róla eg hér með ró og frið röskra millum þjóða kominn eg í kynni við Kjalarnesið góða. Það skal vera ekki ýkt eg sem hérum Ijóða: kátt er fólk og kærleiksríkt á Kjalarnesi góða. Harðviðrin og hagabönn hungur þegar bjóða, kemur sjaldan klaki og fönn á Kjalarnesið góða. Þegar blíða vorið vænt vekur huga þjóða í keldur grasið kemur grænt á Kjalarnesi góða. Af þeim safnast heyin há holla jarðargróða: Klárar, baulur, kindur á, Kjalarnesi góða. ÞÓRA INGIMARSDÓTTIR Andlit þitt Andlit þitt í skugganum augu þín í þokunni hár þitt umvafið mér kembt, fallegt frítt Hvert þitt spor eignað mér Ég á einhverju vappi í golunni týnd en treysti þér Hef ekki til annars að leita langar eitt vil annað get ekkert nema beðið þín Þó andlit þitt stæði mér fyrir augum gæti ég ekki snert það þó hár þitt lægi upp við mitt gæti ég ekki faðmað það því ég á þig ekki ekki að fullu og kannski alls ekki Draumar mínir eitthvað svo djúpir gljúpir Hef ekki upp á þér nema í svefni Andlit þitt í skugganum augun þín umvafin þoku starandi Höfundur er ung Reykjavíkurstúlka. ÞÓRA BJÖRK BENEDIKTSDÓTTIR Hvörf / faðmi Guðs, ég fagna þér jörð og finn nú haustið koma, litirnir glitra um lyng og börð, Lausnarinn málar svona. Já, haustið er komið með Ijúfl- ingslag og leikur á hörpu sína. Hjörtu sem kvíða komandi vetri komdu með hjálp þína Drottinn gefðu daga og birtu betri bjartar framtíðar vonir. Ýmsir teyga sáran sora sjá ekki höndina þína, komdu Herra með daggar dropa dreyptu á sár er svíða. Höfundur er skáld og nuddkona í Reykja- vík. Móar á Kjalarnesi hafa lengi verið hefðarsetur. Þar hafa margir þjóðkunnir menn búið og sett svip á þjóðlíf og sögu. Þar sat séra Matthías Jochumsson um hríð. Frægur kennimaður, séra Páll Sigurðsson í Gaul- vetjabæ, faðir Árna Pálssonar, heimsótti skáldið. Þeir brugðu sér á hestbak og riðu um Kjalamesið. Séra Matthías brá á glens og spurði: Hvað er Esjan þung? Séra Páll svaraði að bragði: „Þú ættir að vita það. Þú sefur undir henni.“ Móar eru við rætur Esju. Þorlákur Johnsen kaupmaður, einn fremsti maður í kaupsýslustétt, var ættaður frá Móum. Jónas Hallgrímsson skrifar um „móbíldóttan stelpuhnoðra“, dóttir séra Þor- láks í Móum. Hún giftist séra Ólafi E. John- sen, en Þorlákur kaupmaður hét nafni afa síns í Móum. Bjöm Þórðarson lögmaður og forsætis- ráðherra var frá Móum. Þórður hreppstjóri, faðir dr. Björns, var mágur séra Matthíasar Jochumssonar. Sonur Þórðar og nafni þjóð- skáldsins var Matthías ritstjóri og fiskveiða- frömuður. Ekki má gleyma Guðmundi skip- stjóra Guðmundssyni, föður systranna Krist- ínar og Rúnu í Markaðnum og seinna í Parísartískunni. Hann var í hópi dugmestu skipstjóra. Þeir voru allnokkrir togaraskip- stjórar sem vildu einnig hafa fast land und- ir fæti og stunda landbúnað jafnframt sjó- sókn. Það orð hefir oft farið af Kjalarnesinu að þar væri vindasamt. Sumir taka jafnvel svo djúpt í árinni að þar sé rokrass og aldr- ei uni vindar sér hvíldar. Þar sé jafnan kvik á strái. Séra Jón Vestmann, sem var klerk- ur á Kjalarnesi, fluttist að Móum vorið 1843

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.